24 stundir - 03.05.2008, Page 20
20 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
FÉOGFRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Við viljum fá skýr svör frá rík-
isstjórninni áður en lengra verður
haldið, en hún hefur setið á áhorf-
endabekk fram að þessu.
Eftir Ægi Þór Eysteinsson
aegir@24stundir.is
Fyrsta samningafundi BSRB og að-
ildarfélaga þess við launanefnd rík-
isins lauk í gær hjá sáttasemjara
ríkisins með því að bandalagið ósk-
aði eftir fundi með ríkisstjórninni
áður en lengra verður haldið í
kjaraviðræðum.
Ríkisstjórnin á áhorfendabekk
„Við höfum óskað eftir milli-
liðalausum viðræðum við ríkis-
stjórnina til þess að heyra hvaða
áform hún hefur uppi til að bæta
stöðu stétta innan almannaþjón-
ustunnar, útrýma kynbundnum
launamun og annað af því tagi,
eins og fyrirheit eru um í stjórn-
arsáttmálanum og ráðherrar hafa
látið hafa eftir sér í fjölmiðlum. Við
viljum fá skýr svör frá ríkisstjórn-
inni um þessi atriði og fleiri áður
en lengra verður haldið, en hún
hefur setið á áhorfendabekk fram
að þessu en nú viljum við vita hvað
hún hefur til málanna að leggja,“
segir Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB.
Útrétt sáttarhönd
„Nú er það svo að ríkisstjórnin
býður upp á samning sem á að
gilda nánast til loka kjörtímabils-
ins, áður en bólar nokkuð á þess-
um efndum. Við höfum á hinn
bóginn boðið upp á skammtíma-
samning þar sem menn tækju
höndum saman til að ráða niður-
lögum verðbólgudraugsins, en við
höfum ekki orðið vör við nein við-
brögð af hálfu stjórnvalda að taka í
þá hönd sem við höfum rétt út.“
BSRB og aðildarfélög bandalags-
ins hafa óskað eftir fundi með odd-
vitum stjórnarflokkanna, auk fjár-
málaráðherra og
félagsmálaráðherra.
„Ef við erum að tala um samn-
ing sem gildir nánast út kjörtíma-
bilið þá þurfum við auðvitað að fá
að sjá á hvaða hátt ríkisstjórnin
ætlar að efna þau fyrirheit sem gef-
in eru í stjórnarsáttmálanum.“
Þjóðfélagið í tímaþröng
Umræddur fundur BSRB með
ríkisstjórninni hefur ekki verið
tímasettur en Ögmundur vonar að
hann verði haldinn fyrr en seinna.
„Okkur liggur á að reyna að
klára þessi mál. Íslenskt þjóðfélag
er í tímaþröng því hér tifar verð-
bólgan í tveggja stafa tölu þannig
að veikburða atvinnurekstur og
heimili launafólks geta engan veg-
inn unað við ástandið eins og það
er núna. Ég tel hyggilegast að semja
til skamms tíma, en ef ætlunin er
að semja til langs tíma erum við að
tala um annars konar kjarasamn-
ing. Þá þurfum við líka meira en
fyrirheit því þá munum við fara
fram á kortlagningu og tímasetn-
ingar á aðgerðum.“
Krefjast krónutöluhækkunar
Ögmundur segir að BSRB leggi
höfuðáherslu á að bæta kjör þeirra
lægst launuðu og hækkun launa
þeirra eigi ekki að miðast við pró-
sentutölu.
Í febrúar sömdu Alþýðusam-
bandið og Samtök atvinnulífsins til
þriggja ára. Samið var um krónu-
töluhækkun og hækkuðu almennir
launataxtar um átján þúsund krón-
ur við undirskrift. Að auki hækka
taxtar um tuttugu þúsund krónur á
samningstímanum. Þá hækka taxt-
ar iðnaðarmanna um 49.000 krón-
ur á samningstímanum, þar af um
21.000 við undirskrift.
Grunnskólakennarar sömdu á
dögunum á svipuðum nótum. Þeir
fá allt að 23 prósenta launahækkun
á samningstímanum, þar af hækka
grunnlaun kennara um 25.000
krónur á mánuði frá 1. júní næst-
komandi. BSRB vill fara svipaða
leið.
„Helstu kröfur okkar eru að
semja eigi um krónutöluhækkun á
taxta, því það gagnast best þeim
sem hafa lægstu tekjurnar og eru
undir meðaltekjum. Við teljum að
það þurfi að skoða sitthvað sem
lýtur að endurmenntun og veik-
indarétti og efla störf trúnaðar-
manna. Þá viljum við koma á um-
ræðum um aðkomu okkar
félagsmanna að endurhæfingar-
sjóði sem ASÍ, SA og ríkisvaldið
sömdu um.“
Verslunin axli ábyrgð
„Ef mínar væntingar ná fram að
ganga tekst okkur að kveða hér
niður verðbólguna en það er alvar-
legasti og versti vágestur sem herjar
á kjör landsmanna nú um stundir.
