24 stundir - 18.04.2008, Page 14

24 stundir - 18.04.2008, Page 14
14 FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Björg Eva Erlendsdóttir Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Þingmenn Samfylkingarinnar voru eitthvað feimnir á Alþingi í fyrradag við að viðurkenna að þeir teldu koma til greina að taka upp skólagjöld í Há- skóla Íslands og öðrum háskólum á vegum hins opinbera. Einar Már Sig- urðsson, varaformaður menntamálanefndar þingsins, vildi skoða málið „fordómalaust“. Aðrir þingmenn Samfylkingarinnar þvertóku fyrir að nokkurn tímann yrðu tekin upp skólagjöld við opinbera háskóla. Samfylkingarfólk á ekki að vera feimið að ræða um skólagjöld. Sumir í flokknum, t.d. Stefán Jón Hafstein, hafa fært góð rök fyrir að það sé sjálfsagt að fólk greiði hluta af menntun sinni með auknum framtíðartekjum í krafti þeirrar sömu menntunar, að því gefnu að lánað sé fyrir skólagjöldunum. Samkeppnisstaða Háskóla Íslands gagnvart öðrum háskólum er gerð erf- iðari með því að heimila honum ekki að innheimta skólagjöld. Skólinn mun aldrei komast í hóp þeirra 100 beztu í heimi án þess að hafa þann möguleika. Vinstri grænir eru úti að aka, þegar þeir leggja til að jafna aðstöðumun milli háskóla með því að lækka ríkisframlagið til sjálfstæðu háskólanna. HÍ er ekki síður í samkeppni við erlenda háskóla en íslenzka. Myndi það eitthvað hjálpa honum í þeirri samkeppni að svelta sjálfstæðu skólana? Egill Helgason sjónvarpsmaður sagði á bloggi sínu að ekki ætti að taka mark á andófi stúdenta gegn skólagjöldum; þeir væru bara í hagsmunabar- áttu. Þessi orð fóru fyrir brjóstið á Björgu Magnúsdóttur, formanni Stúd- entaráðs HÍ, sem skrifaði hér í blaðið í gær. Auðvitað á að hlusta á fulltrúa allra hagsmuna. Stúdentaráð HÍ er bara að berjast fyrir vitlausum hagsmunum. Það er að berjast fyrir skammtímahags- munum námsmanna, sem sjá ofsjónum yfir því að borga skólagjöld þótt þúsundir jafnaldra þeirra geri það án þess að kvarta í einkareknum háskól- um. Raunveruleikinn er sá að skólagjöld eru í þágu stúdenta. Þau munu bæta menntun þeirra til lengri tíma litið. Þeir fá lán fyrir gjöldunum og munu aldrei borga þau lán að fullu til baka, vegna þess að þau eru að stórum hluta styrkur. Þeir munu þó borga meira ef þeir hafa háar tekjur, sem er sanngjarnt. Stúdentar, sem borga skólagjöld, geta verið kröfuharðari á gæði kennslunnar og aðstöðu í skólanum. Og slugsararnir, sem taka sér mörg ár í námið, taka síður upp pláss fyrir öðrum ef skólagjöldum verður komið á. Því miður er það stundum eðli hagsmunasamtaka að standa vörð um hagsmuni þeirra lötu, á kostnað hags- muna þeirra duglegu. Þingmenn eiga ekki að vera feimnir við að andmæla slíkri hagsmunagæzlu. Ekki vera feimin SÆKTU LEIÐARANN Á WWW.MBL.IS/PODCAST Það er algjörlega útilokað að átta sig á hvert Sjálfstæðisflokk- urinn er að stefna í REI-málum. Við hlustuðum á 6-menningana fordæma Hauk Leósson, Vil- hjálm og Binga í haust með leiftr- andi yfirlýsingar um sannfæringu sína um að fyr- irtæki í al- mannaeigu ættu ekki að vera að þvælast á samkeppnismarkaði, þar ætti einkaframtakið að vera. Ef einhverjir aurar væru aflögu í OR þá væri nær að lækka gjaldskrá og láta eigendur OR njóta þess að fyrirtæki sem þeir eigi gangi vel. Almenningi of- bauð … Guðmundur Gunnarsson gudmundur.eyjan.is BLOGGARINN Hvert stefnir? Enginn borgarfulltrúi treysti sér til að segja 24 