24 stundir


24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 62

24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 62
62 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Þeir stóðu sig afar glæsilega gegn FH hér fyrir nokkru og réðu alveg gangi þess leiks. Þeim tókst svo síður upp gegn Val í úrslitunum en ég á von á þeim sterkum. Detroit Red Wings tóku Colo- rado Avalanche í kennslu- stund í átta liða úrslitakeppni NHL-deildarinnar í íshokkí og sópuðu þrautreyndu liði Aval- anche undir teppið í fjórum tilraunum. Er Detroit því komið í undanúrslit fyrst liða en önnur líkleg eru Dallas Stars, sem lék í nótt, Phila- delphia Flyers og Pittsburg Penguins. Slétt og fellt Tilkynningar eru nú að berast frá flestum golfklúbbum um formlega opnun. GKG í Garðabæ hyggst opna Vífils- staðavöll þann tíunda maí en nýi hluti vallarins í Leirdal verður opnaður viku síðar. Fyrsta mót GR hefst á morgun á Garðavelli á Akranesi og Keilir í Hafnarfirði hefur opn- að sinn völl þótt enn sé spilað þar á vetrargrínum Góðir hlutir gerast hægt Vélhjólaíþróttaklúbburinn Vík hyggst brydda upp á þeirri nýbreytni 21. júní næst- komandi að halda miðnæt- urþolaksturskeppni á mót- orkrosshjólum. Er þeirri keppni ætlað að koma í stað hinnar árlegu Klaust- urskeppni sem helsta mót vél- hjólamanna ár hvert en ekið verður samfleytt í sex klukku- stundir á brautum í Bolöldu. Lengsti dagurinn Nú er komin fram líkleg ástæða þess að tennisstjarnan Roger Federer hefur átt mun daprara tímabil í vetur en ver- ið hefur lengi. Hafa læknar tjáð honum að vandfundinn sjúkdómur hafi háð kapp- anum síðan um jól. Ljóst fyrir Valencia og Real Madridræða nú af alvöru til-boð þess síð- arnefnda í sóknarmann- inn David Villa. Hljómar tilboð Real upp á 3,5 milljarða í beinhörðum peningum auk ungstirnanna De la Red og Granero sem báðir eru meðal mestu efna varaliðs Real. Full- yrt er að áhugi Valenciu og Villa sjálfs á að fara til Tottenham sé afar takmarkaður og ólíklegt að Juande Ramos nái að lokka strákinn til Englands. Vorið er komið í Münc-hen en það dugar ekkitil að færa bros á var- ir stjórnar og áhangenda Bayern. 4-0 tap fyrir rússneska liðinu Zenit frá Sankti Péturs- borg í undanúrslitum Evr- ópukeppni félagsliða er meira en menn geta kyngt með góðu móti. Ekki síst þegar haft er í huga að þrjá lykilmenn Zenit vantaði í hóp þeirra. Ekki alveg sá endir sem Ottmar Hitzfeld, stjóri liðsins, vonaðist eftir. Ottmar getur þó huggaðsig við að þýski titill-inn er innan seilingar og sigur um helgina tryggir hann. Sem seg- ir reyndar sína sögu um styrk Bundeslig- unnar. Helgin er einnig merki- leg fyrir þær sakir að þrjú önn- ur félagslið geta tryggt sér titla. United mun með sigri á West Ham taka dolluna enda með miklu hagstæðara markahlut- fall en Chelsea sem mætir New- castle. Sigri Inter Milan AC Milan er titillinn þeirra bláu og Lyon, enn einu sinni, tekur þann franska í sjöunda sinn í röð með sigri að því gefnu að Bordeaux tapi. Þjálfari Chelsea, AvramGrant, telur að hafi starfsitt ein- hvern tíma ver- ið í hættu þá sé sú stund liðin eftir að Chelsea komst upp að hlið United í ensku deildinni og í úrslit Meistaradeildarinnar gegn sama liði. Það sýni og sanni að hann hafi það sem til þurfi. Og Peter Crouch er ífréttum í Englandi.Fyrst kvartaði Harry Redknapp yfir tómlæti Cro- uch sem ekki hefur samband til að ræða að klæðast peysu Portsmouth á næsta tímabili en karlinn sér Crouch sem eð- almann í framlínu liðsins. Í kjölfarið kom í ljós að Rafa Benítez vill skipta á honum og Gareth Barry hjá Aston Villa. Í öllu falli er ljóst að Crouch er ekki