24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 30

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir Eftir Ásu Baldursdóttur asab@24stundir.is Í gluggalausum kjallara í bænum Amstetten í Austurríki hélt Josef Fritzl dóttur sinni fanginni í 24 ár, eða frá árinu 1984. Elísabet Fritzl, sem nú er 42 ára, hefur sagt lög- reglu frá því að faðir hennar hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi frá 11 ára aldri. Elísabet eignaðist sjö börn Josef segist hafa læst dóttur sína inni vegna óstýrilætis hennar á unglingsárum og til að vernda hana fyrir umheiminum. Elísabet eignaðist sjö börn með föður sín- um, en eitt þeirra lést eftir fæðingu. Lífsýni úr Josef hafa staðfest að hann er faðir allra barnanna. Ekki liggur fyrir hvort hann beitti fleiri börn sín kynferðislegu ofbeldi, en þrjú barna Elísabetar ólust upp hjá honum og konu hans Rosemarie, en hin þrjú hírðust í kjallaradýfliss- unni með móður sinni. Fyrst var bara eitt herbergi í kjallaranum en Josef jók við rýmið þegar barnahópurinn stækkaði. Hann einn var með aðgang að dýfl- issunni og lagði blátt bann við að nokkur kæmi þar nálægt. Hann keypti mat og föt fyrir börn sín í byrginu. Kerstin veiktist Kerstin Fritzl er elst af þeim sjö börnum sem Elísabet eignaðist með Josef föður sínum. Hún fædd- ist í byrginu en kom ekki út undir bert loft fyrr en hún veiktist, þá 19 ára gömul. Þegar Kerstin veiktist alvarlega fóru hjólin að snúast og starfsmenn sjúkrahússins sem hún var lögð inn á fór að gruna að eitt- hvað einkennilegt væri að seyði. El- ísabet losnaði úr prísundinni þegar hún slapp til að athuga með dóttur sína. Kerstin er nú vöknuð úr dái, en á erfitt með að tjá sig en bregst við snertingu. Ekki er enn ljóst af hvaða sjúkdómi hún þjáist en hún hefur gengist undir fjölda rann- sókna. Umfangsmikil rannsókn Fjölskyldan hittist öll í fyrsta sinn seint í apríl eftir að Elísabet og börn hennar þrjú losnuðu úr prís- undinni. Fjölmiðlar hafa greint frá því að sonur Elísabetar, sem er fimm ára, hafi verið furðu lostinn þegar hann sat í bíl í fyrsta sinn og horfði út um gluggann á umhverf- ið. Rannsókn málsins mun taka lengri tíma en ráð var gert fyrir í fyrstu. Elísabet Fritzl og börn hennar geta ekki verið yfirheyrð í langan tíma í einu því læknar vilja ekki leggja of mikið á fjölskylduna en sálfræðingar eru alltaf viðstadd- ir. Rannsóknaraðilar vilja fyrst og fremst reyna að komast að sem flestu um líf Josefs Fritzl og verða systur Elísabetar spurðar út í hugs- anlegt sifjaspell af hálfu föður síns. Elísabet fer daglega í gönguferðir með tveimur barna sinna sem dvöldu í dýflissunni en vel er gætt að því að halda þeim frá ljósmynd- urum og fjölmiðlum. Kerstin hefur neitað að koma fram í viðtölum. 24 ára ofbeldi og innilokun  Josef Fritzl bjó til dýflissu og átti sjö börn með dóttur sinni  Þrjú þeirra sáu aldrei dagsins ljós fyrr en málið komst upp ➤ Josef og Rosemary kona hanseiga sjö börn saman. Dóttir þeirra Elísabet og Josef eiga sex börn saman en þrjú þeirra dvöldu í dýflissunni. ➤ Áætlaður rannsóknartímimálsins er óákveðinn en ákærði mun ekki fá að vera viðstaddur réttarhöldin. ➤ Málið hefur vakið heims-athygli en Kerstin hafa verið boðnar tugmilljónir fyrir einkaviðtöl. FJÖLSKYLDA FRITZL Josef Fritzl Fangelsaði dóttur sína og eignaðist með henni sjö börn. „Þessi hryllingur heldur áfram ef fjölmiðlasirkus stoppar ekki,“ segir Ágústína Ingvarsdóttir sálfræð- ingur. Hún telur að heilunarferlið hjá Elísabetu og börnum hennar byrji ekki, nema þau fái frið. Andleg stjórnun „Ég held bara hreinlega að fólkið þurfi að vera laust frá honum yf- irleitt,“ segir hún og bætir við að hann hafi greinilega kúgað þau andlega og líkamlega allan þennan tíma. „Í rauninni, ef fólkið á nokk- urn tíma að komast út úr þessu, þá er grundvallaratriði að Josef sé haldið frá,“ segir Ágústína. „Það eru allt aðrar forsendur sem börnin í dýflissunni búa við, því þarf að meta hvar þau eru í fé- lagslegum þroska.