24 stundir - 18.04.2008, Blaðsíða 46
46 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir
„Engar skýringar hafa fundist á
því af hverju kvenfólk vinnur
minna en karlar. Þær þurfa ekki
endilega að vera latari því að
hugsanlega kemur til greina að
konur eigi fleiri börn en karlar og
jafnvel fleiri heimili og gefi sér
meiri tíma til að skemmta sér við
barnauppeldi eða heimilisstúss.“
Þráinn Bertelsson
thrainn.eyjan.is
„Í frétt er sagt frá því að John F.
Kennedy hafi verið með bráðan
niðurgang og þvagfærasýkingu á
sama tíma og hann heimilaði
Svínaflóainnrásina 1961. Hann
hafi því verið undir áhrifum lyfja.
Er bara að velta því fyrir mér
hvort það sé niðurgangur að
ganga í Seðlabankanum.....“
Einar Ben Þorsteinsson
einar.eyjan.is
„Eurovision er í raun barátta á
milli stóru símafyrirtækjanna.
Merzedes Club myndbandið varð
umsvifalaust að símaauglýsingu
og nú ætlar Nova að taka Euro-
bandið að sér. Þar sem ég kaupi
símaþjónustu af Vodafone þá fer
ég fram á að þar á bæ íhugi fólk
að ættleiða Dr. Spock...“
Anna Ólafsdóttir Björnsson
annabjo.blog.is
BLOGGARINN
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@24stundir.is
„Myndbandið var flipp sem þróað-
ist út í þetta,“ segir Draupnir Rún-
ar Draupnisson. Hann hefur slegið
í gegn sem stuðboltinn Guzzi í
myndbandi Eurobandsins við lagið
This is my Life.
Myndbandið var frumsýnt á
Nova.is í gær og eftir þrjá tíma
höfðu yfir 30.000 manns spilað
það. Myndbandið verður spilað í
Kastljósinu á morgun og fer inn á
myndbandasíðuna Youtube.com á
miðnætti.
Hlutverkið kom á óvart
Draupnir segir bón Friðriks
Ómars um að leika aðalhlutverkið
í myndbandinu hafa komið sér á
óvart.
„Ég er mjög góður vinur Frið-
riks Ómars og þekki fólkið í kring-
um hann, Regínu [Ósk] og fleiri,“
segir Draupnir og bætir við að
fljótlega eftir sigur Eurobandsins
hafi hann blandast í umræðu um
tónlistarmyndband. „Friðrik bar
undir mig hugmyndina. Ég hélt að
hann væri að bera hana undir mig
sem vin og sagði honum að mér
litist vel á. Svo sagði hann: Þú átt
að leika gaurinn. Haltu kjafti, sagði
ég og skellihló.“
Draupnir er ekki óvanur því að
koma fram. Hann hefur aðeins
fengist við leiklist, verið í áhuga-
mannaleikfélögum, komið
lítillega nálægt auglýs-
ingum og var kynnir á
árshátíð Kennaraháskól-
ans í febrúar. „Ég verð
að viðurkenna að ég
vonaði í sakleysi mínu að
myndbandið myndi
þróast í þá átt að ég yrði
í bakgrunni. En
raunin varð
önnur,“ segir
hann og hlær.
Myndband
Eurobandsins
er í svipuðum
stíl og þús-
undir mynd-
banda á You-
tube.com
þar sem fólk mæmar fræg lög.
Draupnir segist ekki hafa reynslu
af því. „Ég hef alls, alls, alls ekki
prófað það og mun ekki gera það,“
segir hann og ítrekar að Guzzi sé
harla ólíkur honum sjálfum.
„Ég er samt flippaður og hef
gaman að Eurovision, en ég er
ekki eins ótrúlega ruglaður og
hann.“
Ótrúlega Youtube-vænn
Baldvin Z, leikstjóri
myndbandsins, segir
Draupni fæddan í
hlutverk Guzza.
„Hann er ótrúlega
flottur í hlutverkinu
– mjög Youtube-
vænn,“ segir hann
og hlær. „Þetta var
mjög skemmtilegt
verkefni.“
Draupnir Rúnar slær í gegn sem Guzzi í myndbandi Eurobandsins
Flipp sem þróaðist í
tónlistarmyndband
Eurobandið frumsýndi
myndband við framlag Ís-
lands í Eurovision í gær.
Aðalleikari myndbands-
ins hefur slegið í gegn
sem hinn ofurhressi
Guzzi.
24stundir/Golli
Þaulvanur Draupnir var kynnir á
árshátíð Kennaraháskólans í febrúar.
Hann útskrifast sem kennari í vor.
Leikstjórinn Baldvin Z er
hæstánægður með Draupni
í hlutverki Guzza.
HEYRST HEFUR …
Björgvin Halldórsson kemur fram í tónleikasaln-
um Cirkus í Kaupmannahöfn í næstu viku.
