24 stundir - 03.05.2008, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Salou
12. maí
frá kr. 59.990
Takmarkaður fjöldi herbergja í boði!
Ótrúlegt sértilboð
11 nætur m/fullu fæði
****
Hotel California Palace
Ho
tel
Ca
lifo
rni
a P
ala
ce
Terra Nova býður einstakt tilboð á einn vinsælasta áfangastað
Costa Dorada strandarinnar sunnan Barcelona. 11 nátta ferð á
**** hóteli með fullu fæði á ótrúlegum kjörum. Gott fjögurra stjörnu
hótel í Salou, Hotel California Palace, m.a. í nágrenni við
verslunargötur og skemmtilega göngugötu. Herbergi eru með
loftkælingu, síma, sjónvarpi, minibar, svölum og baðherbergi með
hárþurrku. Einnig veitingastaður, bar, ágæt líkamsræktaraðstaða,
leikjasalur og góður sundlaugagarður. Salou er fallegur bær með
frábæra strönd og fjölbreytta afþreyingu. Gríptu þetta einstaka
tækifæri og bókaðu strax - mjög takmarkaður fjöldi herbergja í
boði!
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel California Palace ****
með fullu fæði í 11 nætur. Aukagjald fyrir einbýli kr. 12.000.
Eftir Einar Jónsson
einarj@24stundir.is
Einar Gústavsson útskrifaðist
sem matreiðslumaður árið 2000
og hefur upplifað ýmsar breyt-
ingar á íslenskri matargerðarlist
frá þeim tíma. „Það var mikil
bylting í íslenskri matreiðslu um
aldamótin,“ segir Einar sem telur
ýmsar ástæður liggja þar að baki.
„Það varð auðveldara að fá gott
hráefni að utan og metnaðurinn
jókst um þetta leyti. Nýmóðins
staðir eins og Apótekið og Sjáv-
arkjallarinn lyftu þessu á hærri
stall,“ segir Einar og bendir einn-
ig á að matarhátíðin Food & Fun
hafi haft mikil og góð áhrif á ís-
lenska matargerðarlist. „Mat-
reiðsla á Íslandi er núna á mjög
háum stalli og hér eru margir
góðir veitingastaðir.“
Aðalhráefnið skín í gegn
Undanfarið ár hefur Einar
unnið á veitingastaðnum Einari
Ben í Veltusundi og líkar vel.
„Við erum með klassíska mat-
reiðslu sem byggð er á frönskum
grunni en með áherslu á íslenskt
hráefni,“ segir Einar sem deilir
þremur réttum að hætti hússins
með lesendum. Í aðalrétt er önd
ásamt franskri andalifur. „Það er
hægt að fá hana tilbúna í sneið-
um og hún er mjög góð en dýrt
hráefni,“ segir Einar. Þó að upp-
skriftirnar virðist vera flóknar
ætti enginn að veigra sér við að
prófa þær. „Ég reyni að hafa þetta
ekki of flókið þannig að aðalhrá-
efnið skíni í gegn,“ segir Einar
Gústavsson.
Engir stjörnustælar heima
Einfaldleikinn ræður einnig
ríkjum í eldhúsinu heima hjá
Einari. „Maður reynir yfirleitt að
gera eitthvað einfalt en hefur yf-
irleitt ekki mikinn tíma til að
elda þar. Maður er ekki með
mikla stjörnustæla í eldhúsinu
heima,“ segir Einar Gústavsson
að lokum.
Einari Gústavssyni líst vel á íslenska matargerð
Á háum stalli
Einar Gústavsson, mat-
reiðslumaður á veit-
ingastaðnum Einari Ben,
segir að bylting hafi orð-
ið á íslenskri matreiðslu
um aldamótin og hún sé
nú komin á háan stall.
➤ Einar lærði á Hótel Loftleið-um og útskrifaðist þaðan árið
2000.
➤ Hann vann í fjögur ár á Apó-tekinu og síðar hjá Sigga Hall.
➤ Hann hefur eldað fyrir gestiEinars Ben í tæpt ár.
EINAR GÚSTAVSSON
Salat með brenndum geitaosti,
blönduðum hnetum og dijon-
sinneps sósu
Salat (hráefni):
1 poki blandað salat (skolað)
2 skallottlaukar (fínt skorn-
ir)
1 rauður chili-pipar (fínt
skorinn)
50 g graslaukur
20 ml ólífuolía
10 ml sérríedik
salt og pipar
Blandið saman í skál, krydd-
ið eftir smekk.
Geitaostur og blandaðar
hnetur (hráefni):
100 g geitaostur
30 g demeral-sykur
50 g valhnetur
30 g furuhnetur
salt og pipar
Aðferð:
Skerið geitaost í fjórar sneiðar,
stráið sykri yfir og brúnið.
Ristið hneturnar á pönnu og
kryddið eftir smekk.
Dijon-sinnepsdressing (hráefni):
30 g majones
70 g sýrður rjómi
20 g dijon-sinnep
1 msk. hunang
50 g graslaukur
salt og pipar
Blandið vel saman og kryddið
eftir smekk.
FORRÉTTUR
Salat með ýmsu góðgæti
24stundir/Brynjar Gauti
Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Wolf Blass Gold Label
Riesling 2006. Opið nef með sítrónu, sítrónugras, kaffir lime,
steinefnum og ferskum kryddjurtum. Munnurinn er frískandi
með ástríðualdin, stjörnuávöxt, sítrusávöxtum og áberandi stein-
efnatónum. Þurrt vín með snarpa sýru í góðu jafnvægi við ávöxt.
Þrúga: Riesling. Land Ástralía. Hérað: South Australia.
Nokkrir af fremstu barþjónum
landsins sýna listir sínar á 20. hæð
Turnsins í Kópavogi á sunnudag
þar sem Íslandsmeistaramót bar-
þjóna verður haldið. Keppt verður í
sætum drykkjum og keppir sigur-
vegarinn fyrir Íslands hönd á
heimsmeistarakeppni barþjóna á
Puerto Rico. Kokkteilkeppni hefst
kl. 18 og borðhald kl. 20. Jafnframt
verður haldið fyrsta Íslandsmeist-
aramótið í svo kallaðri Flairkeppni.
Nánari upplýsingar má nálgast á
www.bar.is.
Íslandsmeistaramót barþjóna
Hrist og hrært af list
LÍFSSTÍLLMATUR
matur@24stundir.is a
Maður reynir yfirleitt að gera eitthvað ein-
falt en hefur yfirleitt ekki mikinn tíma til að
elda þar. Maður er ekki með mikla stjörnustæla í
eldhúsinu heima.
Einfaldleiki Einar leggur
áherslu á einfalda mat-
argerð þannig að að-
alhráefnið fái notið sín.