24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 6

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir „Þetta er mjög stór dagur í at- vinnusögu Suðurnesja,“ segir Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra sem ásamt öðrum tók skóflustungu að fyrsta kerskála ál- vers Norðuráls í Helguvík í gær. „Hér er atvinnuleysi helmingi meira en annars staðar á landinu þannig að það er mikil ánægja með þetta á Suðurnesjum og auðvitað fögnum við því,“ segir Björgvin. Hann segir að aldrei hafi verið sér- stök ósamstaða um framkvæmdina innan Samfylkingarinnar. „Helgu- víkin var búin að vera í undirbún- ingi í fjögur ár þannig að það mál var bara komið svo langt af stað þannig að þó menn hefðu viljað var ekki hægt stoppa það af.“ Fyrsta jarðvarmaálverið Ragnar Guðmundsson forstóri Norðuráls segir það vera ánægju- efni að álverið í Helguvík verður fyrsta álverið heiminum sem ein- göngu er knúið raforku frá jarð- varma. „Niðurstaðan verður álver í allra fremstu röð sem við getum verið mjög stolt af,“ segir hann. Mikil eftirvænting Oddný Harðardóttir bæjarstjóri í Garði segist verða vör við sívax- andi eftirvæntingu í bæjarfélaginu. „Þar er horft til þeirrar kjölfestu í atvinnu og þeirra tekjumöguleika sem álverið mun skapa þegar sjáv- arútvegurinn er að gefa eftir. Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar tekur undir með Oddnýju og segir mikinn einhug ríkja. elias@24stundir.is Skóflustunga tekin að álveri Norðuráls í Helguvík „Þetta er mjög stór dagur“ Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@24stundir.is 09.00 Eftir nætursvefn ífjölskylduhúsinu mínu, Stöng á Laugarvatni, ók ég að Selfossi og hóf þar störf um klukkan 09.00. Ég hef ekki enn útvegað mér starfsstöð á Selfossi og fékk því innskot hjá bæjar- stjóranum í ráðhúsi Árborgar. Morguninn leið sem örskot við tölvuvinnu og fjölda símtala. 12.00 Ég sat fund ásjúkrahúsi Heil- brigðisstofnunar Suðurlands með áfallateymi en þar voru saman komnir sérfræðingar og reynslu- boltar frá heilbrigðisstofnuninni, Rauða krossinum, Landsspítalan- um, Landlækni, sveitarfélögun- um og fleirum. Rætt var um verkaskiptingu, húsnæðismál áfallahjálparinnar og helstu við- fangsefni í sálfræðilegum stuðn- ingi sem fólk þyrfti á að halda. 13.30 Ég heimsótti þjón-ustumiðstöðina í Tryggvaskála og fundaði með ein- um af sérfræðingunum í áfalla- hjálpinni. Ég skrifaði jafnframt fyrstu drög að fréttatilkynningu en daginn eftir, föstudag, var áætlaður blaðamannafundur með bæjarstjórum á svæðinu og öllum fjölmiðlum um stöðu mála viku eftir jarðskjálftana. 16.00 Ég sat samráðsfundbæjar- og sveitar- stjóra á jarðskjálftasvæðinu og nærsveitum ásamt sýslumanni, lögreglu og fulltrúa Sambands sveitarfélaga. Ég þurfti að taka stutt fundarhlé til þess að svara í viðtali hjá Kristjáni Má á Stöð 2. 18.00 Fundaði með Við-lagatryggingu um mat á tjóni og þá vinnu sem að hefur farið fram. Eftir fundinn fór ég svo í heimsókn í þjónustu- miðstöðina í Tryggvaskála. 20.00 Borgarafundur íHótel Örk í Hvera- gerði. Eftir hann ók ég til Reykja- víkur og hélt tölvuvinnu áfram á heimili mínu. 01.00 Ég lagði lokahönd áfréttaefni til af- hendingar á blaðamannafundi sem átti að halda daginn eftir. 04.00 Ég sofnaði værumsvefni í eigin rúmi. Þar með lauk löngum og ströng- um vinnudegi. Það eru mikil for- réttindi að geta orðið fólki að liði með því sem ég hef getað gert hér og svefninn varð því vær. Á vaktinni Ólafur hef- ur haft í nægu að snú- ast síðan hann tók við sem verkefnisstjóri. Í samræmingu á Suðurlandi 24stundir með Ólafi Erni Haraldssyni, verkefnisstjóra á jarðskjálftasvæðunum á Suðurlandi ➤ Ólafur Örn Haraldsson er fyrr-verandi þingmaður Fram- sóknarflokksins. ➤ Hann var forstjóri Ratsjár-stofnunar fram á síðasta haust. ➤ Síðan þá hefur hann einbeittsér að formennsku í Ferða- félagi Íslands og fjalla- mennsku. ÓLAFUR ÖRNÓlafur Örn Haraldsson hóf störf sem verkefn- isstjóri á jarðskjálfta- svæðunum í Árnessýslu 4. júní síðastliðinn. Hann hefur haft í nægu að snú- ast síðan þá. Eignastu lögin af nýjustu plötu Bubba á undan öllum Lifðu núna Nú getur þú keypt lögin af væntanlegri plötu Bubba Morthens hjá Vodafone og spilað þau aftur og aftur úr símanum þínum. Prófaðu hvað þetta er þægilegt, náðu í titillagið Fjórir naglar með því að senda SMS skilaboðin lag Bubbi í 1900 eða farðu á vodafone.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.