Tólf prósenta verðbólga étur upp
kjör með ógnarhraða og nú eiga
menn að beina sjónum sínum að
verslunareigendum, því það er
komið að þeim sem stýra verði á
vörum og þjónustu að axla ábyrgð.
Menn hljóta að spyrja hvað hafi
orðið um ávinning verslunarinnar
af lækkun virðisaukaskatts á mat-
væli á síðasta ári, því hún skilaði
sér ekki til neytenda eins og menn
vonuðust eftir.“
Vilja skýr svör frá
ríkisstjórninni
BSRB vill fund með ríkisstjórninni áður en lengra verður haldið í kjaraviðræðum
➤ BSRB var stofnað 14. febrúar1942.
➤ Aðildarfélög BSRB eru 27talsins.
➤ Fjöldi félagsmanna er rúm-lega 19.000.
➤ Um tveir þriðju félagsmannaeru konur.
BSRB
Pattstaða BSRB mun ekki funda með
launanefnd ríkisins fyrr en skýr svör
hafa borist frá ríkisstjórninni.
MARKAÐURINN Í GÆR
● Mest viðskipti í Kauphöll OMX
í gær voru með bréf Glitnis, fyrir
um 1,9 milljarða króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
FL Group, eða 2,32%. Bréf Cent-
ury Aluminum hækkuðu um
2,03%.
● Mesta lækkunin var á bréfum
Eimskipafélagsins, eða 1,85%. Bréf
Kaupþings lækkuðu um 1,52% og
bréf Landsbankans um 0,84%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,77% í gær og stóð í 5.171 stigi í
lok dags.
● Íslenska krónan veiktist um
1,44% í gær.
● Samnorræna OMX40-
vísitalan hækkaði um 0,98% í
gær. Breska FTSE-vísitalan hækk-
aði um 2,1% og þýska DAX-
vísitalan um 1,4%.
!!"
!"#
$
%
&#
'()*+
'
,
-./.
0#1
2
345
#"
" 61
"(##
(7
81
!"# "
+9#/
'
01 - -
:
-
;#
1
-/
!
: -
0 -< =
$
'
>?@@A4B
>5@3C5>C
3435>BCB>
?C@AB33@
?C??@C5C3B
4@454B5
?B5?BD5@
?BA4BCD?3A
?4DC4@D45
B4AB@@@
D5>D?C4D
>>5DAB5DB
?A5@@@@
3334CD
?35>53C
@
@
?DD5D33
?5CB?33
>B@@@
3DC3DA@
,
,
??AA?CC>
,
,
BDC>B@@@@
,
,
DEB4
35EA5
??EC5
4E4B
?DE@5
B?EB5
B?ED@
A3CE@@
BCE4@
ACE>@
>EC@
?BE4C
3E4C
C4E5@
?E3?
4E4C
B3AE@@
?>??E@@
3>?E@@
@EA>
?>AE@@
,
,
,
,
,
5B4@E@@
?@E@@
,
DE3>
34E?@
?BE@3
4E4>
?DE?@
B?E55
B?EA@
A>@E@@
BCEA@
C@E3@
>EC5
?BEDB
3ED3
CDE@@
?E33
4ED3
B>?E5@
?>BCE@@
35@E@@
@EA5
?5BE@@
,
B?EC5
,
,
,
53B@E@@
,
4E@@
/
- 5
?3
5C
?C
4D
>
4
?>4
B4
?
>B
>D
3
?
>
,
,
3
3
?
D
,
,
?
,
,
?C
,
,
F#
-#-
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
BC>B@@A
3@>B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
B5B@@A
?@3B@@A
?D>B@@A
3@>B@@A
4?BB@@D
BBAB@@D
B5B@@A
BC>B@@A
D3B@@A
Viðskipti með skuldabréf í ný-
liðnum mánuði námu 547 millj-
örðum sem er þriðja mesta velta í
einum mánuði. Það sem af er ári
nemur velta með skuldabréf
2.167 milljörðum en heildarvelta
síðasta árs nam 2.430 milljörðum
króna.
Velta á hlutabréfamarkaði var
með rólegra móti eða um 143
milljarðar króna.
Það sem af er árinu hefur velta
með hlutabréf verið 644 millj-
arðar og því dregist saman um
40% frá síðasta ári.
40% minni velta
með hlutabréf
Stjórn Samtaka atvinnulífsins
hvetur aðildarfyrirtæki samtak-
anna til þess að gæta hófs og að-
halds við verðlagningu í því um-
róti sem ríkir um þessar mundir.
Samdráttur eftirspurnar sé fyr-
irsjáanlegur og af því leiði að ekki
verði unnt að velta öllum kostn-
aðarhækkunum áfram út í verð-
lag. Afar brýnt sé að allir, sem
áhrif hafa á framvinduna á næstu
mánuðum og misserum, stilli
saman strengi sína.
Hvetur fyrirtæki
til að gæta hófs
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
• Nudd- og meðferðabekkir
• Rafdrifnir og samanleggjanlegir
• Nuddolíur og pappír
Tilboðsdagar
Í NÆSTU VIK
U