24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 2

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir VÍÐA UM HEIM Algarve 18 Amsterdam 23 Alicante 20 Barcelona 21 Berlín 22 Las Palmas 23 Dublin 14 Frankfurt 24 Glasgow 14 Brussel 24 Hamborg 22 Helsinki 25 Kaupmannahöfn 20 London 19 Madrid 23 Mílanó 19 Montreal 12 Lúxemborg 24 New York 13 Nuuk -1 Orlando 20 Osló 27 Genf 22 París 15 Mallorca 20 Stokkhólmur 18 Þórshöfn 11 Gengur í austan 10-18 m/s með rigningu, fyrst SV-lands, en mun hægari vindur fyrir norðan og austan og þykknar smám saman upp. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á N- og A-landi. VEÐRIÐ Í DAG 9 10 11 9 11 Þykknar upp Breytileg átt, víða fimm til átta metrar á sek- úndu. Skúrir sunnantil, en dálítil rigning fyrir norðan. Hiti 8 til 13 stig á landinu. VEÐRIÐ Á MORGUN 9 10 8 7 10 Skúrir eða rigning Varað er við barnaperra í tölvu- pósti sem gengið hefur manna á milli síðustu daga. Í póstinum segir að maðurinn bæti stelpum á msn-spjallsvæði sitt og beri sig svo fyrir þeim í vef- myndavél. Auk þess hafi hann í frammi kynferðislega tilburði. Netfang mannsins á msn er xjr1300@hotmail.com og kallar hann sig mit_labrador. Þær upplýsingar fengust hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu að lögreglan hefði málið til rannsókn- ar. Í 209. grein almennra hegning- arlaga segir að hver sem með los- tugu athæfi særir blygðunarsemi manna skuli sæta fangelsi allt að 4 árum eða sektum ef brot er smá- vægilegt. fifa@24stundir.is Lögreglan rannsakar msn-perra Berar sig á msn MSN Maðurinn bætir stelpum á spjallsvæðið og berar sig. Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur beva@24stundir.is Matvælafrumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem heimilar innflutning á hráu kjöti verður unnið áfram í landbúnaðar- nefnd Alþingis í sumar. Veruleg andstaða kom fram við frumvarpið á síðustu vikum þingsins í vor. Efasemdir víða Allir flokkar stjórnarandstöð- unnar og hagsmunaaðilar tengdir landbúnaði höfðu miklar efasemd- ir um frumvarpið og áhyggjur af afleiðingunum hefði það orðið að lögum. Sömu áhyggjur mátti líka greina meðal sumra sjálfstæðis- manna líka. Einar K. Guðfinnsson landbún- aðarráðherra segist ekki draga dul á að staða bænda í sumum greinum sé mjög erfið. Verðhækkanir á aðföngum, olíu og fleiri þættir reynast landsbyggð- inni þungir þessa daga. Atvinnu- greinar sem heyra undir ráðuneyti Einars K. Guðfinnssonar, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, verða fyrir búsifjum af þessum og raunar fleiri ástæðum. Ráðherra segir að vandi mjólkurframleið- enda hafi að hluta til verið leystur með breytingum á verði fyrir fram- leiðsluna. Vandi annarra greina sé óleystur. Til dæmis eigi sauðfjár- bændur mjög í vök að verjast. „Ég útiloka ekki breytingar á frumvarpinu um innflutning á hráu kjöti. Þær eiga þá að verða til hagsbóta fyrir bændur og auka matvælaöryggi þjóðarinnar,“ segir Einar. „Ég er sáttur við umræðuna eins og hún þróaðist í vor. Þrátt fyrir andstöðu sáu menn að frum- varpið var ekki lagt fram að tilefn- islausu og að það verður að breyta lögunum til að tryggja útflutnings- hagsmuni þjóðarinnar og uppfylla Evrópuskilmála sem við höfum undirgengist.