24 stundir - 03.05.2008, Side 52

24 stundir - 03.05.2008, Side 52
52 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir Í GEGNUM LINSUNA frettir@24stundir.is a Síðustu tvo áratugi var þessi ljúfi alþýðulistamaður meðal vinsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar; biðraðir mynduðust fyrir opnun sýninga hans á Kjarvals- stöðum og í Hafnarborg. Myndhögg- varinn og stytturnar 24stundir/Einar Falur Stoltur Sæmundur færir til verk sem stóðu með öllum veggjum í vinnustofunni, enda komið að sýningu. Skalli Sæmundur kveður Skalla, eða Baldie eins og hann heitir nú þar sem hann er á heimili hjónanna Mary Ellen Mark, ljósmynd- ara, og Martin Bell, kvikmyndagerðarmanns, í New York. Með afkvæmunum Sæmundur færir til verk sem stóðu með öllum veggjum í vinnu- stofunni, endakomið að sýningu. Sköpun Sæmundur setur augnhár á styttu sem er enn í mótun, árið 1993.Kropið Sæmundur krýpur með myndavél frammi fyrir Skalla, sem hafði fylgst með honum í skúrnum árum saman. Geirvörtur Sæmundur útskýrir fyrir ljósmyndaranum og fjöl- skyldu hans hvernig hann bjó til geirvörtur á kvenmynd. Sæmundur E. Valdimarsson myndhöggvari var á nítugasta aldursári þegar hann andaðist á Hrafnistu 13. mars síðastliðinn. Síðustu tvo áratugi var þessi ljúfi alþýðulistamaður meðal vinsæl- ustu myndlistarmanna þjóð- arinnar; biðraðir mynduðust fyr- ir opnun sýninga hans á Kjarvalsstöðum og í Hafnarborg, og stundum lá við slagsmálum er fólk vildi tryggja sér einhverjar af styttunum með blíða svipinn. Lengst af starfaði Sæmundur sem vélagæslumaður í Áburðarverk- smiðjunni í Gufunesi og það var líka þar sem hann hélt sína fyrstu einkasýningu árið 1983. Um skeið hafði Sæmundur þá verið að gera myndir úr tré og grjóti. Hann sýndi verk sín fyrst árið 1974 og varð kunnur fyrir stytt- urnar sem hann mótaði úr reka- viði. Í áranna rás heimsótti Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari Morg- unblaðsins, Sæmund nokkrum sinnum á vinnustofuna í bíl- skúrnum við Tunguveg. Hér birtast nokkrar myndanna sem hann tók.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.