24 stundir


24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 4

24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir OG EINN, TVEIR OG REYKJAVÍK! www.reykjavik.is sími: 411 11 11 SAMRÁÐ UM BETRA BORGARUMHVERFI Lokakostnaður vegna kaupa, viðgerða og endurbóta á nýrri Grímseyjarferju var samtals 533 milljónir króna samkvæmt loka- skýrslu Vegagerðarinnar sem birt var í gær. Þegar ríkisstjórn Íslands veitti heimild til kaupanna fyrir þremur árum var heildarkostnaður áætlaður 150 milljónir. Endanlegur kostnaður er því 383 milljónum hærri en upphaflega stóð til. Vega- gerðin ákvað að skila eigin grein- argerð um framkvæmdina eftir að kolsvört skýrsla Ríkisendurskoð- unar um hana var birt í ágúst í fyrra. Í greinargerðinni segir að upphafleg markmið hafi náðst, en að ýmislegt hefði mátt fara betur. Að mati hennar hefði til dæmis átt að skipa verkefnishóp strax í upp- hafi, skoða hefði átt skipið betur áður en gengið var frá kaupum á því, hönnunargögn hefðu þurft að vera nákvæmari og gera hefði þurft meiri kröfur til verktaka. Þá segir einnig að héðan í frá þurfi að gera verklagsreglur um gerð kostnaðar- áætlana, tryggja að gert sé áhættu- og óvissumat og að upplýsingagjöf til samgönguráðuneytisins sé formlegri. Vanhirt og hrörlegt hræ Í ágúst í fyrra var sagt frá skýrslu sem Ólafur Briem skipaverkfræð- ingur vann um skipið tveimur mánuðum áður en það var keypt hér í blaðinu, en hann hafði ásamt fleirum farið utan að skoða það. Í skýrslunni segir orðrétt að ástand skipsins hefði verið „í einu orði sagt hrörlegt sökum vanhirðu og skorts á viðhaldi.“ Hann sagði að ef ástand þess væri með þeim hætti að kaupverð að endurbóta- og við- gerðarkostnaði meðtöldum væri lægra en 240 milljónir króna væri um áhugaverðan valkost að ræða fyrir Vegagerðina samanborið við nýsmíði á skipi. Skipið var hins vegar keypt á 103,6 milljónir í nóv- ember sama ár. þsj Vegagerðin birtir greinargerð vegna kaupa, viðgerða og endurbóta á nýrri Grímseyjarferju Lokakostnaður 533 milljónir króna Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is Vegagerðin og Ístak hf. skrifuðu í gær undir samning þess efnis að Ís- tak ljúki við tvöföldun Reykjanes- brautar á 12,2 kílómetra löngum kafla frá Strandarheiði til Njarðvík- ur. Vinna við tvöföldun þess kafla hefur legið niðri frá því í desember þegar upphaflegi verktakinn, Jarð- vélar, sagði sig frá því vegna fjár- hagsörðugleika. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinn- ar, mun Ístak hefjast handa við verkið á mánudag og er áætlað að unnt verði að ljúka veglagningunni 16. október næstkomandi. Upphaf- lega áttu verklok að vera í júlí. Uppfylltu ekki kröfur Tilboð Ístaks var upp á 807 millj- ónir króna. Litháíska verktakafyrir- tækið Adakris hafði ásamt Topp- verktökum átt lægra tilboð, 699 milljónir, en G. Pétur segir þá ekki hafa uppfyllt kröfur Vegagerðarinn- ar. „Meginkrafan sem þeir stóðust ekki er svokölluð 50 prósenta regla þar sem þeir þurftu að sýna fram á að þeir hefðu unnið verk sem var 50 prósent af þessari stærð. Verkið sem þeir gáfu upp var stærra en þetta í krónutölu en var unnið á svo mörg- um árum að það uppfyllti ekki kröf- ur okkar. Svo voru fleiri smærri at- riði sem þeir uppfylltu ekki heldur.“ Undirverktaki vegna malbikunar verður Hlaðbær-Colas malbikunar- stöð og eftirlit verður í höndum Mannvits hf. Vegagerðin mun einn- ig sinna eftirliti með verkinu. G. Pétur segir tafirnar við tvö- földunina hafa í för með sér aukinn kostnað við framkvæmdina. Það sé þó ekki vitað á þessari stundu hversu hár hann er. „Það fylgir þessu alltaf einhver kostnaður, bæði vegna vegmerkinganna sem við settum upp á svæðinu og eins er þetta hærri tilboðsupphæð en upp- haflega var áætlað.