24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 43

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 43
24stundir/Kristinn 24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 43 ir. Fjölskyldan dvaldi meira og minna þar ytra á árunum 1980- 1988. „Ég var tíu ára þegar við fórum fyrst út,“ rifjar Anna Mjöll upp. „Þau luku samt bæði stúdents- prófi hér á landi og Andri lærði læknisfræði hér,“ útskýrir Ólafur Gaukur. Voru þetta fyrirmyndarbörn? „Ég verð að segja það,“ svarar hann. „Ég borgaði honum fyrir að segja þetta,“ segir Anna Mjöll, snögg upp á lagið. Hvernig barn var Anna Mjöll? „Hún var glatt barn. Alltaf bros- andi og glöð, alla sína tíð.“ Hver er þín fyrst æskuminning, Anna Mjöll? „Mér er sagt að þegar ég var tveggja ára á fjölskylduferðalagi uppi í sveit hafi ég setið í aftursæt- inu og sungið af innlifun: „Ég skal bíða þín og ég bið þú komir heim … ég skal brosa í gegnum tárin.“ Svona var ég strax orðin óþolandi þegar ég var tveggja ára! Það var gott að alast upp í Fossvog- inum, þar var alltaf hópur af krökkum úti að leika. Svo tæmdist hverfið þegar Tommi og Jenni voru í sjónvarpinu.“ Manstu eftir einhverjum bernskubrekum? „Okkur krökkunum fannst gaman að henda kartöflum ofan í skorsteininn hjá nágrannanum,“ svarar Anna Mjöll en Ólafur Gauk- ur maldar í móinn. „Þetta er bara vitleysa. Hún er bara að grafa eitt- hvað upp. Hún var ekki svoleiðis barn.“ „Hann fékk aldrei að vita neitt,“ segir hún og glottir. „En ég var reyndar frekar seinþroska og þegar hinar stelpurnar fóru á rúntinn og svona var ég bara heima í fótbolta. Ég var ekkert „in“ í skólanum. Eig- inlega frekar hinum megin. En mér leið ágætlega þar.“ Í hennar huga kom aldrei neitt annað til greina en tónlist. Ólafur Gaukur reyndi fyrir sér í læknis- fræði en svo tók gítarinn öll völd. Hann kenndi á gítar á milli þess sem hann stundaði námið í Banda- ríkjunum. Anna Mjöll flutti út árið 1992. „Þá hófst mitt ævintýri,“ seg- ir hún. Hún hafði þá m.a. afrekað það að ljúka stúdentsprófi frá MR, fara til Frakklands í frönskunám og leika í söngleiknum Gæjar og glanspíur sem sýndur var í Broad- way og í Hollywood. Þá hefurðu nú væntanlega þótt hipp og kúl í skólanum? „Það var öllum slétt sama. Nema þýskukennaranum mínum. Fyrstu tímarnir á mánudögum voru þýska en þá tíma notaði ég alltaf til að taka af mér rauðu neglurnar sem ég hafði verið með um helgina. Kennaranum fannst ég ekki ein- beita mér alveg nógu mikið að náminu. Einu sinni þegar ég tók eina rauðu nöglina af flaug hún upp í loftið og lenti á bókinni sem hann var að lesa. Það varð dauða- þögn í bekknum. Kennarinn horfði á nöglina og sagði svo: „Anna Mjöll! Eruð þér að detta í sundur?“ Rússneski ruddinn Anna Mjöll flutti til Los Angeles og hóf nám við sama skóla og faðir hennar forðum. Hann fór hins veg- ar fljótlega á hausinn og færði hún sig þá yfir í annan, Musicians Insti- tute, þar sem hún lærði hljóm- borðsleik. Skömmu seinna, árið 1996, hafði Sjónvarpið samband við hana og bað hana að semja lag fyrir Eurovision-söngvakeppnina. „Ég hringdi í pabba og sagði HJÁLP! Við gerðum þetta saman, fórum út til Noregs með lagið Sjú- bídú og það var ein skemmtilegasta vika sem ég hef upplifað,“ rifjar hún upp. „Þá var stór hljómsveit á staðn- a Á móti okkur sat ut- anríkisráðherrann sem skalf eins og hrísla af hræðslu við forsetann. Alexander vildi að allir skáluðu í vodka. Ég tók smásopa en þá sagði hann: Nei, nei, þú móðg- ar þjóð okkar ef þú drekkur þetta ekki allt! Samrýmd feðgin Anna Mjöll og Ólafur Gaukur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.