24 stundir


24 stundir - 18.04.2008, Qupperneq 2

24 stundir - 18.04.2008, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 5 2 8 VÍÐA UM HEIM Algarve 16 Amsterdam 10 Alicante 16 Barcelona 13 Berlín 6 Las Palmas 20 Dublin 7 Frankfurt 10 Glasgow 8 Brussel 9 Hamborg 6 Helsinki 9 Kaupmannahöfn 9 London 8 Madrid 13 Mílanó 12 Montreal 22 Lúxemborg 7 New York 12 Nuuk 0 Orlando 19 Osló 9 Genf 6 París 10 Mallorca 16 Stokkhólmur 7 Þórshöfn 6 Suðlæg átt, 3-8 m/s norðan- og austanlands og bjart veður. Hægviðri og léttskýjað víðast hvar. Hiti 5 til 12 stig. VEÐRIÐ Í DAG 5 7 4 6 6 Hægviðri Hæg suðlæg eða breytileg átt og víða bjart veður, en smáskúrir á stöku stað sunnantil á landinu. Hætt við þokulofti við sjávarsíðuna. Hiti 2 til 8 stig, hlýjast á Suðvesturlandi, en víða næturfrost inn til landsins. VEÐRIÐ Á MORGUN 5 6 3 5 6 Smáskúrir Sigrún Jónsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands, er undr- andi yfir því að félaginu hafi ekki borist fundarboð frá ríkissátta- semjara í kjaradeilu flugþjóna og flugfreyja hjá Icelandair í gær. Segir hún staðið hafa til að félagið fundaði með fulltrúum Icelandair í húsnæði ríkissáttasemjara í fyrra- dag en þeim fundi hafi verið frest- að. Á fundi félagsins í fyrrakvöld var samþykkt að hefja undirbúning verkfalls og bendir Sigrún á að komi til þess hafi það mikil áhrif. Félag íslenskra atvinnuflug- manna fundaði með fulltrúum Ice- landair í húsi ríkissáttasemjara frá kl. 11 í gær og var fundi ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. mbl.is Kjaradeila flugáhafna hjá Icelandair Enn hefur ekkert fundarboð borist „Ég er mjög ánægður með undirtekt- irnar,“ segir Magnús Kristinsson, út- gerðarmaður Í Vestmannaeyjum, sem ásamt fleiri Eyjamönnum stóð að söfnun undirskrifta gegn fyrirhugaðri byggingu ferjulægis í Bakkafjöru, sem afhentar voru Kristjáni Möller samgöngu- ráðherra í gær. Vill hópurinn að hafinn verði undirbúningur að byggingu á öfl- ugri, hraðskreiðri Vestmannaeyjaferju auk stórskipahafnar við Eiðið. Alls skrifuðu 3172 undir, þar af 1542 bú- settir í Eyjum, eða 38,2% skráðra íbúa í Vestmannaeyjum. Segir Magn- ús að kannað hafi verið hversu margir þeirra sem skrifuðu undir hafi verið yfir átján ára aldri og hafi þá komið í ljós að 1289 af Vest- mannaeyingunum á undirskriftalistunum voru yfir átján ára. Þar með tóku 42,8% kosningabærra Eyjamanna þátt í mótmælunum, sem hópnum þykir skýr krafa um að áform um byggingu ferjulægis verði afturkölluð. mbl.is Yfir 3000 undirskriftir Hringt var í konu í Árnessýslu í fyrrakvöld, henni tilkynnt að hún hefði unnið vinning og þuldar upp ýmsar persónuupplýsingar um hana. Á endanum var hún beðin að staðfesta kortanúmerið sitt, sem hún gerði, en fékk svo bakþanka og lét loka kortinu svo enginn skaði hlaust af. mbl.is Kortasvindl reynt í síma Nýr kjarasamningur milli VR/ LÍV og FÍS, Félags íslenskra stór- kaupmanna, var undirritaður í gær með fyrirvara um samþykki beggja samningsaðila. Saming- urinn er sambærilegur og með sama gildistíma og kjarasamn- ingur VR/LÍV og Samtaka at- vinnulífsins. Sérstök launatrygg- ing er þó fyrir það starfsfólk sem var í starfi hjá sama atvinnurek- anda þann 1. október 2006, að því er segir í fréttatilkynningu frá FÍS. Verði samningurinn sam- þykktur tekur hann gildi frá 1. febrúar 2008. ibs Nýr kjarasamningur við VR Eftir Ægi Þór Eysteinsson aegir@24stundir.is Þeir sem eiga lögheimili í Reykjavík hafa forgang í gistiskýli Reykjavík- urborgar við Þingholtsstræti 25, en þar er pláss fyrir sextán útigangs- menn í gistingu yfir nóttina. „Þetta úrræði er rekið af mann- gæsku og við tökum við öllum eins lengi og húsrúm leyfir. Gistiskýlið er engu að síður félagsþjónusta sem rekin er af Reykjavík og er því ætluð fyrir íbúa þess sveitarfélags,“ segir Sigtryggur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða. Hleypt inn rétt fyrir lokun Almenna reglan sem gildir í gist- iskýlinu er sú að fyrstur kemur, fyrstur