“ Fagnar tækifæri til að breyta Ráðherrann telur það ekki hafa verið neitt lífsspursmál að sam- þykkja frumvarpið fyrir vorið, eins og mál þróuðust. „Þegar leið á umræðuna var það að mínu frumkvæði sem málinu var frestað og ég fagna því að nú er tækifæri til að fara nánar yfir það í sumar,“ segir ráðherrann. Breytingar í þágu bænda  Ráðherra útilokar ekki breytingar á ætluðum kjötinnflutningi Sauðburður Ekki hefur verið mikið upp úr sauð- fjárbúskap að hafa. Hann ber því illa erfiða tíma. ➤ Bændur höfðu áhyggjur afstöðu innlendrar framleiðslu og aukinni hættu á búfjár- sjúkdómum. ➤ Aðrir telja ekki eftir neinu aðbíða, hætta á sjúkdómum sé stórýkt og brýnt að auka samkeppni með innflutningi. NÝ LÖG ÓUMFLÝJANLEG Leiðrétt Ritstjórn 24 stunda vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Karlmaður á sextugsaldri sem grunaður er um gróf kynferð- isbrot gegn börnum hefur gengist við hluta brotanna. Maðurinn hefur verið kærður fyrir brot gegn níu börnum og hefur hann setið í einagrun til þessa. Að sögn lögfræðings mannsins iðrast maðurinn gjörða sinna mjög og vonast hann til að geta fengið tæki- færi til að biðja konu sína og börn afsökunar. Vísir.is greindi frá. Játar og biðst afsökunar Grunaður barnaníðingur Ríkisstjórnin setti í gær að til- lögu við- skiptaráðherra bráðabirgðalög um breytingu á lögum um Við- lagatryggingu Ís- lands, sem tryggir húseignir og lausafé fyrir tjóni af völdum náttúruhamfara. Sam- kvæmt breytingunni verður lág- mark eigin áhættu lækkað niður í 20 þúsund krónur. Í gildandi lög- unum er kveðið á um að eigin áhætta skuli vera 5%, en aldrei lægri en 40 þúsund. Gert er ráð fyrir heildarendurskoðun lag- anna í sumar og að nýtt frumvarp verði lagt fram í haust. hos Eigin áhætta lækkuð „Það er þörf á nýrri grasrót. Menninrnir inni á Alþingi eru ekki að starfa fyrir okkur af heil- indum,“ segir Sturla Jónsson „trukkari“ sem er formaður nýs stjórnmálaflokks sem hlaut nafn- ið Lýðræðisflokkurinn. Hann segir að stefnuyfirlýsing flokksins verði kynnt eftir helgina og stefnt sé á framboð í næstu alþing- iskosningum. ejg Lýðræðisflokkur Sturlu stofnaður Einar K. Guðfinnsson sjávarút- vegsráðherra vefengir ekki þau orð Arnars Sigurmundssonar að 150- 300 manns missi störf, verði farið að tillögum Hafrannsóknastofnun- ar. „Úthlutun aflaheimilda í öðrum tegundum en þorski verður ákveð- in fyrir mánaðamót,“ segir Einar, sem ræddi stöðu fiskstofna á rík- isstjórnarfundi. Ráðherrann segir þorskkvóta til tveggja ára hafa verið ákveðinn í fyrra samhliða mótun nýrrar aflareglu til framtíðar. Nú verði farið yfir tillögur Hafró um aðrar tegundir. Þótt ekki sé hægt að svara því enn hvað gert verður, seg- ir Einar að tekið verði tillit til Hafró. „Annars þyrftum við engar tillögur,“ Ráðherrann segir engar nýjar mótvægisaðgerðir á dagskrá nú. „Áhrifa þeirra sem þegar eru í gangi fer að gæta meira en verið hefur og þær voru ákveðnar miðað við meira en eins árs samdrátt.“ beva@24stundir.is Ekki meira mótvægi vegna aflasamdráttar Sömu aðgerðir gilda Serbneskur karlmaður þurfti að gangast undir bráðaaðgerð eftir að hann átti samneyti við broddgölt. Töfralæknir taldi manninum trú um að samneytið við broddgöltinn myndi koma í veg fyrir of brátt sáðlát. Mað- urinn uppskar ekki annað en sárar kvalir og áverka. Vandamálin í kynlífinu eru enn til staðar. Serbía Laskaður limur Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra og formaður Sam- fylkingarinnar sendi í gær frá sér yfirlýsingu vegna niðurstöðu Hæstaréttar í Baugsmálinu. Þar segir meðal annars: „Bersýnilegt er að dómstólar kveða upp úr um að umfang rannsóknarinnar og ákær- anna sem gefnar voru út upphaf- lega voru alls ekki í samræmi við tilefnið. Óhjákvæmilega hljóta ís- lensk stjórnvöld að draga lærdóma af þessari útkomu“. Kristrún Heimisdóttir aðstoðarkona hennar segir að Ingibjörg muni ekki tjá sig frekar um málið. Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra segir yfirlýsinguna vera í nafni allra ráðherra Samfylk- ingarinnar. „Við sáum yfirlýs- inguna og hún er send í nafni okk- ar allra og við tökum öll undir hana,“ segir hann. elias@24stundir.is Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um Baugsdóminn Ákærur alls ekki í samræmi við tilefnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.