24 stundir - 03.05.2008, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Sjúkraflutningar
Námsstefna 2. og 3. maí
á Hótel Loftleiðum
Aðgangur ókeypis
Skráning á netfanginu sjukraflutningar@gmail.com
Dagskrá á heimasíðunni http://lsos.is/
Landssamband Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna
● Fyrirlestrar.
● Kynning á námi og búnaði.
● Heilbrigðisráðherra kynnir skýrslu um
framtíðarskipulag sjúkraflutninga.
flugfelag.is
Skráðu þig í
Netklúbbinn
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Félagar í Netklúbbnum
fá fyrstir upplýsingar
um tilboð og nýjungar
í tölvupósti.
Alltaf ódýrast á netinu
www.flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
U
4
16
84
0
4.
20
08
Eftir Andrés Inga Jónsson
andresingi@24stundir.is
07.00 Vaknaði snemma ogvar að sinna heim-
ilinu áður en vinnudagurinn hófst.
9.30 Ég þurfti að fara upp ívinnu til að klára
ræðuna mína.
10.30 Mætti út á flugvöllog flaug til Akureyr-
ar ásamt Jóhannesi Kristjánssyni,
sem er nú ekki leiðinlegur ferða-
félagi. Við fengum okkur að borða
í hádeginu á Akureyri og keyrðum
svo áfram til Húsavíkur.
14.00 Á Húsavík var 900manna stórglæsileg
samkoma. Það var verið að sam-
eina Verslunarmannafélag Húsa-
víkur og Verkalýðsfélag Húsavíkur
í Framsýn, stéttarfélag. Þau voru
með íþróttahúsið undir og mjög
myndarlega dagskrá; Stóran kór,
unglinga sem spiluðu á afrísk
hljóðfæri, hljómsveit, Birgittu
Haukdal, Magna og marga fleiri.
Þetta var mjög vel heppnað, það
var meira að segja búið að semja
baráttusöng fyrir nýja félagið.
Þarna var allt frá litlum börnum og
upp í mjög fullorðið fólk. Þannig
var þetta fjölskylduskemmtun, en
samt með sterku stéttarlegu ívafi.
15.00 Þar hélt ég hátíðar-ræðuna. Ég talaði
um efnahagsástandið og þær spár
sem eru um framhaldið. Fjármála-
kreppu, verðbólgu og þessar efna-
hagslegu hremmingar sem ganga
yfir. Ég lýsti þeirri skoðun minni
að ég telji leiðina út úr þessu vera
náið samráð stjórnvalda og aðila
vinnumarkaðar. Við höfum gert
þetta áður – í þjóðarsáttinni og á
árunum 2001-2. Síðan nefndi ég
umræðuna um aðild að Evrópu-
sambandinu og evru, sem hljómar
eins og það sé ekkert mál að hoppa
inn í ESB og myndi leysa þessi mál.
En ég tel að það sé hreint ekki svo
einfalt. Það er ekkert að því að taka
upplýsta umræðu um málið, en
fleira þarf að koma til. Umræðan
um Evrópusambandið má ekki
draga athyglina frá vandamálun-
um sem við þurfum að leysa hér og
nú.
18.40 Fór vélin í loftið fráAkureyri. Í Reykja-
vík varð ég að fara aftur í vinnuna,
því Morgunblaðið þurfti að fá
ræðuna mína.
20.30 Var ég komin heim.Þá fór ég að tala við
heimilisfólkið og horfði aðeins á
sjónvarpið.
Á faraldsfæti
fyrsta maí
24stundir með Ingibjörgu R. Guðmundsdóttur, formanni
Landssambands íslenskra verzlunarmanna
➤ Ingibjörg er varaforseti Al-þýðusambands Íslands og
formaður Landssambands ís-
lenskra verzlunarmanna.
➤ Hún er oftast í fullri vinnufyrsta maí. Hún er gjarnan
beðin um að halda ræður á
hátíðarhöldum í tilefni af
verkalýðsdeginum. Staðurinn
fer eftir því hver er fyrstur til
að biðja hana.
STARFIÐ
24stundir/Golli
Verkalýðsleiðtog-
inn Hefur nóg að
gera 1. maí.
Frídagur verkamanna er
síður en svo frídagur
verkalýðsleiðtogans.
Ingibjörg R. Guðmunds-
dóttir, formaður Lands-
sambands íslenskra
verzlunarmanna, brá sér
norður í land til að fagna
með félagsmönnum sín-
um á Húsavík. Þar voru
hátíðarhöldin með sér-
staklega glæsilegu sniði,
þar sem tvö verkalýðs-
félög sameinuðust undir
nýju nafni.
„Hugmyndin er sú að þarna
verði hægt að rekja söguna frá upp-
hafi grásleppuveiða á Íslandi, bæði
í veiðum og vinnslu, en Stranda-
menn áttu stóran hlut í því þegar
grásleppuveiði fór af stað á sínum
tíma,“ segir Jón Hörður Elíasson.
Stofnfundur félags um rekstur
Grásleppuseturs var haldinn á
Drangsnesi í gær.
Hann segir að auk grásleppu
verði á setrinu gerð skil öðrum
nytjum svo sem rekaviði, sel og há-
karli. Auk þess sé mikill áhugi á að
taka þátt í rannsóknum á grásleppu
og vöruþróun til manneldis.
Grásleppusýning hefur verið
hluti af bryggjuhátíð á Drangsnesi í
mörg ár þar sem meðal annars hafa
verið sýnd gömul og ný veiðarfæri
og boðið upp á rússneskar pönnu-
kökur með kavíarhrognum.
Áætlað er að setrið verði opnað
formlega 19. júlí 2012 og segir Jón
Hörður þrjú til fjögur störf geta
skapast við setrið á ársgrundvelli.
Hann segir setur sem þetta ekki
hafa úrslitaáhrif á byggðir landsins.
„En ef þetta gengur eftir þá hjálpar
þetta verulega til í þeirri baráttu.“
fifa@24.stundir.is
Stofnfundur Grásleppuseturs á Drangsnesi
Saga veiða og vinnslu
Icelandair var meðal þeirra
flugfélaga sem voru óstundvís-
ust á fyrsta fjórðungi þessa árs,
samkvæmt úttekt evrópsku
flugfélagasamtakanna Associa-
tion of European Airlines. Af
29 flugfélögum var Icelandair í
26. sæti.
Stundvísust eru ungverska
flugfélagið Malev Hungarian
Airlines, tékkneska flugfélagið CSA Czech Airlines, franska flugfélagið
Air France og ítalska flugfélagið Alitalia, að því er kemur fram á vef-
síðu samtaka evrópskra flugfélaga. SAS og Finnair eru einnig meðal
þeirra evrópsku flugfélaga sem eru óstundvísust. Neðst á listanum var
hins vegar British Airways sem einnig var í neðsta sæti í fyrra.
Tekið er fram að lágfargjaldaflugfélögin Norwegian og Ryanair séu
ekki í samtökum evrópskra flugfélaga. Þess vegna eru þau ekki með í
útttektinni um stundvísi.
ibs
Icelandair óstundvíst