24 stundir - 03.05.2008, Síða 47
24stundir LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 47
Alba mælir með Bava Bass
Tuba Moscato D́Asti 2006.
Þroskaðar apríkósur, perur,
ananas og ferskjur með van-
illu og hunangi eru ríkjandi í
nefi. Munnurinn er ávaxta-
ríkur með melónum, ferskju-
sultu, mangó og lychee. Létt
freyðandi vín með sætan
ferskleika. Þrúga: Moscato.
Land: Ítalía. Hérað: Pied-
mont.
Súkkulaðikaka (hráefni):
300 g súkkulaði dökkt
25 g smjör
1 msk. hunang
5 eggjarauður
1 msk. kakóduft
200 ml ólífuolía
1 stk. matarlím
20 ml volgt vatn
5 eggjahvítur
Aðferð:
Hitið súkkulaði í skál í vatnsbaði,
bætið smjöri og hunangi og
blandið vel saman. Leggið mat-
arlímið í volgt vatnið og leysið
upp. Pískið eggjarauður og hellið
olíu hægt saman við þar til þykkn-
ar vel. Bætið kakódufti við og
vatni.
Blandið súkkulaðiblöndu saman
við og að lokum eggjahvítum.
Setjið í form og kælið.
Pistasíur:
100 g pistasíur
40 g sykur
Aðferð:
Ristið hneturnar á pönnu og bæt-
ið sykri á og brúnið. Passið að
brenna ekki sykurinn.
Bláberjaís og bláberjasósa:
1 dós vanilluís
100 g bláberjasulta
100 g fersk bláber
Aðferð:
Blandið vanilluís við ¾ af sultunni
og ¾ af fersku bláberjunum. Hitið
upp afgang af sultunni og bætið
afgangi af fersku bláberjunum að
lokum út í og notið sem sósu.
EFTIRRÉTTUR
Súkkulaðikaka með
pistasíum og bláberjaís
Önd og andalifur (hráefni):
4 andabringur
4 stk. andalifur í sneiðum
50 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Steikið andabringuna á pönnu
upp úr smjöri. Setjið á bakka og
klárið í ofni við 100°C. Steikið
lifrina á pönnu stuttu áður en
matur er borinn fram. Passið að
ofelda ekki.
Smjörsteikt kartafla (hráefni):
300 g bökunarkartöflur
10 ml ólífuolía
30 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Skerið kartöflu í teninga og
steikið á heitri pönnu, bætið
smjöri út í og klárið í ofni.
Gulrótakrem (hráefni):
200 g gulrætur
2 skallottlaukar
1 hvítlauksgeiri
100 g rjómi
20 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Skerið gulrætur og lauk í smáa
bita og setjið í pott með afgangi
af hráefni. Þegar gulræturnar eru
orðnar mjúkar setjið í blandara
og maukið vel. Kryddið með
salti og pipar.
Kirsuberjatómatar, aspas og
brasserað fennel
1 box kirsuberjatómatar
1 box aspas
20 ml ólífuolía
2 stk. fennel
20 g smjör
salt og pipar
Aðferð:
Steikið aspas á pönnu og bæt-
ið tómötum á pönnuna í lokin
og kryddið með salti og pipar.
Steikið fennelið á pönnu upp úr
smjöri og kryddið.
AÐALRÉTTUR
Önd og frönsk andalifur með
kartöflu, gulrótakremi og meðlæti
Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með De Bortoli Yarra Valley
Pinot Noir 2004. Svört kirsuber, plómur, þurrkuð krydd og jarð-
kennd einkenni í nefi. Rauð ber og kirsuber fylla munninn með
bökunarkryddum, vanillu og votti af trjákvoðu í bakgrunninum.
Milliþungt vín í góðu jafnvægi með þroskuð, mjúk tannín og
löngu eftirbragði. Þrúga: Pinot Noir. Land: Ástralía. Hérað: Vic-
toria.
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
í dag
Laugardagur 3. maí 2008
Páll Óskar fer fyrir hópi mikilla
spekinga í nýjum þáttum þar sem
lögin í Evróvisjónkeppninni eru
gagnrýnd vægðarlaust.
» Meira í Morgunblaðinu
Evróvisjónpælingar
Helgi Snær Sig-
urðsson veltir því
fyrir sér í lista-
pistli hvers
vegna myndlist-
inni er ekki gert
hærra undir höfði
í umfjöllun sjónvarpsstöðvanna um
listir. Er myndlistin geimvera sem
enginn veit hvað á að gera við?
»Meira í Morgunblaðinu
Myndlistin út undan
Útvarpsmaðurinn
Brynjar Már Valdi-
marsson talar um
Hlustendaverðlaun
FM 957 og segir FM-
hnakkann, frægan,
sólbrúnan og með
strípur, heyra sög-
unni til enda er stöð-
in orðin 19 ára og því löngu búin á
gelgjunni.
» Meira í Morgunblaðinu
Lög unga fólksins
reykjavíkreykjavík