24 stundir - 18.04.2008, Blaðsíða 22
22 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Við hér í Stykkishólmi erum svo
heppin að eiga kjarna af gömlum
húsum, en það er ekki á mörgum
stöðum á landinu þar sem hafa
varðveist jafn mörg myndarleg hús
á tiltölulega litlu svæði. Fjölskylda
mín átti hér gömul hús auk þess
sem ég hef keypt og gert upp tvö
önnur hús. Það er skemmtilegt
viðfangsefni að gera upp gömul
hús og færa þau til upprunalegs út-
lits,“ segir Rakel Olsen, fram-
kvæmdastjóri Agustson ehf.
Í eigu fjölskyldu Rakelar var hið
svokallaða Clausenshús sem byggt
var árið 1874. Þá gerðist Rakel for-
maður nefndar sem gerði upp
gömlu kirkjuna með fjárhags-
legum stuðningi frá Húsafrið-
unarsjóði og fleiri góðum aðilum.
Hún á einnig hús sem gengur und-
ir nafninu Prestshúsið sem byggt
var árið 1894 og Frúarhúsið sem
byggt var 1870 en bæði þessi hús
hafa verið gerð upp. Þá eru skrif-
stofur fyrirtækisins reknar í gömlu
húsi í eigu þess, svokölluðu Tang
og Riis húsi sem upphaflega var
byggt sem pakkhús. „Húsin höfðu
flest verið forsköluð sem átti á sín-
um tíma að verða til þess að bjarga
þeim en hafði þveröfug áhrif og
hefur kostað mikla peninga að
færa húsin aftur í fyrra horf. Ég hef
haft með mér góða arkitekta, þá
Hjörleif Stefánsson og Jón Nord-
stein,“ segir Rakel.
Forréttindi að eiga gömul hús
Aðspurð um hversu strangt
skipulag þurfi að vera til að slíkar
endurbætur gangi upp segir Rakel
að bæjaryfirvöld á hverjum stað
þurfi að vera mjög meðvituð um
gildi gamalla húsa og taka tillit til
þeirra í hverju skrefi sem stigið er í
öðrum framkvæmdum. „Það er
ekki spurning að húsin punta mik-
ið upp á gamla bæinn hér í Stykk-
ishólmi. Ég hef löngum sagt að það
séu forréttindi að eiga og vera í
gömlum húsum,“ segir Rakel.
Líktist höll
Norska húsið var byggt árið
1832 af Árna Ó. Thorlacius sem
var kaup- og útgerðarmaður í
Stykkishólmi. Húsið er um 500 fm
að stærð og var kallað Norska hús-
ið því timbrið var flutt tilsniðið frá
Arendal í Noregi. Það var eitt af
þremur stærstu íbúðarhúsum
landsins á sinni tíð og var fyrsta
tvílyfta einbýlishúsið á landinu.
Mikið er til af sögum og frásögn-
um sem tengjast húsinu þar sem
margir heldri gestir fengu þar inni
og skrifuðu síðan um húsið í
ferðasögum sínum. Þá var Oscar
Clausen rithöfundur fæddur og
uppalinn í næsta húsi og skrifaði
mikið um Norska húsið.
Ýmiss konar rekstur
Húsið var í eigu Thorlacius-
fjölskyldunnar þar til undir alda-
mótin 1900, en þá voru nokkrir
kaupmenn sem eignuðust það hver
á fætur öðrum í stuttan tíma. Árið
1930 komst það síðan í eigu Kaup-
félags Stykkishólms og þá bjó
kaupfélagsstjórinn á miðhæðinni á
meðan kaupfélagið var rekið á
jarðhæðinni. Eftir að kaupfélagið
flutti úr húsinu var það notað und-
ir alls konar starfsemi á 20. öld-
inni. Þar var meðal annars rekin
saumastofa, veitingasala, gisti-
heimili, tónlistarskóli, skósmíða-
stofa og pakkhús. Árið 1970 keypti
sýslunefnd Snæfellinga síðan húsið
með það fyrir augum að gera það
upp og gera að byggðasafni sýsl-
unnar. Því verki lauk árið 2006 og
nú má skoða heimili Árna og fjöl-
skyldu sem sett hefur verið upp á
annarri hæð hússins. Norska húsið
er alfriðað og hafa allar end-
urbætur verið unnar í samvinnu
við Húsafriðunarnefnd ríksins
með arkitektinn Jon
Nordstein í broddi fylkingar.
Hólmurum annt um húsin
„Eftir að hafa starfað í Norska
húsinu í 7 ár finn ég að Hólmurum
þykir vænt um húsið og eru al-
mennt mjög meðvitaðir um gildi
gamalla húsa, bæði fyrir ferða-
mannaiðnaðinn og bæinn sjálfan.
Hér í miðbænum sem kallaður er
Plássið er þó nokkuð af gömlum
húsum og flest þeirra hafa verið
gerð fallega upp og af rausn-
arskap,“ segir Aldís Sigurðardóttir,
forstöðumaður hússins.
Stykkishólmsbúum er annt um gömlu húsin sín
Færð aftur í sinn
glæsilega búning
Í Stykkishólmi er fallegt
bæjarstæði þar sem fjöldi
gamalla húsa hefur verið
færður í fyrri búning og
grunnur lagður að slíku í
skipulagsmálum bæj-
arins. Hólmurum er annt
um gömlu húsin sem
hafa mikið gildi í bænum.
Norska húsið Er elsta hús-
ið í Stykkishólmi, byggt árið
1832 af Árna Ó. Thorlacius.
Þjóðleg verslun Er rekin í
Norska húsinu í Stykkishólmi en
þangað komu 10.000 gestir í
fyrra, jafnt erlendir sem íslenskir.
Járnsmiðja Óðins
Persónuleg þjónusta og fagleg ráðgjöfjsó