“ Loftleysi og lokað rými „Það hefur greinilega verið skort- ur á súrefni þarna niðri í kjallara Jo- sefs Fritzl, sem gæti jafnvel hafa leitt til heilaskemmda,“ segir Ágústína. Það er því lykilatriði að meta and- legt ástand fólksins og einnig að skoða hversu veikt það er líkamlega. „Það er nauðsynlegt að hlúa að þeim. Samfélagið þarf að athuga af hverju þetta gerist ítrekað í Aust- urríki.“ Hún bætir því við að það sé óskiljanlegt með öllu af hverju maðurinn hafi komist upp með þetta í öll þessi ár. „Við þurfum að heimfæra þetta hingað heim, svona mál eiga ekki að líðast. Við eigum að hafa ákveðna menningu hjá okk- ur og hafa augun opin,“ segir hún og bætir við að samfélagið beri ábyrgð. „Ef fólk hefur á tilfinning- unni að eitthvað sé að á heimilum eða sér t.d. breytingar á börnum á það hiklaust að láta yfirvöld vita.“ asab@24stundir.is Elísabet og fjölskylda ganga í gegnum mjög erfiða aðlögun „Mikilvægt að fólkið fái frið“ Ágústína Telur að fólkið þurfi frið. „Nú ólst ég sjálf upp við gríð- arlegt harðræði og mikið ofbeldi þó svo að ég sé ekki að líkja þessu tvennu saman,“ segir Thelma Ás- dísardóttir. „Ég held að þetta sé í grunninn það sama, þarna er einn einvaldur sem hefur algjör- lega líf annarra í hendi sér,“ segir hún. Hún segir að fjölskyldan í Austurríki hafi greinilega verið undir hælnum á Josef Fritzl. Persónuleikinn hverfur „Í svona aðstæðum tapast per- sónuleikinn, öll orkan fer í að lifa af og höndla aðstæðurnar,“ segir hún og bætir við. „Maður reynir fyrst og fremst að lifa af. Ég get ímyndað mér að það hafi allt snúist um að halda Josef góð- um,“ segir hún. „Fyrir utan skömmina, sektar- kenndina og þetta andlega nið- urbrot, þá held ég að maður tapi sjálfum sér og sinni persónu í slíku harðræðisumhverfi.“ Sjá umheiminn í fyrsta sinn Thelma telur að börnin í byrg- inu hafi ekki fengið tækifæri til að þróa með sér félagslegan þroska eða málþroska á við önn- ur börn. Erfitt sé að setja sig í spor fjöl- skyldunnar en sé það reynt komi upp í hugann að þau hljóti að hafa mjög brenglaða rýmisgreind. „Það hlýtur að vera gríðarlegt áfall að sjá allt í einu að heim- urinn er stærri en dýflissan.“ Samfélagið þarf að vakna „Þetta er gríðarlega flókið mál og það er ómögulegt að ímynda sér andlegt ástand fólksins,“ segir Thelma. Hún telur að fólk eigi erfitt með að ímynda sér að svona hræðilegir atburðir séu í gangi. „Nú voru þrjú börn inni á heimili Fritzl og þau hljóta að hafa sótt skóla og mér þykir afar einkennilegt að enginn hafi leit- að uppi móðurina.“ Thelma tel- ur að fólk eigi að láta vita ef grunsemdir vakna. „Ef fólkið fær góða aðstoð er ég bjartsýn á að þau lifi góðu lífi þó svo að þetta hverfi aldrei. Maðurinn á ekki að ganga laus. Það er grundvallarat- riði.“ asab@24stundir.is Thelma Ásdísardóttir hjá Stígamótum „Þetta hefur verið andlegt fangelsi“ Hræðileg meðferð Thelma telur at- burðina í Austurríki skelfilega. RÝNIR frettir@24stundir.is a Maður reynir fyrst og fremst að lifa af. Ég get ímyndað mér að það hafi allt snúist um að halda Josef góðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.