24 stundir


24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 66

24 stundir - 03.05.2008, Qupperneq 66
66 LAUGARDAGUR 3. MAÍ 2008 24stundir Tölvuleikir viggo@24stundir.is Loksins, loksins er Grand Theft Auto IV kominn á markaðinn og glæpaþyrstir leikjaaðdáendur geta enn á ný brugðið sér inn í sið- blindan og sjúkan heim Rockstar Games. Söguþráður GTA IV snýst um hinn serbneska Niko Bellic sem kemur til fyrirheitna landsins, nán- ar tiltekið Liberty City í Ameríku, að bón frænda síns í þeirri trú að þar bíði hans ríkidæmi, virðing og stór amerísk brjóst. En um leið og Niko stígur fæti á ameríska grund kemur í ljós að lífið í Ameríku er enginn dans á rósum. Höllin sem átti að bíða hans reynist kakkalakkabæli og blómstr- andi bisness frændans er ómerkileg leigubílastöð. Eftir þetta tekur við hinn klassíska GTA-spilun, Niko sinnir verkefnum fyrir hina ýmsu glæpamenn borgarinnar í þeim til- gangi að vinna sig upp met- orðastiga undirheimanna og færast skrefi nær hefnd og amerískum brjóstum. Lifandi stórborg Í GTA-leikjunum hefur grafíkin alltaf verið í aukahlutverki en um- fangsmikill sýndarheimur, áhuga- verður söguþráður og grípandi tónlist hefur verið aðalatriðið. Í þessari nýjustu útgáfu GTA hefur grafíkin tekið skref fram á við og kemst nokkuð nálægt því að jafn- ast á við það besta sem Playstation 3 og Xbox 360 hafa upp á að bjóða. Liberty City lítur hreint ótrúlega vel út og er hrein unun að aka um götur borgarinnar að næturlagi, sérstaklega þegar rignir. Sögu- persónur sem og gangandi vegfar- endur líta mjög vel út og það er gaman að sjá hve borgin og öll hennar úthverfi iða af lífi. Margt smátt gerir eitt stórt GTA-leikirnir hafa alltaf verið þekktir fyrir að skarta mörgum skemmtilegum smáatriðum. Í GTA IV hafa Rockstar Games hreinlega misst sig í smáatriðunum. Bull- heimasíður sem hægt er að skoða á netinu, fólk sem pissar úti í horni, slagsmál á götum úti og samheng- islaust blaður vegfarenda. Þetta er einungis brot af þeim tilgangslausu smáatriðum sem Rockstar hafa sett inn í leikinn en öll þessi smáatriði leggjast þó á eitt við að gera þenn- an mikla sýndarveruleika aðeins trúverðugari, aðeins meira lifandi og aðeins skemmtilegri. Endalausar úrbætur Nánast allt sem pirraði mann í fyrri GTA-leikjum hefur verið lag- að í GTA IV. Bardagakerfið hefur verið bætt til muna og þar að auki geta leikmenn nú leitað skjóls þeg- ar skothríð óvinanna er orðin að- eins of mikil. Hinn gífurlega leið- inlegi matar/offitufídus úr GTA San Andreas er horfinn á braut og því þarf fólk ekki lengur að hugsa um línurnar á meðan það skipu- leggur næsta stórglæp sinn. Grand Theft Auto IV er hreint út sagt meistaraverk í sögu tölvu- leikjanna. Leikurinn er ótrúlega yf- irgripsmikill og mun endast leik- mönnum mjög vel enda er maður sífellt að uppgötva nýja hluti til að skoða eða gera í Liberty City. Leik- urinn er ofbeldisfullur, kjánalegur og siðlaus en það er einmitt það sem lýðurinn vill. Kunnuglega staða Leikmenn munu oftar en einu sinni lenda í þeirri aðstöðu að hafa lag- anna verði á eftir sér. Siðlaus en stórkostlegur Grand Theft Auto IV er án nokkurs vafa einn stærsti tölvuleikur ársins. Leik- urinn skapar ótrúlega lif- andi heim þar sem sið- blindir glæpamenn, spilltar löggur og Serbi í leit að betra lífi eru í aðal- hlutverkum. Hetja eða skúrkur Serbinn Niko Bellic leitar að betra lífi í Liberty City. Grafík: 