Skemmtunin verður svipuð og sú sem Bó hefur fyllt
Laugardalshöllina með undanfarin ár, sem ætti að
fara vel ofan í Íslendinga og danska vini þeirra. Nú
heyrist að Friðrik Ómar, Regína Ósk og Euroband-
ið verðið sérstakir heiðursgestir á tónleikunum og
munu þau að sjálfsögðu telja í This is my Life. afb
… Fyrst við erum að tala um Björgvin Halldórsson,
þá er gaman að segja frá því að rauðhærði rokk-
arinn Eiríkur Hauksson tekur lagið Þó líði ár og öld
í Bandinu hans Bubba í kvöld. Flestir bjuggust við
að kappinn myndi renna í vel valdan bárujárns-
rokkslagara, en Eiríkur er með fjölhæfari söngv-
urum þjóðarinnar og fer örugglega létt með að feta
í fótspor meistara Björgvins. afb
Hlustendaverðlaun FM957 verða haldin hátíðleg í
Háskólabíói 3. maí næstkomandi. 24 stundir sögðu
frá því á miðvikudag að líklegt þætti að Sprengju-
höllin, Merzedes Club og Páll Óskar kæmu fram.
Það stenst allt, en nú er komið í ljós að Gus Gus,
Bloodgroup, Haffi Haff og hinir ódauðlegu dáða-
drengir í hljómsveitinni Ný dönsk, með Björn Jör-
und í fararbroddi, koma einnig fram. afb
„Þið ættuð nú kannski frekar að
spyrja af hverju í andsk… FM 957
fær svona mikla hlustun. Hvað er
að fólki?“ spyr Þorkell Máni Pét-
ursson, útvarpsmaður á X-inu 977.
Rokkútvarpsstöðin X-ið 977,
sem segir alla aðra tónlist en rokk-
tónlist vera viðbjóð, mælist aðeins
með 2,2% hlustun fólks á aldr-
inum 12 til 49 í Capacent könnun
vikuna 31. mars til 6. apríl.
Jafn vinsælir og enski boltinn
„Hlustun á X-ið er með ein-
dæmum góð,“ segir Máni kok-
hraustur. „Það er ekki til sú jað-
arstöð í heiminum sem er með jafn
mikla hlustun og X-ið. Það eru
svipað margir að hlusta á X- ið
í hverri viku og eru að
horfa á enska boltann.“
Máni kannast ekki
við að fólk sé hætt að
fíla rokk. „Rokk-
tónlist er spiluð mikið
á FM, Bylgjunni og
Rás 2. Vinsælustu tón-
listarmennirnir á
Bylgjunni og FM í dag
eru tónlistarmenn
sem X-ið byrjaði að
spila fyrir 10 árum.
En ef þig langar að
heyra það sem er nýjast, ferskast
og mest töff í tónlist í dag, þá
hlustar þú á X-ið 977.“
Brynjar Már Valdimars-
son er tónlistarstjóri FM
957. „Rokkið er orðið
mainstream, sem vinnur
gegn stöðvum eins og X-inu
sem sérhæfa sig í rokki,“ seg-
ir hann. „En þeir eiga pottþétt
eftir að bæta sig í könn-
unum.“
traustis@24stundir.is
X-ið 977 mælist með litla hlustun
Rokkið vinnur
gegn rokkstöðinni
Þorkell Máni Hefur litlar áhyggjur af
stöðu mála, rokkið muni ávallt lifa.
Brynjar Már á FM957
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
7 5 1 8 9 4 6 3 2
8 9 3 1 2 6 4 7 5
6 2 4 5 3 7 9 1 8
9 3 5 6 4 8 1 2 7
4 6 7 2 5 1 3 8 9
1 8 2 9 7 3 5 4 6
2 4 8 3 6 5 7 9 1
3 1 6 7 8 9 2 5 4
5 7 9 4 1 2 8 6 3
Er í lagi að hann Himmi velji sér vinkonu?
24FÓLK
folk@24stundir.is a
Nei en við bíðum spenntir við sím-
ann. Við erum allir kúnnar hjá
Vodafone og erum tilbúnir með lagið
Stærstir um allt land.
Er Vodafone búið að vera í sambandi varðandi myndbandsgerð?
Guðfinnur Karlsson er einn söngvara í Dr. Spock, sem lenti í
þriðja sæti í Eurovision-forkeppni Íslands. Vodafone er eina
símafélagið sem ekki hefur gert myndband við eitthvert
Laugardagslaganna. Síminn gerði myndband fyrir Merze-
des Club og Nova gerði myndband fyrir Eurobandið.
VIÐ RÝMUM TIL
15-70% AFSLÁTTUR
FÖSTUDAG OG
LAUGARDAG.
ÞAÐ VORAR