24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
ÁSTANDHEIMSINS
frettir@24stundir.is a
Prófsteinn leiðtoga er ekki hvað hann
gerir þegar vel gengur, heldur hvað
hann gerir við erfiðar aðstæður.
Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, segir úrslit bresku
sveitarstjórnakosninganna vera
slæm og mikil vonbrigði fyrir
breska Verkamannaflokkinn. Út-
koma kosninganna er sú versta
fyrir flokkinn í um fjörutíu ár, en
þegar um tveir þriðju hlutar at-
kvæða höfðu verið taldir hafði
Verkamannaflokkurinn hafi feng-
ið 24% greiddra atkvæða, Íhalds-
flokkurinn 44% og Frjálslyndir
25%. Brown sagði slæmu efna-
hagsástandi um að kenna, en að
flokkurinn myndi draga lærdóm
af skilaboðum kjósenda.
Fyrir kosningar var spennan einna
mest í baráttu íhaldsmannsins
Boris Johnsons og borgarstjórans
Ken Livingstone, frambjóðanda
Verkamannaflokksins, um völd í
Lundúnaborg. Síðdegis í gær benti
allt til sigurs Johnsons í Lund-
únum, en þá var einnig ljóst að
Verkamannaflokkurinn hafði
misst um 300 sveitarstjórnarsæti á
landsvísu og meirihluta í fjölda
sveitarfélaga.
David Cameron, leiðtogi Íhalds-
flokksins, sagði úrslitin stóra
stund fyrir sína menn. „Ég vil að
við sönnum að við getum gert þær
breytingar sem fólk vill sjá í skóla-
málum, heilbrigðismálum, örygg-
ismálum og öðru sem skiptir okk-
ur máli.“ atlii@24stundir.is
Gordon Brown
og félagar
guldu afhroð
NordicPhotos/AFPSérvitringur Íhaldsmaðurinn Boris Johnson hefur getið sér gott orð sem þingmaður, ritstjóri og sjónvarpsþáttastjórnandi. Hann hefur notið mikilla vinsælda
og virðingar fyrir óhefðbundna framkomu og skoðanir, en sögur af skrautlegu einkalífi hans hafa einnig ítrekað ratað inn á síður bresku pressunnar.
Fögnuður Tugir þúsunda komu saman í Hong Kong í gær þegar hlaupið var um borg-
ina með ólympíueldinn. Lögregla þurfti að hafa afskipti af smáum hópi mótmælenda.
Heyr mína bæn! Hópur fólks kom saman á fimmtudaginn á bensínstöð í Washington
til að biðja til æðri máttarvalda um lægra eldsneytisverð.
Umsóknarfrestur er til 30. maí
Kynntu þér námið á www.taeknifraedi.is
TÆKNIFRÆÐI VIÐ HR
HAGNÝTT NÁM - FRÁBÆR ATVINNUTÆKIFÆRI
Rafmagnstæknifræði
Rafmagnstæknifræði er spennandi og einkar víðfermt hátæknisvið. Starfssvið rafmagnstæknifræðinga er fjölbreytt, hvort heldur sem
unnið er við hönnunarverkefni, framkvæmdir eða stjórnun og eftirlit.
Vél- og orkutæknifræði
Námið byggist á bóklegum námskeiðum og vinnu nemenda í raunhæfum verkefnum í tengslum við véla- og orkuiðnað, m.a. undir
leiðsögn sérfræðinga úr atvinnulífinu. Starfssvið vél- og orkutæknifræðinga er fjölþætt, s.s. störf við stjórnun, eftirlit, ráðgjöf, hönnun
og þróun.
Byggingartæknifræði
Í byggingartæknifræði er fengist við hönnun mannvirkja og framkvæmdir á borð við húsbyggingar, vegagerð og virkjanir. Flestir
byggingartæknifræðingar starfa sem hönnuðir á verkfræðistofum eða sem stjórnendur byggingarframkvæmda hjá verktaka-
fyrirtækjum eða sveitarfélögum.
Boðið er upp á nám í