24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 16

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir 24stundir Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Björg Eva Erlendsdóttir Magnús Halldórsson Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Gylfi Þór Þorsteinsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: frettir@24stundir.is, auglysingar@24stundir.is, 24stundir@24stundir.is, Prentun: Landsprent ehf. Nú, níu dögum eftir Suðurlandsskjálftann, gefst tími til að velta fyrir sér hvort allt hafi farið eins og best verður ákosið. Fréttir af óánægju íbúa Þorlákshafnar með fyrstu viðbrögð sveitar- stjórnarinnar í Ölfusi eru þær einu sem hafa leitt í ljós einhverja hnökra við hjálparstarfið. Íbúar annarra sveitarfélaga hafa ekki kvartað yfir skipu- lagsleysi eða ónógri aðstoð. Enda hafa yfirvöld svo gott sem snurðulaust leyst þau brýnu verkefni sem upp hafa komið. Íbúarnir hafa getað leitað sér áfallahjálpar frá fyrstu stund. Tryggingafélögin brugðust skjótt við. Viðlagatryggingasjóður hófst strax handa og ríkisstjórnin lagði fram fé svo að lögregla og heilsugæsla gætu athafnað sig án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að eyða um efni fram. Fyrst í gær var hins vegar haldinn íbúafundur sérstaklega fyrir útlend- inga á Suðurlandi. Fundurinn er haldinn einni og hálfri viku eftir skjálft- ann stóra. Þar voru túlkar sem töluðu ensku, pólsku og litháísku. Í fund- arboðum voru atvinnurekendur hvattir til að láta þá sem ekki tala ensku vita af fundinum. Þegar rýnt er í tölur Hagstofu Íslands má sjá að erlendir ríkisborgarar á landinu voru 7.271 árið 2000 þegar Suðurlandsskjálfti reið yfir. Hlutfall erlendra ríkisborgara var 2,6 prósent á landinu öllu. Síðan þá hefur er- lendum ríkisborgurum fjölgað á landinu og nú átta árum seinna er hlut- fallið 6,8 prósent. Skráðir erlendir ríkisborgarar eru 21.434. Þó að reikna megi með því að einhverjir þeirra sem búa á Suðurlandi hafi þegar leitað sér hjálpar hjá Rauða krossinum og þeim starfsstöðvum sem settar hafa verið upp eftir skjálftann eru örugglega margir sem hafa ekki vitað hvert þeir ættu að snúa sér. Hætt er við að þeir hafi upplifað sig utangarðs þessa níu daga frá skjálftanum. Það er góðra gjalda vert að hugað sé að erlendum borgurum þessa lands og fundurinn nú haldinn. Betra seint en aldrei. En þótt búast megi við að langan tíma taki að leysa allan vandann er ljóst að yfirvöld hafa nýtt sér reynsl- una af skjálftanum árið 2000. Þó má spyrja; gleymdist að skoða hvort samfélagið hefur breyst og hvort það hefur áhrif á viðbrögð við hamförum? Þetta eru mikilvægar spurningar á tímum alþjóðavæðingar. Nýjar áætlanir en breytt samfélag Kaþólski sértrúarsöfnuðurinn er kominn upp á háa C út af auglýs- ingu Símans á G3-símum. Þar er gert grín að of- sóknum kaþólsku kirkjunnar gegn Galileó Galilei og öðrum andans mönnum. Þetta er ekki einhliða áróður, heldur sannleikurinn eins og hann var. Af hverju má ekki gera grín að svartri sögu kaþólsku kirkj- unnar? Sjálfsagt er að gera grín að kaþólikkum. Þeir gera sig breiða í nútímanum án þess að biðjast afsökunar í bak og fyrir á fortíðinni. Auðvitað mega þeir hafna viðskiptum við Símann. Jónas Kristjánsson jonas.is BLOGGARINN Andans menn Þá er því loks lokið þessu maka- lausa Baugsmáli.