stundum frá verktökum, sem studdu fram- boð þeirra. Af því má ráða, að sumir borg- arfulltrúar hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Borgin hefur margoft sett kík- inn fyrir blinda augað, þegar verktakar og skyldir aðilar fá aukinn byggingarétt. Erlendis er það talið þyngsti þáttur póli- tískrar spillingar. Hér á landi er ekki skylt að gefa upp fjár- framlög einstaklinga. Þess vegna gefa fyrirtæki fé í nafni einstakra starfsmanna til að fela framlögin. Jónas Kristjánsson jonas.is Þagnarmúr Ég tek undir með leiðarahöfundi Morgunblaðsins í morgun. Þar er hvasst ritað en þau skrif eru heið- arleg og rétt. REI- málið er auðvitað til skammar fyrir Sjálfstæðisflokk- inn, er ein mesta skömm flokksins í tæplega 80 ára sögu hans. Með því máli og mis- tökum tengdum því klúðraði Sjálfstæðisflokk- urinn því að taka völdin sannfær- andi og traust eftir tólf ára valda- tíð R-listans. Viðtal Kastljóss sýndi hringlandahátt Sjálfstæð- isflokksins með forystu REI enn í dag. Það er eðlilegt að því sé velt fyrir sér hvort eigi að fara í land- vinninga á erlendri grund … Stefán Friðrik Stefánsson stebbifr.blog.is Til skammar Ólafur Þ. Stephensen olafur@24stundir.is Í gær var frétt í 24 stundum um að stór- auka ætti kornrækt hér á landi þannig að hún dygði að mestu til búvöruframleiðslu. Fram kom hjá svínabónda að til að það væri hægt þyrfti að koma til stuðningur hins opinbera og þá væntanlega í formi beingreiðslna til kornframleiðenda. Þrátt fyrir að þessi búgrein njóti ekki opinbers stuðnings nú segir hann að um 70% þess fóðurs sem hann notar sé innlent. Hvers vegna þarf þá styrki? Ingvar Björnsson jarð- ræktarráðunautur bendir réttilega á að miklar hækk- anir hafi orðið á heimsmarkaðsverði kornvara og að staðan sé „sú að kornframleiðsla hér á landi er orðin vel samkeppnisfær við innflutt fóður“. Menn hljóta að hlusta á orð sem þessi enda ekki útlit fyrir að heims- markaðsverð á korni lækki á nýjan leik. Það er fagn- aðarefni þegar nýjar vörur eru framleiddar hér á landi eða þegar grundvöllur er fyrir framleiðsluaukningu. Ef það er ekki hægt án þess að greiða þær niður af al- mannafé er hagkvæmnin rokin út um gluggann. Ástæða er til þess að minna á að íslenskur landbún- aður nýtur meiri opinbers stuðnings en landbúnaður í öðrum löndum gerir og það þrátt fyrir að stuðning- urinn sé fyrst og fremst við tvær búgreinar; sauðfjár- framleiðslu og mjólkurframleiðslu. Stuðningur stjórn- valda við aðrar búgreinar er fyrst og fremst fólginn í vernd með ofurtollum. Íslensk stjórnvöld hafa und- irgengist ákveðnar skuldbindingar vegna samninga okkar við Alþjóðaviðskiptastofnunina, m.a. að draga úr stuðningi við innlendan landbúnað. Ekki verður séð að rými sé fyrir að taka upp stuðning við kornrækt nema þá aðeins að dregið yrði úr beinum stuðningi við þær greinar sem nú þegar njóta slíks. Auk þess er ástæða til þess að hafa miklar efa- semdir um þjóðhagslega hagkvæmni þess að auka kornrækt hér á landi með því að taka upp styrki við þessa grein. Minnt er á að neytendur greiða niðurgreiddar landbúnaðarvörur á tvennan hátt, með buddunni og sköttum. Staða neytenda er sú að þeir þola ekki frekari álögur, hvort heldur það er í gegnum matvælaverð eða aukna skatta. Höfundur er formaður Neytendasamtakanna Enn sótt í buddu neytenda? ÁLIT Jóhannes Gunnarsson jg@ns.is

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.