96% Ending: 100% Spilun: 100% Hljóð: 100% GTA IV (PS3 og Xbox 360) NIÐURSTAÐA: 99% HITT OG ÞETTA UM GTA IV ● Minna er meira Leiksvæðið í GTA IV er nokkru minna en í síðasta leik. Liberty City-borgin er hins vegar stærsta borgin í sögu GTA-leikjanna og aldrei hefur verið lögð jafn mikil vinna í smáatriðin. ● GTA-félagsmiðstöðin Líkt og í fyrri GTA-leikjum heldur leikurinn utan um alla ólíkleg- ustu tölfræði. Til þess að leik- menn eigi enn auðveldara með að bera saman tölfræði sína og hitta svipað þenkjandi leik- menn hefur vefsíðan Rockstar Games Social Club verið sett á laggirnar. ● Tónlistarniðurhal GTA- leikirnir hafa verið þekktir fyrir frábært úrval tónlistar og GTA IV er engin undantekning þar á. Þegar leikmenn heyra lag í leiknum sem þeim líst vel á, þá geta þeir notað farsímann í leiknum til að merkja við lagið. Svo er hægt að nota fyrrnefnda Rockstar Games Social Club síðu til að kaupa lögin og hlaða þeim niður í heimilistölvuna. ● Umferðarmynstur Alls unnu um 150 manns að gerð GTA IV. Framleiðendur leiksins höfðu á sínum snærum sérstakt rannsóknarteymi í New York borg, sem Liberty City er byggð á, en það teymi hafði meðal annars það verkefni að kort- leggja þjóðerni íbúa í hverfum borgarinnar og að fylgjast með umferðarmynstri. ● Bönnum GTA Grand Theft Auto-leikirnir hafa alltaf verið umdeildir. Einn harðasti and- stæðingur leikjanna er lögfræð- ingurinn Jack Thompson. Nú hefur hann krafist þess að út- gefendur leiksins og fleiri, verði sóttar til saka fyrir að bjóða upp á leik sem er „… það skað- legasta fyrir börn síðan löm- unarveikin var og hét“. „Þetta er einhver besti tölvuleikur sem ég hef spilað á ævi minni og ég er forfallinn Zelda aðdáandi og hef verið í öllu. Upplifunin við þennan leik, sem ég held að sé þessu gríðarlega örfína neti smáatriða að þakka, er engu lík. Þetta er svo umfangsmikið og pakkinn sem þessi leikur er, þetta er ótrúlegt. Þessi leikur er bara „juggernaut of a game.“ Dóri DNA, leikjarýnir Ótrúlega umfangsmikill leikur Þessi leikur er alveg stórkostlegur og í rauninni má segja að þetta sé bara gagnvirk bíómynd. Aðalpersón- an er mjög skemmtileg, þetta er harður nagli sem samt er með viðkvæma sál, glæpamaðurinn sem vill samt gera vel. Síminn er algjör snilld því hann gerir vinnsl- una á öllum verkefnum skilvirkari og skemmtilegri. Í heildina er bara búið að taka það besta úr Grand Theft Auto leikjunum og gera það enn betra og henda út öllu óþarfa böggi og fítusum. Franz Gunnarsson, tónlistarmaður Það besta var gert enn betra Þetta er framúrskarandi og byltingarkenndur leikur sem að mun eflaust kveikja í alveg nýrri kynslóð af þrí- víddar actionleikjum. Öll physic í leiknum er alveg til fyrirmyndar, til dæmis ef maður dúndrar á vegg þá fljúga menn út um framrúðuna. Það sést nú ekki oft. Þarna rætast allir draumar manns sem glæpamanns í New York, maður getur gjörsamlega sleppt fram af sér beislinu. Ekki kaupa þér miða til New York, keyptu þér frekar GTA og gerðu allt sem þig lystir. Sverrir Bergmann söngvari Byltingarkenndur leikur HVAÐ FINNST ÞÉR UM GRAND THEFT AUTO IV? 24GTA 24@24stundir.is a Grand Theft Auto IV er hreint út sagt meist- araverk í sögu tölvuleikjanna. Leikurinn er of- beldisfullur, kjánalegur og siðlaus en það er einmitt það sem lýðurinn vill.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

24 stundir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.