í framtíðaráætlunum Spánverjans og hann fer eftir leiktíðina. SKEYTIN INN Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Ég hef fylgst með tveimur leikjum Fram að undanförnu gegn Val og FH og þó leikurinn gegn Val hafi verið heldur lakur þá stóðu þeir sig mjög vel gegn FH,“ segir Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis í Lands- bankadeild karla, en fyrsti leikur Fylkis í sumar er gegn Fram á Fylk- isvelli eftir rétta viku. Leifur hefur þjálfað Fylkismenn síðan 2004 og gjörþekkir getu leik- manna liðsins. Hann metur stöð- una sem svo að hún sé góð fyrir sumarið. Hópurinn? „Við erum til í allan slaginn og höfum æft vel í vetur eins og reyndar alltaf. Breytingar eru í sjálfu sér ekki miklar en ef eitthvað er þá er ég með breiðari hóp núna en fyrir ári.“ Framarar? „Eru góðir og með nýjan þjálfara sem kemur með nýja sýn og nýja hluti. Stóðu sig afar glæsilega gegn FH hér fyrir skömmu og réðu gangi þess leiks. Þeim tókst svo síð- ur upp gegn Val í úrslitum Lengju- bikarsins en ég á von á þeim sterk- um.“ Deildin? „Verður sterk og skemmtileg og ég er forvitinn að sjá hvaða áhrif fleiri leikir og aukið álag mun hafa ef einhver. Persónulega finnst mér breytingin þó aðeins til batnaðar og færir deildinni vonandi enn meiri spennu.“ Spáin? „Vill engu spá.“ Förum í þennan til sigurs  Þjálfari Fylkis metur stöðuna góða fyrir fyrsta leik liðsins ➤ Fylkir náðiaðeins 1-1 jafntefli gegn Fram í fyrra. ➤ Fram hinsvegar sigraði Fylki í Laugardalnum 3-1. ➤ Fylkir endaði í fjórða sætimeð 29 stig. FYRIR ÁRI Væntingarnar miklar Þrátt fyrir ágætan árangur á síðasta ári vildu margir meina að Fylkir hefði spilað undir getu. 24stundir/Sverrir Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@24stundir.is „Mótið verður með skemmtilegra móti að mínu viti og þá fyrst og fremst vegna fjölgunar liða og fleiri leikja sem aftur þýðir að mun meira getur komið upp á en áður,“ segir Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram. Hann hræðist ekkert ferða- lagið upp í Árbæinn en Þorvaldur er á sínu fyrsta ári sem þjálfari Fram eftir að hafa leyst Ólaf Þórð- arson af hólmi í fyrra. Hópurinn? „Vel stemmdur og klár í fyrsta leik. Dálítið breytt lið og ég nýr hér og það er eitthvað sem vinna þarf með áfram en það kemur. Okkur hefur gengið nokkuð bærilega í æf- ingaleikjum í vetur. Margt verið mjög gott og annað miður. Það er eðlilegt hjá hópi sem enn er að pús- last saman.“ Fylkismenn? „Spiluðu fínan bolta í fyrra og á alveg von á þeim í efsta hluta deild- arinnar enda með góðan og þéttan mannskap. Ekkert ókeypis þar.“ Deildin? „Hún verður forvitnileg. Fleiri leikir og álagið harðara. Það getur þýtt fleiri meiðsli sem getur skipt miklu máli þegar fram í sækir og eins spila þeir í svörtu búningun- um stærri rullu kannski en venju- lega vegna þessa.“ Spáin? „Mér kæmi á óvart ef Valur og FH yrðu ekki í og við toppsætið fljótlega. Þau eru hvað best mönn- uð og þar vita menn hvað þarf til. En eins viss er ég um að Breiðablik og jafnvel Fylkir narti í hælana á þessum stóru og jafnvel eitthvert þriðja liðið sem kæmi á óvart. Hvaða lið veit ég hins vegar ekki.“ Stig eða fleiri er takmarkið  Þjálfari Fram telur ekki útilokað að ná stigum af Fylkismönnum ➤ Fram tók fjög-ur stig af sex mögulegum af Fylki. ➤ Heimasigurinngegn Fylki var einn af aðeins þremur leikjum sem Fram vann. ➤ Fram endaði í 7. sæti meðsextán stig. FYRIR ÁRI Bros á vör Leikmenn Fram unnu þó aðeins þrjá leiki allt síðasta tímabil. 24stundir/ÞÖK LANDSBANKADEILDIN 2008 Fylkir - Fram laugardagur 10. maí
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.