24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 23

24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 23
24stundir LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 23 „Kristur var lítilsvirtur, kvalinn, fyrirlitinn og honum var misþyrmt áður en hann var krossfestur,“ segir Sigurjón Ari Sigurjónsson í 24 stundum þann 19. apríl en bætir um betur og gerir undirritaðan samsekan um glæpinn: „… en vegna þess að hann lét lífið fyrir okkur, Brynjólfur, höfum við öðl- ast fyrirgefningu“. Ekki efast ég um góða ætlan Sig- urjóns en ég sé mig tilneyddan að vísa frá mér boði hans um samsekt. Sú leið sem hann hefur valið sér er ekki mín. Ég afþakka pent að kóa með glæpnum. Af jötu á staur Barnatrúna missti ég, eins og flestir, á þeirri andlegu þroskabraut sem liggur frá barni til fullorðins manns. Þegar ég var barn sá ég heiminn með augum barnsins. Sem fullorðinn minnist ég einfaldleik- ans, sakleysisins með angurværum söknuði, barnið í jötunni tákn hins góða, hins ljúfa, tákn lífsins. Að negla barnið á staur, að kvelja það og hæða, fyrirlíta og mis- þyrma, píslarganga úr jötu á kross, þetta var aldrei mín trú þrátt fyrir að Sigurjón telji sig vita betur þegar hann segir mér að „barnatrú þín byggir, eins og barnatrú okkar hinna, á krossfestingu Krists sem tók á sig syndir okkar“. Að drepa einn fyrir syndir ann- arra er óréttlátt og heimskulegt. Að skella skuldinni á saklaus börn er enn verra. Dauðanum fagnað Sjálfviljugir taka menn á sig þessa meðvirkni í glæpnum, gerast samsekir í syndinni, fella sig undir kenningar kristninnar. Boðskapur gleði er þetta kallað í fúlustu al- vöru, fagnaðarerindi segja menn og virðast ekki skammast sín. En til þess hafa menn fullt frelsi, að fagna því að einn skuli drepinn fyrir aðra. Sjálfum líkar mér ekki sú heims- sýn, mér finnst hún ruddaleg í forneskju sinni og óviðeigandi í nútímasamfélagi. Táknmynd hennar, krossinn, særir mig og móðgar mína innstu sannfæringu. Þetta skýri ég betur í grein minni, „Móðgandi myndbirtingar“ (á binntho.is) en sú grein var einmitt kveikjan að hugleiðingu Sigurjóns sem hér er svarað. Röksemdir á hrakhólum Sú hugsun er hlægileg að eigna kristninni það sem áunnist hefur í mannréttindum síðustu áratugina, eins og Sigurjón reynir að gera. Kenningar kristninnar hafa engin tengsl við mannréttindayfirlýsingar franskra og bandarískra byltingar- manna við lok 18. aldar né alþjóð- lega sáttmála síðustu aldar. Það er enda ekki fyrr en kristnin fer að víkja, eftir hálft annað árþús- und, sem sprotar lýðræðis og mannréttinda ná að skjóta rótum. Árangur kristninnar á þessu sviði var enginn allar þessar mörgu aldir sem hún gegnsýrði evrópskt sam- félag og eftir að barátta lýðræðis- sinna hófst fengu þeir síst stuðning frá kirkjudeildum. Fasískar ein- ræðisstjórnir fengu það hins vegar, svo seint sem á miðri síðustu öld í sjálfri vöggu hinnar evangelísk-lút- ersku kirkju. Kristin trú víkur hratt hér á landi eins og annars staðar þar sem upplýst umræða á sér stað. Skoð- anakönnun á vegum Biskupsstofu árið 2004 sýnir að réttur helmingur landsmanna telur sig kristinn, ári síðar játa innan við fjórir af hverj- um tíu Íslendingum einhvers kon- ar guðstrú samkvæmt könnun Evr- ópusambandsins. Sérhver er frjáls að trú sinni og þeir sem vilja fagna krossfestingum geta gert það í ein- rúmi, sjálfum þætti mér betra að sjá sem minnst af því. Höfundur leggur stund á ritstörf Krossar vinsam- legast afþakkaðir UMRÆÐAN aBrynjólfur Þorvarðarson Það er enda ekki fyrr en kristnin fer að víkja, eftir hálft annað árþúsund, sem sprotar lýðræðis og mannrétt- inda ná að skjóta rótum. Kristni Að drepa einn fyrir syndir annarra er óréttlátt og heimskulegt. DAGSKRÁ 7:45 Skráning og morgunverður 8:20 Ávarp: Finnur Oddson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands 8:30 Breytt fjölmiðlaumhverfi: Að tala einni röddu Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla 8:40 Skiptir traust og trúverðugleiki fyrirtæki og þjóðir máli? Jere Sullivan, aðstoðarforstjóri Edelman í Evrópu 9:10 Traust og trúverðugleiki á Íslandi – niðurstöður Capacent Gallup Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, rannsóknastjóri Capacent Gallup 9:25 Pallborðsumræður: Bjarni Ármannsson fjárfestir, Guðfinna S. Bjarnadóttir alþingismaður, Haraldur Johannessen, ritstjóri Viðskiptablaðsins, Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri viðskiptasviðs í utanríkisráðuneytinu, og Pétur Gunnarsson, ritstjóri Eyjunnar. 10:15 Fundarlok Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson dagskrárgerðarmaður AP almannatengsl, samstarfsaðili Edelman á Íslandi, standa að málþinginu í samvinnu við Viðskiptaráð Íslands og Capacent Gallup. Málþingið er öllum opið en þátttökugjald er 8.900 kr. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið skraning@appr.is eða í síma 511 1230. PO RT h ön nu n Mikilvægi trausts og trúverðugleika fyrirtækja og þjóða er meginefni morgunverðarfundar sem haldinn verður á vegum AP almannatengsla, Capacent Gallup og Viðskiptaráðs á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 8. maí. Á fundinum verða kynntar niðurstöður alþjóðlegrar traustskönnunar almannatengslafyrirtækisins Edelman auk sambærilegrar rannsóknar Capacent Gallup á Íslandi. Þetta er í annað sinn sem traust og trúverðugleiki eru könnuð á Íslandi með aðferðum Edelman. Traustskönnunin, Edelman Trust Barometer, er gerð árlega í fjölmörgum löndum og mælir viðhorf skilgreindra áhrifavalda til trausts og trúverðugleika fyrirtækja, stjórnvalda, fjölmiðla og félagasamtaka. Jafnframt eru traust og trúverðugleiki fjölmiðla og annarra boðleiða mæld. Niðurstöðurnar eru jafnan kynntar á heimsviðskiptaráðstefnunni í Davos og hafa vakið mikla athygli helstu viðskiptafjölmiðla heims. Traust á umbrotatímum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.