24 stundir - 18.04.2008, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir
Atlantskaup ehf. Bæjarflöt 6,112 Reykjavík S: 533 3700
Upplýsingar á www.atlantskaup.is
STIGAR OG HANDRIÐ ÚR GLERI OG STÁLI
ÚTI SEM INNI
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Vegleg sýning og gagnleg ráðgjöf
Kjöthúsið er neðarlega á lóð Árbæj-
arsafnsins.
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Á heimasíðu Torfusamtakanna fær
Klapparstígur 11 rós í hnappagatið
fyrir hversu vel hefur verið að verki
staðið hvað varðar uppbyggingu
og viðhald hússins. Flosi Magn-
ússon, einn eigenda hússins, réðst í
endurgerð þess árið 2001 með öðr-
um íbúum hússins. „Mikil sam-
staða varð strax meðal eigenda um
að endurreisa húsið til fyrra útlits
og skipti það verulegu máli um ár-
angurinn,“ segir Flosi frá og bætir
því við að ástand hússins hafi verið
hrikalegt, húsið hafi varla haldið
vatni eða vindi og dópgreni í hús-
inu. Húsið hafi verið komið á nið-
urrifslista og eitt þeirra húsa í mið-
borginni sem engin prýði var að.
„Við hófum undirbúningsvinnu
árið 2001, létum vinna teikningar
er byggðu á upphaflegu útliti húss-
ins og gerðum áætlanir um fram-
kvæmd. Undirbúningsvinnan
skiptir miklu máli. Við gátum nýtt
þá styrki er okkur stóðu til boða
frá ríki og borg í að vinna hana.
Framkvæmdin var svo alfarið
borguð af eigendum hússins.“
Flosi segir framkvæmdina auðvit-
að hafa verið dýra. „Þegar á reyndi
var húsið heillegt svo fram-
kvæmdir gengu vel, auk þess eru
þær alltaf dýrar, hvort sem um er
að ræða gömul hús eða ný. Hins
vegar tel ég að um meiri ávinning
og verðmæti sé að ræða þegar ráð-
ist er í framkvæmd eins og þessa.
Hús eins og Klapparstígur 11 eru
um alla miðborg og faldir fjár-
sjóðir sem bíða góðra eigenda.“
Flosi er ósáttur við götumyndina á
Klapparstíg. „Auðvitað óskaði ég
þess að það góða verk sem unnið
var á Klapparstíg hefði smitandi
áhrif og nágrennið yrði allt fegurra
og betra. Sú er hins vegar ekki
raunin, götumyndin er agaleg og
ekkert hefur verið hugsað um að
byggja upp hverfið sem heild.“
Flosi segir þetta vera óvissu sem
allir húseigendur í miðborginni
búi við. „Hvers vegna að leggja allt
þetta ómak á sig þegar síðan rísa
nýbyggingar í allt öðrum stíl í
næsta nágrenni eða hús drabbast
niður í greni allt um kring? Hús-
eigendur sem gera hús sín upp vita
aldrei hvers er að vænta.“
Sérfræðingar til aðstoðar
Flosi nefnir að góð aðstoð sér-
fræðinga eins og arkitektanna Jóns
Nordstein og Ólafar Flygering auk
Friðberts Friðbertssonar, húsa-
smíðameistara, hafi haft úr-
slitaáhrif. Fræðslustofa um end-
urbætur eldri húsa í Kjöthúsinu er
í Árbæjarsafni og þangað geta hús-
eigendur í sama hug og Flosi leitað
eftir aðstoð.
Að Fræðslustofunni standa
Húsafriðunarnefnd ríkisins, Iðan
fræðslusetur og Minjasafn Reykja
víkur. Þar liggur frammi fjölbreytt
fræðsluefni sem kemur að gagni
fyrir þá sem standa að viðhaldi,
viðgerðum eða endurbótum á eldri
húsum, bæði húseigendur og fag-
menn.
„Þekking á sögu byggingarlistar
og sjónarmiðum húsverndunar er
nauðsynleg svo að unnt sé að
stuðla að almennri varðveislu
bygging ararfsins,“ segir Dagný
Guðmundsdóttir hjá Árbæjarsafni.
„Íslensk byggingarlist er um
margt sérstæð og saga hennar er
samofin misjöfnum aðstæðum og
efnahag.
Sú hugmynd að það sé arðbært
að varðveita menningararfinn hef-
ur átt auknu fylgi að fagna bæði
hér á landi og ekki síst í Evrópu
Með meiri fræðslu gerir fólk sér
grein fyrir því að í þessum húsum,
sem eru að drabbast niður, getur
leynst falinn fjársjóður og mikill
ágóði getur verið í að vanda vel til
verka við endurgerð þeirra. Ef vel
er að verki staðið getur húseigandi
eignast húseign sem er mikils virði
bæði fyrir samfélagið og eigand-
ann. Hér í Árbæjarsafni er hægt að
fá leiðbeiningar um efnisnotkun,
vinnuaðferðir, litaval og margt
fleira sem getur komið að góðum
notum.“
Ráðgjöf um endurbætur á gömlum húsum í Kjötsafninu
Faldir fjársjóðir
➤ Sérfræðingar á vegum Húsa-friðunarnefndar ríkisins og
Minjasafns Reykjavíkur eru
með viðtalstíma í fræðslu-
stofu Árbæjarsafns alla mið-
vikudaga frá kl. 16 til 18.
Einnig veita þeir ráðgjöf á
sama tíma í síma 411 6333.
➤ Þar fer einnig fram sýninginHúsagerð höfuðstaðar. Saga
byggingartækninnar í
Reykjavík 1840 -1940.
ÁRBÆJARSAFN
„Húsið var hreint út sagt
algert greni, hriplekt og í
mikilli niðurníðslu,“ segir
séra Flosi Magnússon um
ástand Klapparstígs 11
fyrir um 10 árum. Hann
keypti þó eign í því húsi
og ákvað að gera hana
upp og í dag er húsið hin
mesta götuprýði á Klapp-
arstígnum. Flosi segir frá
endurgerð hússins og
Dagný Guðmundsdóttir,
hjá Árbæjarsafni, segir
frá hjálp sérfræðinga til
húseigenda sem gera
upp gömul hús.
Vel að verki staðið
Klapparstígur 11 er
mikil götuprýði.
Í Kjöthúsinu Þar má kynna
sér nýja hluti, höldur, húna,
bárujárn og margt fleira í
gömlum búningi.