24 stundir - 18.04.2008, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-umhverfisvænn ferðamáti
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Besta lausnin á yfirvofandi vandamáli
væri að undirbúa sölu bankanna … til
erlendra bankasamstæðna. Spurningunni
um gjaldmiðil verður þá auðvelt að svara.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Verðhjöðnun erlendra eigna ís-
lensku viðskiptabankanna getur
orðið til þess að setja þá í mikil
vandræði. Komi til gjalþrota bank-
anna mun hið opinbera vegna
smæðar sinnar þó ekki geta hjálpað
svo mikið sem einum þeirra. Þessu
heldur Daniel Gross, forstjóri Mið-
stöðvar Evrópurannsókna (CEPS),
fram í nýlegri grein.
Gross bendir á að íslensku bank-
arnir séu mjög háðir erlendu
lánsfé. Bankarnir hafi tekið lán til
að fjármagna kaup á erlendum
bankaeignum, þegar mikil upp-
sveifla hafi verið í banka- og fjár-
málageirum um allan heim. Nú
þegar verðmæti eigna í bönkum og
fjármálafyrirtækjum hafi rýrnað, sé
hætta á að bankarnir hafi keypt
eignir sínar á yfirverði.
Vaxnir yfir hið opinbera
Ef sú er raunin muni erlendar
skuldir umfram eignir aukast tölu-
vert, sem gæti jafnvel endað með
gjalþroti bankanna. Hvorki fjár-
málaráðuneytið né Seðlabanki Ís-
lands geti hlaupið undir bagga með
bönkunum, enda eignir bankanna
á við áttfalda verga landsfram-
leiðslu Íslands.
„Besta lausnin á yfirvofandi
vandamáli væri að undirbúa sölu
bankanna … til erlendra banka-
samstæðna,“ segir Daniel Gross.
„Spurningunni um gjaldmiðil
verður þá auðvelt að svara.“
Grétar Már Axelsson hjá grein-
ingardeild Glitnis segir ekki rétt að
verðhjöðnun erlendra eigna ís-
lensku viðskiptabankanna sé líkleg
til að koma þeim í vandræði.
„Bankarnir hafa verið að kaupa er-
lendar eignir undanfarið, en þær
eru mjög lítill hluti af heildareigna-
safni þeirra. Tvö til fjögur ár eru
síðan stærstu yfirtökum bankanna
lauk, og rekstur þeirra fyrirtækja er
góður og þau hafa staðið undir
þeirri arðsemiskröfu sem gerð var.“
Þá segir Grétar ástæðulaust að
óttast að hið opinbera sé of lítið
fyrir bankana, enda standi þeir vel
og engin þörf á að bjarga þeim.
Engu að síður virki yfirlýsingar
ráðamanna um að stutt verði við
bankana vel, þar sem hið opinbera
geti komið til aðstoðar með ýmsu
móti ef svo ólíklega vill til að illa
fari hjá bönkunum.
Krónan veldur sveiflum
Daniel Gross bendir í grein sinni
einnig á að hér á landi séu geng-
issveiflur oft uppsprettur sveiflna á
hlutabréfamarkaðnum, sem bendi
til þess að þegar gengið lækki eigi
fyrirtæki í erfiðleikum með að
greiða af erlendum skuldum sín-
um. Í flestum öðrum löndum virki
gjaldeyrismarkaðurinn sem demp-
ari í sveiflur á hlutabréfamarkaðn-
um og öfugt.
Hann telur því að upptaka evru
gæti orðið til þess að auka stöð-
ugleika á íslenskum fjármálamark-
aði.
Dómsdagsspá
um bankana
Segir bestu lausn á yfirvofandi vanda að selja bankana úr landi
Fer illa saman? Gross
telur bankana of stóra fyrir
hið opinbera og krónuna.
➤ Verðmæti eigna íslensku við-skiptabankanna nemur átt-
faldri vergri landsframleiðslu
Íslands.
➤ Hlutfall útlána á móti inn-lánum er mun hærra í íslensk-
um bönkum en víðast hvar.
➤ Illa gæti farið fyrir íslenskubönkunum vegna alþjóð-
legrar verðhjöðnunar í fjár-
málageirum, segir Gross.
OFVAXNIR BANKAR?
MARKAÐURINN Í GÆR
! "##$
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>?@AABC
?A5C3@3>
B@5A4@4?@
@A@DBB3@
B5@?5CCC>B
?>C454?
B4B@B?5A
?D4@A?5@?
34B5>??>3D
C?>D>AA
CDAB3>33C
3@@BC?DDB
B3553>B>
34A?AAA
,
4?AAAAA
?3??BA
D34D?C
C?D@?B@
4AAAA
35>53C@
,
CC4BCAA
?@?B3BD
,
,
C43B?5AAA
,
,
?E3@
DBEAA
CCE@4
4E5?
