24 stundir - 18.04.2008, Page 29

24 stundir - 18.04.2008, Page 29
24stundir FÖSTUDAGUR 18. APRÍL 2008 29 Það þarf ekki að leita langt yfir skammt að gólfefnum því í Álfa- borg fæst allt á gólfið á einum stað, að sögn Kolbeins Öss- urarsonar hjá Álfaborg. Fyrirtækið Gólfefni Teppaland sameinaðist nýlega Álfaborg og þar má því finna mikið úrval af teppum, dúkum og mottum ásamt flísum, parketi og fleira. Kolbeinn segir að parket og flísar séu alltaf vin- sælar á gólfið en teppin séu að koma sterk inn aftur. „Nú er líka mikil aukning í gólfdúkum, sem ég held að tengist efnahags- ástandinu þar sem dúkar eru ódýrari. Af flísum þá eru það stórar flísar sem eru vinsælastar og helst dökkar eða ljósar. Þessir tveir litir hafa verið ráðandi í nokkurn tíma og eru það enn. Við bjóðum alltaf upp á eitthvað nýtt en þetta er það sem fólk leit- ar að og arkitektarnir benda á. Við erum með alls kyns flísar í öllum verðflokkum og stærðum, allt frá litlum mósaíkflísum yfir í stærstu gerðir af flísum,“ segir Kolbeinn og bætir við að flísar hafi orðið vinsælli aftur eftir að gólfhiti varð algengari. „Gólfhiti og flísar eiga afskaplega vel saman því hitaleiðnin er svo góð í flís- unum. Parketið aftur á móti ein- angrar hitann ofan í gólfinu. Það hefur helst verið talið flísunum til foráttu að þær séu kaldar en þeg- ar það er gólfhiti þá er gólfið bæði fallegt og hlýtt.“ Kolbeinn segir að sumir hafi sömu flísar innan- og utandyra. „Í dag eru nánast allar flísar gegn- heilar og þá er vatnsdrægnin lág í þeim sem þýðir að það má nota þær úti. Þess utan eru nánast allar gólfflísar í dag orðnar frostheldar. Þá er þetta bara spurning um yf- irborðið, hvort þær séu sléttar eða hrjúfar en oft eigum við sléttar og hrjúfar af sömu gerð og þá er hægt að vera með sama litinn með mismunandi áferð.“ Í Álfaborg fæst allt á gólfið á einum stað Dökkar og ljósar flísar vinsælastar Álfaborg Með gólfhita eru flísar bæði smekklegar og hlýjar ásamt því að henta jafnt innan- sem utandyra. KYNNING Gljúfrasteinn var reistur árið 1945 og arkitekt hússins var Ágúst Pálsson. Húsið skal vera laust við allt tildur, hafði Halldór sagt um teikningu hússins. Afar sérstakt þótti þegar Halldór lét byggja sundlaug í garðinum enda lítil for- dæmi fyrir slíku. Oft var gestkvæmt á Gljúfrasteini og er enn í dag í safni Halldórs Laxness eftir að unnið var að end- urbótum á húsinu. Sveitasetur laust við tildur Til að skreyta heimili sitt á fallegan og skemmtilegan hátt er stundum nauðsynlegt að gefa sköpunargáf- unni lausan tauminn og hugsa að- eins út fyrir þennan hefðbundna ramma. Af hverju er til dæmis nauðsynlegt að hafa myndir í myndarömmum? Þrátt fyrir að alls kyns myndir séu vissulega fallegar þá getur líka verið fallegt að hengja tóma ramma á vegg, á skipulegan hátt. Að hugsa út fyrir rammann Nú er það ekki bara ríka fólkið í Bandaríkjunum sem býr í glæsi- legu húsnæði heldur líka hundar þess. Fyrirtækið La Petite Maison sérhannar lúxushundakofa utan um gæludýrið sem kosta á bilinu 1,2 til 1,6 milljónir íslenskra króna. Hér má sjá eitt slíkt sem fyrirsætan Rachel Hunter lét byggja utan um hundinn sinn, en húsið er nákvæm eftirlíking af húsi í Miðjarðarhafs- stíl. Lúxushundakof- ar á milljónir Danskir Fataskápar Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 www.hirz lan. is 59.100 á miklu betra verði! 85.600 97.600 47.300 Hornskápur Rennihurðir 82.300 Flex eru vandaðir fataskápar framleiddir í Danmörku. Þeir eru fáanlegir í hvítu, eik, kirsuber, hlyn og svarbrúnu (coffee). Flex byggist á raðkerfi, 50 cm og 100 cm einingum sem hægt er að raða saman að vild.

x

24 stundir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.