fær. Hins vegar eru útlend- ingar sem ekki eiga lögheimili í Reykjavík og utanbæjarmenn látn- ir bíða eftir plássum fram að lokun, svo þeir taki ekki upp pláss sem ætluð eru Reykvíkingum, en út- lendingum hefur fjölgað töluvert í hópi útigangsmanna undanfarið. Sigtryggur segist þekkja dæmi um að mönnum hafi verið vísað frá vegna þess að þeir eigi ekki lög- heimili í Reykjavík. „Reykvíkingar hafa forgang í gistiskýlið en fólkið sem þarna vinnur þekkir flesta mennina sem þangað koma og veit hvaðan þeir eru. Þegar nýr einstaklingur kemur getur verið erfitt að sannreyna hvaðan hann er. Viðkomandi er spurður við komuna hvaðan hann sé, en starfsfólk í skýlinu hefur ekki aðgang að þjóðskrá til að fletta honum upp. Ef hann er ekki Reyk- víkingur verður hann að bíða og fyllist gistiskýlið þá er honum vísað frá.“ Mönnum vísað frá daglega Færri komast að en vilja í gist- iskýlinu og nánast daglega þarf að vísa mönnum frá. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar tilkynnti á dög- unum að til stæði að fjölga þar gisti- rýmum úr sextán í tuttugu, en sam- kvæmt heimildum 24 stunda á byggingafulltrúi Reykjavíkur enn eftir að veita samþykki sitt fyrir breytingunni, en hún felst í að breyta setustofu sem mennirnir hafa haft aðgang að í svefnherbergi fyrir fjóra. Reykvíkingar fram fyrir röð  Reykvíkingar hafa forgang í gistiskýli borgarinnar við Þingholts- stræti  Útlendingum og utanbæjarmönnum er vísað frá verði fullt Færri komast að en vilja Nánast daglega þarf starfsfólk gistiskýlisins að vísa frá mönnum vegna plássleysis. ➤ Velferðarsvið Reykjavík-urborgar telur að heim- ilislausir í borginni séu um fjörutíu til sextíu talsins. ➤ Geðhjálp telur að á annaðhundrað geðsjúklingar séu á vergangi í borginni. ➤ Aðrir telja að fjöldi heim-ilislausra í Reykjavík sé um tvö hundruð talsins. HEIMILISLAUSIR STUTT ● Taprekstur Tap Ríkisútvarps- ins ohf. á reikningsárinu frá 1. apríl til 31. ágúst í fyrra nam rúmum 108 milljónum króna. Fram kom í fréttum Útvarps- ins, að þetta skýrist m.a. af því að ákveðið var að gjaldfæra biðlaun, rúmar 142 milljónir, á þessu tímabili. Án biðlauna var hagnaður rúmar 34 milljónir. ● Mengunarslys Við þrif á kæli í verslun Nóatúns í Hamraborg í gær blandaðist klór við hreinsiefni og mynd- uðust gufur og klórlykt. Alls fóru fimm starfsmenn á slysa- deild í skoðun eftir að hafa fundið fyrir eymslum í hálsi. Allir fengu að fara heim. Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Orkuveita Reykjavíkur (OR) má ekki eiga meira en þrjú prósent í Hitaveitu Suðurnesja (HS) sam- kvæmt ákvörðun Samkeppniseftir- litsins. OR á nú þegar um 16,6 pró- senta hlut í félaginu og hefur gert samninga um að kaupa 14,65 pró- sent til viðbótar af Hafnarfjarð- arbæ. Samkvæmt heimildum 24 stunda fær OR frest til 1. október næstkomandi til að gera breytingar á eignarhaldi sínu í samræmi við úrskurð Samkeppniseftirlitsins. Þurfa samt að kaupa hlutinn Hafnfirðingar gerðu samning við OR um að selja þeim 14,65 pró- sent síðastliðið sumar. Salan átti að eiga sér stað 10. mars síðastliðinn en hefur dregist þar sem OR hefur haldið því fram að fyrirtækið væri ekki bundið af kaupsamningnum ef hann stangaðist á við samkeppn- islög. Stefán Geir Þórsson, lögmað- ur Hafnarfjarðarbæjar, segir niður- stöðuna þó vera þá að OR beri að efna hann. „Orkuveitunni ber að greiða umsamið verð, 7,6 milljarða króna, fyrir þennan hlut í Hitaveitu Suðurnesja með dráttarvöxtum frá 10. mars.“ Dráttarvextir eru um fimm milljónir á dag og eru því komnir upp í um 200 milljónir króna. Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, segir að heildarniðurstaðan komi honum ekki á óvart en að Samkeppniseftirlitið meinar OR að eiga meira en þrjú prósent í HS OR þarf að selja í Hitaveitunni honum finnist takmörkun við þriggja prósenta eignarhlut vera langt undir því sem hann átti von á. thordur@24stundir.is

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.