C4E>5
BBE>A
BDEAA
@3CEAA
3AE4A
@>E?A
5EB5
CBEBB
DEC3
>CE4A
CE34
4E45
B33EAA
C3?DEAA
345EAA
AE?B
CDAEAA
,
,
?ECA
,
,
53?AEAA
,
,
?EDA
DBEDA
CCE>B
4E44
C?EAA
B3EC5
BDEBA
@34EAA
3AE>A
>AEDA
5EB>
CBEB4
DEC>
>BE4A
CE3@
4E?A
B5AEAA
C3@5EAA
3?5EAA
AE?3
CDDE5A
CE@A
BCE>A
@EDA
,
,
55CAEAA
CBEAA
4EAA
/
- >
BB
5>
33
@>
@
?
D>
55
?
DB
53
C4
5
,
C
C
B
B
C
CD
,
D
C
,
,
CA
,
,
F#
-#-
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
CDDBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
C?DBAA@
CA3BAA@
C?DBAA@
C4DBAA@
4CBBAA?
BB@BAA?
C?DBAA@
BDBAA@
?3BAA@
● Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Landsbank-
ans, fyrir um 3,6 milljarða. Verslað
var með bréf í Glitni fyrir um 2,6
milljarða og bréf í Kaupþingi fyrir
um 747 milljónir.
● Mesta hækkunin var á bréfum
Century Aluminum Com, 1,59%,
og Landsbankans, eða 1,48%.
● Mesta lækkunin var með bréf í
Teymi hf., eða 4,34%. Bréf í
SPRON lækkuðu um 3,64%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,40% í gær og stóð í 5.233.99
stigum í lok dags.
● Íslenska krónan veiktist um
1,06%.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 4,0% í gær. Breska
FTSE-vísitalan lækkaði um 1,1%
og þýska DAX-vísitalan um 0,3%.
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s
hefur lækkað lánshæfiseinkunnir
ríkissjóðs á erlendum lang-
tímaskuldbindingum í A úr A+ og
á langtímaskuldbindingum í ís-
lenskum krónum í AA- úr AA.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá Seðlabanka Íslands.
Einkunnir fyrir skammtímaskuld-
bindingar í erlendri mynt, A-1, og
íslenskum krónum, A-1+, voru staðfestar.
Þá lækkaði matsfyrirtækið lánshæfismat Íbúðalánasjóðs vegna lang-
tímaskuldbindinga í íslenskum krónum í A+ úr AA- með neikvæðum
horfum. Jafnframt var lánshæfiseinkunn vegna langtímaskuldbind-
inga í erlendri mynt lækkuð í A úr A+ með neikvæðum horfum. Láns-
hæfiseinkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum
lækkuð í A-1 úr A-1+ en einkunn fyrir skammtímaskuldbindingar í er-
lendri mynt A-1 var staðfest. mbl.is
Lánshæfismatið lækkar
Skuldatryggingaálag ríkisins og
íslensku bankanna hefur lækkað
mikið frá síðustu mánaðamótum
en þá náði það hæstu hæðum.
Álag á skuldatryggingar íslenska
ríkisins til næstu fimm ára er nú
260 punktar en var 410 punktar í
byrjun apríl. Skuldatryggingaálag
Kaupþings er nú 710 punktar en
það náði hámarki um síðustu
mánaðamót og var þá 1.050
punktar. Álag á skuldatryggingar
Glitnis er nú 720 punktar og álag
á skuldatryggingar Landsbankans
stendur í 400 punktum. Greint er
frá þessu í Morgunkorni Grein-
ingar Glitnis.
Álagið hafði hækkað umtalsvert á
síðustu mánuðum fram til þess
að það lækkaði nú og talið er að
það megi rekja til þess áhlaups
sem talið er að hafi veið gert á ís-
lenska hagkerfið. fr
Skuldatrygg-
ingaálag lækkar
Í mars námu samanlögð heildar-
útlán innlánsstofnana og Íbúða-
lánasjóðs rúmum 4,5 milljörðum
króna. Helmingssamdráttur
heildarútlána er á milli ára og
halda útlán innlánsstofnana
áfram að vera með minnsta móti,
eða síðan bankar fóru að veita
íbúðalán haustið 2004. Þetta
kemur fram á vef Kaupþings.
Íbúðalán drag-
ast enn saman
Norska flugfélagið Norwegian er
orðið stærsta lággjaldaflugfélag
Norðurlanda en danska félagið
Sterling, sem er í eigu Íslendinga,
hefur skartað þeim titli til þessa.
Velta Norwegian var 4,2 millj-
arðar norskra króna á síðasta ári
en velta Sterling 4,1 milljarður,
að sögn Berlingske Tidende.
Norwegian stærsta norræna
lággjaldaflugfélagið
Franska einkasjónvarpsstöðin
TF1 hefur höfðað mál gegn net-
svæðinu YouTube, sem birtir
myndskeið frá almenningi, og
krefst 100 milljóna evra skaða-
bóta, jafnvirði 11,8 milljarða
króna, vegna misnotkunar á höf-
undarréttarvörðu sjónvarpsefni.
mbl.is
Kæra YouTube