24 stundir - 03.05.2008, Page 33
ATVINNA
LAUGARDAGUR 3. MAÍ
AUGLÝSINGASÍMI 510 3728 / 510 3726
www.alcoa.is
Framtíðartækifæri í álframleiðslu
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
A
L
C
42
22
9
05
.2
00
8
Ef þú hefur áhuga á starfi hjá Fjarðaáli hafðu þá samband
við Sigurlaugu Þorsteinsdóttur eða Tómas Odd Hrafnsson
hjá Capacent, í síma 540 1000 eða á netföngin
sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is /
tomas.hrafnsson@capacent.is eða skráðu umsókn þína
á www.capacent.is og haft verður samband við þig.Kynntu þér kosti þess að búa og starfa
á Austurlandi: www.austurat.is
Framleiðslustörf í álveri
Fjarðaáls við Reyðarfjörð
eru tækifæri til að tryggja
góða framtíð.
Starfsöryggi
Atvinna er óvíða tryggari en í álverum. Framleiðslan er jöfn allt árið um kring. Fjarðaál leggur
einnig mjög mikið upp úr öryggi og vinnuvernd í álverinu.
Vinnutími
Unnið er á 12 tíma vöktum, að meðaltali 15,2 vaktir í mánuði. Vaktafyrirkomulagið gefur
möguleika á bæði góðum frítíma og aukavöktum.
Launakjör
Föst heildarlaun nýrra framleiðslustarfsmanna á vöktum eru um 310.000 kr. á mánuði að meðal-
tali. Inn í þá tölu reiknast desemberuppbót, orlofsuppbót og 15% frammistöðuávinningur.
Fríðindi
Fjarðaál býður starfsmönnum akstur til og frá vinnu. Starfsmenn fá eina heita máltíð
á hverri vakt í glæsilegu mötuneyti sem fyrirtækið Lostæti starfrækir.
Fjölbreytni
Framleiðslustörfin eru afar fjölbreytt og til lengri tíma er lögð áhersla á fjölhæfni og hreyfanleika
starfsmanna í framleiðsluteymum. Í blómlegum hópi framleiðslustarfsmanna eru konur og karlar á
öllum aldri.
Starfsþróun
Ekki er gerð krafa um ákveðna menntun eða reynslu framleiðslustarfsmanna. Stöðug þjálfun og
fræðsla skipa veigamikinn sess hjá Fjarðaáli. Gert er ráð fyrir að hluta vinnutímans verji starfsmenn
utan hefðbundinna starfsstöðva sinna.
Velferðarþjónusta
Starfsmenn hafa aðgang að fjölþættri velferðarþjónustu Heilsuverndarstöðvarinnar. Í fyrirtækinu
eru starfandi hjúkrunarfræðingar og læknir er á staðnum tvisvar í viku. Fjarðaál styrkir einnig
líkamsrækt starfsmanna.
Verðmætasköpun
Fjarðaál er stærsta útflutningsfyrirtæki landsins. Fyrirtækið framleiðir meðal annars álvíra sem
notaðir eru í háspennustrengi.
Austurland
Austurland er ört vaxandi þjónustusvæði sem býður upp á margvíslega búsetukosti í öflugum
sveitarfélögum. Möguleikar á útivist eru einstakir í fallegri náttúru.
Flutningsaðstoð
Fjarðaál aðstoðar þá sem flytjast inn á skilgreint atvinnusóknarsvæði úr meira en 100 kílómetra
fjarlægð. Flutningur og fasteignaskipti eiga að vera starfsmönnum kostnaðarlaus.
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí
Við ætlum að ráða fleiri framleiðslustarfsmenn
á vaktir í kerskála, skautsmiðju og steypuskála.