24 stundir - 18.04.2008, Blaðsíða 11
24stundir FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 11
SIMPLY CLEVER
FJÖLSKYLDUBÍLLINN
SEM EYÐIR SVO
MIKLU MIKLU MINNA.
Skoda Octavia 1,9 TDI® - 4,9 lítrar á hundraðið
Skoda Octavia er vandaður og ríkulega útbúinn verðlaunabíll í fullri stærð
með pláss fyrir alla fjölskylduna og rúmgott farangursrými. Nýja TDI®
dísilvélin, skilar miklu og jöfnu afli og býr yfir frábærum aksturseiginleikum.
Skoðaðu Skoda Octavia - bílinn sem eyðir svo miklu miklu minna.
HEKLA Laugavegi 172-174 · Sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranes · Ísafjörður · Reyðarfjörður · Reykjanesbær · Selfoss
Mikail Saakashvili Georgíufor-
seti krefst þess að Rússland falli frá
áformum um aukin tengsl við tvö
héruð innan Georgíu sem hafa lýst
sig óháð stjórnvöldum í Tíblisi.
Svæðin eru í norðanverðri
Georgíu, við landamæri Rússlands.
Vladimír Pútín, fráfarandi Rúss-
landsforseti, gaf á miðvikudag út
tilskipun sem styrkti tengsl Rúss-
lands við héraðsstjórnir Abkasíu og
Suður-Ossetíu. Þetta þykir
Georgíumönnum benda til þess að
Rússar séu að seilast til valda í hér-
uðunum, sem þeir segja stangast á
við alþjóðalög.
„Við krefjumst þess að Rússland
dragi til baka allar ákvarðanir sem
ganga gegn fullveldi Georgíu,“
sagði Saakashvili á ríkisstjórnar-
fundi. andresingi@24stundir.is
Rússar og Georgíumenn deila
Rússar sakaðir um
að næla sér í héruð
Fólk sem neytir meira en
tveggja áfengra drykkja á
dag greinist fimm árum
fyrr með Alzheimer-
sjúkdóminn en þeir sem
ekki drekka, að því er
fram kemur í nýlegri
bandarískri könnun.
Vísindamenn skoðuðu
lífsmynstur nærri 1.000
einstaklinga sem nýlega
höfðu greinst með sjúk-
dóminn. Drykkjufólk var að meðaltali 4,8 árum yngra þegar það
greindist en bindindisfólk og þeir sem reyktu einn sígarettupakka á
dag 2,3 árum yngri en hinir reyklausu. Ennfremur voru áhrif hins svo-
kallaða Alzheimer-gens, APOE, skoðuð. Reyndist það valda því að
sjúkdómurinn greindist 2,3 árum fyrr en ella. Þeir sem höfðu alla þrjá
áhættuþættina voru að meðaltali 68,5 ára þegar þeir greindust með
Alzheimer, en þeir sem höfðu engan þeirra voru 77 ára. aij
Drykkja flýtir fyrir Alzheimer
Skoskir vísindamenn vonast til að
geta notfært sér nýjustu tækni til
að bjarga hvítum nashyrningum í
Austur-Kongó frá útrýmingu.
Tegundin er ein sú sjaldgæfasta í
heimi, en talið er að aðeins 13
einstaklingar lifi í Afríkuríkinu.
Bob Millar, líffræðingur við Ed-
inborgarháskóla, hefur lagt til að
erfðatækni verði beitt til að
hjálpa nashyrningunum. Myndi
það fela í sér að blanda saman
stofnfrumum úr nashyrning-
unum við frumur úr náfrændum
þeirra sunnar úr álfunni.
„Þetta eru mjög metnaðarfull
áform. Ef okkur tekst vel upp, þá
gæti það orðið bylting í verndun
þessarar tegundar sem er við það
að hverfa,“ segir Millar. Vonast
hann til að tæknin geti nýst til að
bjarga fleiri tegundum frá útrým-
ingu, ef vel gengur með nashyrn-
ingana. aij
Nashyrningum
komið til bjargar
Grænlenska landstjórnin hefur til
umsagnar frumvarp um algjört
reykingabann í opinberum bygg-
ingum, þar á meðal öldurhúsum,
veitingastöðum og kaffihúsum.
Arkalo Abelsen, sem fer með heil-
brigðismál í landstjórninni, telur
fátt standa í vegi fyrir því að
frumvarpið hljóti brautargengi.
Ef frumvarpið verður að lögum
tekur það gildi 1. janúar 2010. aij
Reykingabann á
Grænlandi
Skoskur dómstóll féllst ekki á að
fyrrverandi kennari ætti heimt-
ingu á skaðabótum vegna aðkasts
sem hann varð fyrir í starfi vegna
þess að hann var sköllóttur.
Kennarinn hafði stefnt skóla-
yfirvöldum fyrir mismunun
vegna fötlunar. „Mér þykir þurfa
að teygja skilgreininguna á fötlun
fulllangt til að hárleysi falli undir
hana,“ sagði dómarinn. aij
Skalli er
ekki fötlun
Sprengja sprakk utan við skrif-
stofur stjórnarflokks Spánar í
borginni Bilbaó í gær. Sjö lög-
reglumenn særðust og nokkurt
eignatjón varð. Aðskilnaðarhreyf-
ing Baska, ETA, er grunuð um
verknaðinn.
Klukkutíma áður en sprengjan
sprakk barst lögreglu tilkynning
um grunsamlega tösku sem á stæði
„Varúð, sprengja!“
Sósíalistaflokkur Josés Luis Rodriguez Zapateros forsætisráðherra tók
við völdum í fyrradag, en í kosningabaráttu sinni lagði Zapatero ríka
áherslu á að hann myndi taka hart á glæpum ETA. aij
Sprengjuárás á Spáni