24 stundir - 03.05.2008, Side 33

24 stundir - 03.05.2008, Side 33
ATVINNA LAUGARDAGUR 3. MAÍ AUGLÝSINGASÍMI 510 3728 / 510 3726 www.alcoa.is Framtíðartækifæri í álframleiðslu ÍS L E N S K A S IA .I S A L C 42 22 9 05 .2 00 8 Ef þú hefur áhuga á starfi hjá Fjarðaáli hafðu þá samband við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur eða Tómas Odd Hrafnsson hjá Capacent, í síma 540 1000 eða á netföngin sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is / tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína á www.capacent.is og haft verður samband við þig.Kynntu þér kosti þess að búa og starfa á Austurlandi: www.austurat.is Framleiðslustörf í álveri Fjarðaáls við Reyðarfjörð eru tækifæri til að tryggja góða framtíð. Starfsöryggi Atvinna er óvíða tryggari en í álverum. Framleiðslan er jöfn allt árið um kring. Fjarðaál leggur einnig mjög mikið upp úr öryggi og vinnuvernd í álverinu. Vinnutími Unnið er á 12 tíma vöktum, að meðaltali 15,2 vaktir í mánuði. Vaktafyrirkomulagið gefur möguleika á bæði góðum frítíma og aukavöktum. Launakjör Föst heildarlaun nýrra framleiðslustarfsmanna á vöktum eru um 310.000 kr. á mánuði að meðal- tali. Inn í þá tölu reiknast desemberuppbót, orlofsuppbót og 15% frammistöðuávinningur. Fríðindi Fjarðaál býður starfsmönnum akstur til og frá vinnu. Starfsmenn fá eina heita máltíð á hverri vakt í glæsilegu mötuneyti sem fyrirtækið Lostæti starfrækir. Fjölbreytni Framleiðslustörfin eru afar fjölbreytt og til lengri tíma er lögð áhersla á fjölhæfni og hreyfanleika starfsmanna í framleiðsluteymum. Í blómlegum hópi framleiðslustarfsmanna eru konur og karlar á öllum aldri. Starfsþróun Ekki er gerð krafa um ákveðna menntun eða reynslu framleiðslustarfsmanna. Stöðug þjálfun og fræðsla skipa veigamikinn sess hjá Fjarðaáli. Gert er ráð fyrir að hluta vinnutímans verji starfsmenn utan hefðbundinna starfsstöðva sinna. Velferðarþjónusta Starfsmenn hafa aðgang að fjölþættri velferðarþjónustu Heilsuverndarstöðvarinnar. Í fyrirtækinu eru starfandi hjúkrunarfræðingar og læknir er á staðnum tvisvar í viku. Fjarðaál styrkir einnig líkamsrækt starfsmanna. Verðmætasköpun Fjarðaál er stærsta útflutningsfyrirtæki landsins. Fyrirtækið framleiðir meðal annars álvíra sem notaðir eru í háspennustrengi. Austurland Austurland er ört vaxandi þjónustusvæði sem býður upp á margvíslega búsetukosti í öflugum sveitarfélögum. Möguleikar á útivist eru einstakir í fallegri náttúru. Flutningsaðstoð Fjarðaál aðstoðar þá sem flytjast inn á skilgreint atvinnusóknarsvæði úr meira en 100 kílómetra fjarlægð. Flutningur og fasteignaskipti eiga að vera starfsmönnum kostnaðarlaus. Umsóknarfrestur er til og með 12. maí Við ætlum að ráða fleiri framleiðslustarfsmenn á vaktir í kerskála, skautsmiðju og steypuskála.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.