24 stundir - 03.05.2008, Side 32
32 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@24stundir.is
Hvaða lifandi manneskju líturðu
upp til og hvers vegna?
Mömmu minnar því hún er ótrú-
lega mögnuð kona.
Hver er þín fyrsta minning?
Þegar ég var 3 ára og stóð uppi á
eldhúsborði hjá ömmu og afa og var
að halda tískusýningu fyrir alla í nýja
kjólnum mínum.
Hver eru helstu vonbrigðin hing-
að til? Ég er svo blessuð að hafa ekki
orðið fyrir neinum rosalegum von-
brigðum hingað til.
Hvað í samfélaginu gerir þig
dapra?
Fátækt, vanlíðan barna og unglinga,
ábyrgðarleysi gagnvart gamla fólkinu,
trúleysi, vonleysi og þunglyndi.
Leiðinlegasta vinnan?
Ég var að vinna við að klippa og
pakka pulsum eitt sumarið, ég entist í
hálfan mánuð.
Uppáhaldsbókin þín?
Ég á bara enga uppáhaldsbók þessa
stundina. Er að leita að einhverri til að
detta ofan í.
Hvað eldarðu hversdags, ertu góð-
ur kokkur?
Ég er rosa góður kokkur, mér finnst
svo gaman að elda. Við erum mjög
dugleg að elda fisk og pastarétti,
nautakjöt og lambakjöt með alls konar
rjómasósum og meðlæti. En svo finnst
mér líka rosa gott stundum að hafa
bara venjulegan mömmumat, slátur,
kjötsúpu, plokkfisk og eitthvað svo-
leiðis. Ég elska það.
Hver myndi leika þig í kvikmynd
byggðri á ævi þinni?
Aþena litla frænka mín, hún er
rosaleg leikkona.
Að frátalinni húseign, hvað er það
dýrasta sem þú hefur fest kaup á?
Tölvan mín.
Mesta skammarstrikið?
Ég ætla að fá að halda því fyrir mig
aðeins lengur, ekki alveg nógu langt
frá því til að það geti litið dagsins
ljós… hehe
Hvað er hamingja að þínu mati?
Maðurinn minn og ástin okkar.
Fjölskyldan mín, vinirnir, trú, von og
kærleikur.
Hvaða galla hefurðu?
Ég er fljótfær, óþolinmóð, óstund-
vís og ýmislegt fleira, en ég er að vinna
í því.
Ef þú byggir yfir ofurmannlegum
hæfileikum, hverjir væru þeir?
Að geta elskað skilyrðislaust.
Hvernig tilfinning er ástin?
Besta tilfinning í heimi, ólýsanlegur
leyndardómur.
Hvað grætir þig?
Hvað margir þjást að óþörfu.
Hefurðu einhvern tímann lent í
lífshættu?
Já, keyrði næstum framan á trukk í
blindbyl á Hellisheiðinni þegar ég var
nýkomin með bílprófið.
Hvaða hluti í eigu þinni meturðu
mest? Mér þykir voða vænt um nýja
bílinn minn.
Hvað gerirðu til að láta þér líða
vel?
Eyði tíma með manninum mínum.
Hverjir eru styrkleikar þínir?
Ég veit hvað ég vil og ég trúi að ég
geti öðlast það.
Hvað langaði þig að verða þegar
þú varst lítil?
Þegar ég var alveg pínu pons ætlaði
ég að verða fegurðardrottning en þeg-
ar ég varð eldri var það söngkona og
leikari. Ég hafði líka og hef enn mjög
mikinn áhuga á ljósmyndun.
Er gott að búa á Íslandi?
Já, fyrir utan hvað er alltaf kalt
hérna.
Hefurðu einhvern tímann bjargað
lífi einhvers?
Kannski.
Hvert er draumastarfið?
Að vera tónlistarmaður.
Hvað ertu að gera núna?
Við erum að vinna í nýju lagi sem
við ætlum að frumflytja á Hlust-
endaverðlaununum og svo er bara nóg
að gera við að spila út um allt.
24spurningar
Rebekka Kolbeinsdóttir
Lagið Ho Ho Ho We Say Hey
Hey Hey eftir Barða í Bang
Gang vakti mikla athygli í
Laugardagslögunum í vet-
ur. Umgjörð lagsins þótti
sérstök og þá vakti söng-
konan, hin nítján ára Re-
bekka Kolbeinsdóttir, einna
mesta athygli. Hún og fé-
lagar hennar, Gilzenegger
og félagar, halda áfram að
tröllríða poppsenu Íslands
og hljómsveitin Merzedes
Club hefur nú þegar sýnt og
sannað að sviðsljósið er
þeirra enn um stund.
a
Ég veit hvað ég vil
og ég trúi að ég
geti öðlast það.24stundir/Árni Sæberg