“ Slysagildra á síðustu mánuðum Reykjanesbrautin hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu mán- uði vegna varhugaverða aðstæðna sem hafa skapast á framkvæmdar- svæðinu. Þann 14. janúar síðastlið- inn slösuðust sjö manns á Reykja- nesbrautinni, þar af voru fjórir fluttir á sjúkrahús vegna alvarleika meiðsla þeirra. Flest slysin urðu á þeim kafla þar sem framkvæmdir vegna tvöföldunarinnar stóðu yfir. 130% aukning á slysum 24 stundir fjölluðu í kjölfarið um þær slysagildrur sem voru til staðar á veginum. Svæðin við afleggjarana sem liggja að Vogum og Grindavík þóttu sérlega varasöm, en vegna framkvæmdanna voru víða stein- steyptir stólpar og tilfæringar milli vegarhelminga auk þess sem fjöl- margir ljósastaurar lýstu ekki. Þá þóttu merkingar á framkvæmdar- svæðinu alls ekki fullnægjandi. 24 stundir sögðu síðan frá því 10. apríl síðastliðinn að slysum og óhöppum á þeim kafla þar sem framkvæmdirnar standa yfir hefði fjölgað um 130 prósent á þremur árum. Þá höfðu 24 slys og óhöpp orðið á veginum frá því að Jarðvélar sögðu sig frá verkinu. Daginn áður höfðu fjórir slasast alvarlega í hörð- um árekstri sem varð á hjáleið vegna framkvæmdanna þar sem akstursstefnur voru ekki aðskildar. Vegagerðin ákvað í kjölfarið að að- skilja akstursstefnurnar með gát- skiltum. G. Pétur sagði við það til- efni að ekki væri hægt að líta öðruvísi á en að hin mikla fjölgun slysa á kaflanum væri bein afleiðing af aðstæðum þar vegna stöðvuðu framkvæmdanna. Reykjanesbraut tilbúin í október  Vegagerðin samdi við Ístak um tvöföldun Reykjanesbrautar eftir endurútboð  Adakris og Toppverktakar uppfylltu ekki kröfur  Fjölmörg slys hafa orðið á fólki vegna tafanna Tvöföldun Fulltrúar Vegagerðar og Ís- taks skrifa undir samning um verkið. ➤ Alls hafa 56 manns látist íumferðarslysum á Reykjanes- braut frá árinu 1966. ➤ Flest urðu slysin árið 2003þegar fimm manns týndu lífi á veginum.Engin hefur látist á veginum sunnan Hafn- arfjarðar í fjögur ár. SLYS Á REYKJANESBRAUT Upplýsingavefur Já geymir upp- lýsingar um heimilisföng og síma- númer. Auk þess er hægt að velja að sjá á korti staðsetningu þess sem flett er upp. Sé Sundhöll Reykjavíkur slegið upp skriplar hugbúnaðurinn þó á skötunni því hún er sögð til húsa á horni Eiríksgötu og Barónsstígs en ekki við Bergþórugötu þar sem hún hefur verið undanfarið 71 ár. Stefán Guðlaugsson hjá Samsýn sem sér um kortin fyrir vef Já segir vandamál sem þetta stundum koma upp. „Þetta er vegna skrán- ingarinnar. Flest önnur fyrirtæki og einstaklingar hafa heimilisfang sem samanstendur af götunafni og húsnúmeri en Sundhöllin hefur ekkert húsnúmer heldur er bara sögð við Barónsstíg. Þá gerist það að leitarvélin staðsetur hana við miðja götuna,“ segir hann og bætir við að yfirleitt séu það opinberar byggingar sem lenda á svona flakki þar sem fyrir ferst að skilgreina staðsetninguna nákvæmlega. Græni depillinn á myndinni sýnir staðsetningu Sundhallar sam- kvæmt ja.is en sá rauði rétt heim- ilisfang. aak Vefur Já gefur ekki alltaf rétt svar Sundhöllin á ferð Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Neytendasamtökin könnuðu að þessu sinni verð á Fitty Samsölubrauði 500 g. Mikill verðmunur er á þessari vöru og var hæsta verð 96,4% hærra en það lægsta eða 162 króna munur. Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum. 96% munur á Fitty brauði Jóhannes Gunnarsson NEYTENDAVAKTIN Fitty Samsölubrauð 500 gr. Verslun Verð Verðmunur Krónan 168 Nettó 193 14,9 % Spar Bæjarlind 298 77,4 % Hagkaup 308 83,3 % Nóatún 309 83,9 % Samkaup-Strax 330 96,4 %
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.