[…] Og til hvers var svo unnið öll þessi ár fyrir allt þetta fé? Jú til þess að sanna „sekt“ hins meinta höf- uðpaurs, Jóns Ás- geirs, sem sam- kvæmt dómi Hæstaréttar reyndist jafnast á við umferð- arlagabrot að viðurlögum – eins og dæmt hafði verið í héraði. Eftir því sem þetta mál hefur staðið lengur, og því meira sem hefur verið um það fjallað, þeim mun frekar hef ég hallast á að fjármunum og tímanum sem fóru í rekstur þess hefði verið betur varið í annað. Ólína Þorvarðardóttir olinathorv.blog.is Þá er því lokið Ég skellti mér að yfirlögðu ráði í bíó til að sjá skvísurnar úr þátt- unum ,,Sex and the City“ sigra götur New York borgar á Manolo Blank skónum sínum. Datt aldr- ei í hug að þær myndu skilja eftir sig nokkurs kon- ar speki til að fara með heim en ég var handviss um að þær yrðu skemmtilegar. Og myndin stóðst væntingar hvað skemmtunina varðaði og í henni má varla finna miklar og djúpstæðar pælingar um hvernig lækna megi heimsins böl. Og jafnvel þó maður gæti blindast í allri neysluhyggjunni sem hvílir eins og mara yfir þeim stöllum … Bryndís Hlöðversdóttir bryndisisfold.blog.is Beðmálin Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@24stundir.is „Já, maður var nú oft hræddur í stríðinu,“ sagði gamall maður sem sat í stofunni heima hjá sér og horfði á sjónvarpið. Þar var verið að senda út fréttaviðtal við fjögurra ára dreng og móður hans á Selfossi. Skelfing drengsins var augljós öllum sem á horfðu. Hinn duldi ótti almenn- ings eftir jarðskjálftana, vegna nýrra en ekki síður gam- alla áfalla er hins vegar fæstum ljós. Snjóflóðin á Vest- fjörðum, Suðurlandsskjálftinn 2000, stríð úti í heimi eða bílslys vakna í minningunni og fólk endurlifir hættuástand sem það hélt sig vera löngu búið að jafna sig á. „Þetta er velþekkt í áfallafræði,“ segir Berglind Guð- mundsdóttir, doktor í klínískri sálfræði, sem hefur sér- hæft sig í stuðningi við fólk eftir áföll og meðferð við afleiðingum áfalla. Tilfinningagos eftir jarðskjálfa Aðgát í nærveru sálar fær sérstaka þýðingu þegar fólk er lamað af áföllum. Áhuga- eða skilningsleysi í umhverfinu, skortur á upplýsingum, slæmt síma- samband og léttúð eða þekkingarskortur í fjölmiðlum hefur valdið fólki þungum raunum. Í viðtölum áfalla- hjálparinnar síðustu daga hefur komið fram að versta upplifunin var hjá þeim sem ekki náðu í sína nánustu strax til að vita hvort þeir væru óhultir. Fólk sem upp- lifði Vestmannaeyjagosið árið 1973 tekur atburðina nú inn á sig. Margir sem fluttu upp á land settust að í þessum bæjum. Kona úr Vestmannaeyjum, sem upp- lifði gosið en ekki skjálftann, talaði við blaðið. Hún hafði áhyggjur af því að fólk fengi ekki næga hjálp. „Ég veit um fólk sem ráfaði stefnulaust um göturnar á Sel- fossi og hafði ekki rænu á því að leita sér hjálpar. Eng- inn sem ekki hefur reynt veit hvernig stóráföll fara með mann og ég held að það sé ekki tekið nógu alvarlega.“ Áföll kalla líka fram það besta Berglind Guðmundsdóttir segir eðlileg viðbrögð ýmiskonar. „Líkamleg, strax á eftir, hækkandi blóð- þrýstingur, brjóstverkur, svimi, þreyta, ógleði, svefn- truflanir, verkir. Matarlyst fer úr skorðum. Fólki bregður auðveldlega, sterkar tilfinningar, reiði, ótti, depurð, óróleiki, kvíði, sorg eða sektarkennd, stundum líka doði. Ringlun og minnisleysi og erfiðleikar sem Fortíðardraugar kveðnir niður SKÝRING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.