24 stundir - 03.05.2008, Síða 9
Das Auto.
Allt að 17% verðlækkun á nýjum bílum
Laugavegi 172-174 · 590 5000 · hekla.is · hekla@hekla.is · umboðsmenn um land allt
Passat er einn af fjölmörgum sparneytnum bílum frá Volkswagen
Ef hagkvæmni væri skrásett vörumerki, væri það að sjálfsögðu í eigu Volkswagen
Hagkvæmni hefur alltaf verið lykilorð við hönnun hjá Volkswagen og árangurinn lætur ekki á sér
standa. Með stöðugri framþróun hefur Volkswagen til dæmis tekist að búa til framúrskarandi
dísilvélar í allar stærðir bíla sem fara bæði betur með eldsneytið og umhverfið. Komdu, prófaðu
og finndu bíl frá Volkswagen sem sparar fyrir þig.
ALVÖRU
SJÁLF-
SKIPTINGAR
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
ÖFLUGAR EN
HLJÓÐLÁTAR
DÍSILVÉLAR
EYÐSLU-
GRANNAR
VÉLAR
KOLEFNIS-
JAFNAÐIR
Í EITT ÁR
MINNI
LOSUN ÚT Í
UMHVERFIÐ
HAGKVÆMIR
Í REKSTRI OG
VIÐHALDI
UPPFYLLA
STRÖNGUSTU
ÖRYGGISSTAÐLA
Hagkvæmni
24stundir LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 9
Starfsmanni 24 stunda var
brugðið þegar afgreiðslumaður
Fríhafnarinnar rukkaði 2.499
krónur fyrir 200 ml. Boss Body
Lotion-flösku, sem samkvæmt
hilluverði átti að kosta 1.999
krónur.
Mismunurinn stafaði af nýlegri
hækkun vegna gegnisbreytinga og
hækkunar frá birgja. Á endanum
fékk hann þó vöruna fyrir ásett
verð.
„Þetta er kannski aðeins um-
fram þá hækkun sem á að vera,“
segir Hlynur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar. „En
gengismunur frá því að þessi vara
var síðast keypt er 35%, fyrir utan
að það varð tæplega 9% hækkun
á verði vörunnar frá birgi.“ Vel sé
því hægt að réttlæta umrædda
hækkun.
Hlynur segir að einhverjar fleiri
verðhækkanir hafi orðið á vörum
sem seldar eru í Fríhöfninni, þó
reynt sé að halda verði óbreyttu
þrátt fyrir gengissveiflur. „En það
er erfitt á þessum tímum.“
Fylgjast með hækkunum
Lesendur 24 stunda eru hvattir
til að hafa samband við blaðið ef
þeir verða varir við miklar eða
óeðlilegar hækkanir. Blaðið vill
veita þeim sem selja vöru og
þjónustu aðhald í samstarfi við og
til hagsbóta fyrir neytendur og
birtir í þeim tilgangi fréttir af
verðhækkunum.
hlynur@24stundir.is
ÞEKKIR ÞÚ DÆMI?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á frettir@24stundir.is
Gengisbreytingar og verðhækkun frá birgjum hefur áhrif á vöruverð í Fríhöfninni
Verð á húðkremi hækkar um fjórðung
➤ Boss Body Lotion hækkaði úr1.999 krónum í 2.499 krónur
á einu bretti, vegna geng-
isbreytinga og hækkunar á
verði frá birgi.
➤ Lesendur 24 stunda eruhvattir til að láta vita ef þeir
vita um miklar eða óeðlilegar
verðhækkanir.
HÆKKUNIN
Hækkun Erfitt er að halda
verði óbreyttu um þessar
mundir, segir framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar.
Fjögur af 33 lyklaborðum sem
bresku neytendasamtökin Which?
létu rannsaka á skrifstofum sínum í
London voru svo óhrein að þau
voru hættuleg heilsunni. Á einu
lyklaborðanna voru fimm sinnum
fleiri bakteríur en á einni af salern-
issetum skrifstofunnar, að því er
greint er frá á fréttavef BBC.
Ein af ástæðunum fyrir óhrein-
indum á lyklaborðum er borðhald
starfsmanna við skrifborðið.
Brauðmylsnur eru til dæmis gróðr-
arstía fyrir bakteríur. Lyklaborð
geta einnig fyllst af gerlum þvoi
menn sér ekki um hendur eftir sal-
ernisferðir, að því er bent er á.
ibs
Rannsókn örverufræðinga á lyklaborðum
Salernið hreinna
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, tekur í dag á móti forseta-
bifreið Sveins Björnssonar sem hefur
verið endurgerð. Bifreiðin er af Pack-
ard-gerð, frá árinu 1942, og var fyrsta
forsetabifreiðin, notuð á upphafsár-
um Sveins Björnssonar í embætti for-
seta Íslands. Hún var keypt notuð frá
Bandaríkjunum en bifreið sömu
gerðar hafði verið gjöf Roosevelts for-
seta til Sveins Björnssonar en hún var
um borð í Goðafossi þegar skipið var
skotið í kaf í nóvember 1944.
Töluverðar deilu spunnust um
kostnað við endurgerð bílsins sem fór
langt fram úr kostnaðaráætlun en
viðgerðinni lauk árið 2004. Fimm ár
tók að koma bílnum í upprunalegt
horf en bíllinn var mjög illa farinn
þegar viðgerðin hófst.
Bíllinn er beinskiptur með átta
strokka línuvél en aðeins voru fram-
leiddir um 600 bílar af þessari gerð
svo varahlutir voru vandfundnir.
Bifreiðin er eign Þjóðminjasafns
Íslands en verður geymd á Bessastöð-
um og notuð og sýnd við sérstök
tækifæri.
Fyrsti forsetabíllinn afhentur forseta Íslands í dag
Eins og bíllinn frá Roosevelt
Glæsikerra Bíllinn verður notaður við sérstök tækifæri.