24 stundir - 03.05.2008, Page 52
52 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir
Í GEGNUM LINSUNA
frettir@24stundir.is a
Síðustu tvo áratugi var þessi ljúfi alþýðulistamaður
meðal vinsælustu myndlistarmanna þjóðarinnar;
biðraðir mynduðust fyrir opnun sýninga hans á Kjarvals-
stöðum og í Hafnarborg.
Myndhögg-
varinn og
stytturnar
24stundir/Einar Falur Stoltur Sæmundur færir til verk sem stóðu með öllum veggjum í vinnustofunni, enda komið að sýningu.
Skalli Sæmundur kveður Skalla, eða Baldie eins og hann heitir nú þar sem hann er á heimili hjónanna Mary Ellen Mark, ljósmynd-
ara, og Martin Bell, kvikmyndagerðarmanns, í New York.
Með afkvæmunum Sæmundur færir til verk sem stóðu með öllum veggjum í vinnu-
stofunni, endakomið að sýningu.
Sköpun Sæmundur setur augnhár á styttu sem er enn í mótun, árið 1993.Kropið Sæmundur krýpur með myndavél frammi fyrir Skalla,
sem hafði fylgst með honum í skúrnum árum saman.
Geirvörtur Sæmundur útskýrir fyrir ljósmyndaranum og fjöl-
skyldu hans hvernig hann bjó til geirvörtur á kvenmynd.
Sæmundur E. Valdimarsson
myndhöggvari var á nítugasta
aldursári þegar hann andaðist á
Hrafnistu 13. mars síðastliðinn.
Síðustu tvo áratugi var þessi ljúfi
alþýðulistamaður meðal vinsæl-
ustu myndlistarmanna þjóð-
arinnar; biðraðir mynduðust fyr-
ir opnun sýninga hans á
Kjarvalsstöðum og í Hafnarborg,
og stundum lá við slagsmálum er
fólk vildi tryggja sér einhverjar af
styttunum með blíða svipinn.
Lengst af starfaði Sæmundur sem
vélagæslumaður í Áburðarverk-
smiðjunni í Gufunesi og það var
líka þar sem hann hélt sína fyrstu
einkasýningu árið 1983. Um
skeið hafði Sæmundur þá verið
að gera myndir úr tré og grjóti.
Hann sýndi verk sín fyrst árið
1974 og varð kunnur fyrir stytt-
urnar sem hann mótaði úr reka-
viði.
Í áranna rás heimsótti Einar Falur
Ingólfsson, ljósmyndari Morg-
unblaðsins, Sæmund nokkrum
sinnum á vinnustofuna í bíl-
skúrnum við Tunguveg. Hér birtast
nokkrar myndanna sem hann tók.