24 stundir - 03.05.2008, Page 35
LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 35ATVINNAstundir
Viltu vera með í því að gera
góðan skóla enn betri?
Lausar eru kennarastöður við
Grunnskóla Snæfellsbæjar
frá og með næsta skólaári
Áhugasömum er bent á að hafa sam-
band við Magnús Þór Jónsson skóla-
stjóra, í símum 433-9900 og 894-9903,
eða senda tölvupóst á maggi@gsnb.is
eða gs@gsnb.is. Öllum umsóknum
verður svarað.
Hafðu samband, þú tapar engu
en gætir grætt mikið!
Starfsstöðvar skólans eru á Hellissandi, í
Ólafsvík og á Lýsuhólsskóla.
Meðal mögulegra kennslugreina er almenn
kennsla og umsjón á yngsta- og miðstigi,
textílmennt, smíðar, heimilisfræði og mynd-
mennt, auk íslensku-, stærðfræði-, sam-
félagsfræði- og dönskukennslu á unglinga-
stigi. Einnig stjórn Verkefnavers skólans.
Aðrir möguleikar eru fyrir hendi!
Lögð er áhersla á einstaklingsmiðað nám
þar sem nemendur fá kennslu miðað við
þroska og getu, að efla sjálfstæði nemenda,
samvinnu og árangursrík vinnubrögð, með
áherslu á vellíðan nemenda og virðingu
þeirra fyrir sjálfum sér, öðru fólki og um-
hverfi sínu. Skólinn stefnir að fá Grænfána á
allar starfsstöðvar í vor, unnið er skv.
Olweusaráætlun og skólaárið 2008-2009 er
stefnt að stórauknu námsvali á öllum skóla-
stigum. Skólinn er umvafinn mörgum af
fallegustu náttúruperlum Íslands sem býður
upp á mikla möguleika í starfi.
Snæfellsbær er 1700 manna bæjarfélag á
vestanverðu Snæfellsnesi. Helstu þéttbýlis-
kjarnar bæjarfélagsins eru Ólafsvík,
Hellissandur og Rif. Í Snæfellsbæ er gott að
búa, öll helsta þjónusta er í bæjarfélaginu og
félagslíf mjög öflugt. Þá er sama hvort talað
er um þjónustu sveitarfélagsins (heilsu-
gæsla, leikskólar, tónskóli o.fl.) eða einka-
aðila (verslanir, líkamsræktarstöð o.fl.).
Félagslífið er margbrotið, s.s. klúbbastarf,
kórar og mikil gróska í íþróttalífi, hvort sem
er hjá börnum eða fullorðnum.
Nú er að grípa tækifærið og ganga til liðs við
metnaðarfullan hóp sem ætlar sér stöðugt
að gera góðan skóla betri!
Kennarar
athugið!
DRAUMASTARFIÐ
Nafn:
Agnes Amalía Kristjónsdóttir.
Starf:
Söngkona, blaðamaður hjá Birtíngi, STOTT PILATES-kennari,
líkamsræktar- og danskennari hjá Dansrækt JSB.
Ertu í draumastarfinu?
Já, ég starfa við það sem stendur hjarta mínu næst og það
sem ég menntaði mig til, þ.e tónlist og dans; þetta fléttast vel
saman við blaðamennskuna.
Hvað vildir þú verða þegar þú varst lítil?
Söngkona, dansari og kennari.
Hvað felur starfið í sér?
Sem söngkona syng ég m.a. vikulega við kirkjulegar athafnir
með Kammerkór Bústaðakirkju og kem fram á tónleikum
með þeim og fleirum. Við erum t.d að fara að flytja Gloriu
eftir Vivaldi 7. maí. Sem blaðamaður tek ég mestmegnis viðtöl
við fólk á öllum aldri sem gerir lífið skemmtilegra. Ég fylgist
með óperunni, tónleikum, leikhúsi og heilsurækt. Sem líkams-
ræktar- og danskennari geri ég mitt besta til að miðla því sem
ég kann og reyni að draga það besta fram í öðrum.
Hvaða áhugamál stundar þú utan vinnutíma?
Ég reyni að vera almennileg og skárri en í gær. Ég fer á klass-
íska tónleika og fylgist með vinum og kunningjum í söng- og
tónlistarbransanum. Ég elda góðan mat alla daga og hugleiði
á meðan. Ég syndi á hverjum degi vor og sumar og er núna að
reyna að uppgötva garðyrkjukonuna í mér enda komin með
voða fínan garð. Ég er í félagi STOTT PILATES kennara og við
erum að skipuleggja Work shop fyrir sjúkraþjálfara, íþrótta
kennara , dansara og fleiri 10. og 11. maí og það er spennandi.
Gerir starfsfólkið eitthvað saman utan vinnu?
Já, það er alltaf eitthvað skemmtilegt í gangi. Ég er nýkomin
úr frábærri árshátíðarferð til Malmö með Birtíngi og senn
brestur á með Eurovision-kvöldi. Í sumar verður örugglega
fjölskyldugrillpartí þar sem börnin eru með.
Starfa við það sem stendur hjartanu næst