24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 4

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 4
NEYTENDAVAKTIN Gjaldeyriskaup, úttekt í seðlum Fjármálastofnun Seðlagengi Verð fyrir 500 evrur Forex, Bankastræti * 121,59 60.795 Landsbankinn 121,64 62.820 Byr 121,78 60.890 Kaupþing 121,80 60.900 Glitnir 121,84 60.920 Landsbankinn, Leifsstöð 122,86 61.430 * Gengi 6. júní kl. 13-13:30 4 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir Börn sem búa jafnt hjá báðum foreldrum til skiptis eftir skilnað eru í betri tengslum við foreldra sína en börn sem búa við aðrar að- stæður. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar Þórodds Bjarnasonar félagsfræðings og Ársæls Más Arn- arssonar sálfræðings er þeir kynntu á málþingi um rannsóknir í jafn- réttismálum sem Jafnréttisstofa og Rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri stóðu fyrir í gær. Gott samkomulag nauðsyn „Þetta kom okkur mjög ánægju- lega á óvart. Margir hafa haldið því fram að það sé vont fyrir börn að búa á tveimur stöðum út af rótinu sem því fylgir og talið það koma niður á félagstengslum við foreldra og vini. Þessi könnun sýnir hins vegar að þessir krakkar eru jafn vel settir, ef ekki betur en aðrir,“ segir Þóroddur. Þá segir hann börnin bæta upp fyrir rótið sem þau upplifa með því að reiða sig meira á vinahópinn, sem sé alltaf til staðar. Ólíkar aðstæður innan hópsins Hann bendir þó á að þetta form henti ekki í öllum aðstæðum. For- eldrar sem velji að vera jafnt með börnin hafi líklega oft með sér gott samkomulag fyrir sem sé nauðsyn- legt til þess að barninu líði vel. Þá minnir hann á að innan þess hóps sem býr jafnt hjá báðum for- eldrum sé töluverð fjölbreytni. „Það geta verið mjög ólíkar að- stæður á milli þeirra sem búa hjá tveimur einstæðum foreldrum til skiptis eða þegar báðir aðilar hafa stofnað nýjar fjölskyldur sem barn- ið svo að segja heimsækir aðra hverja viku,“ segir hann. Börnin undir minna eftirliti Það neikvæða sem kom hins vegar fram í könnuninni er að börn sem búa við þessar aðstæður eru undir minna eftirliti foreldra en önnur. „Það er auðvitað skiljanlegt því erfiðara er að hafa yfirlit yfir vina- hópinn þegar barnið er bara hjá viðkomandi foreldri í viku í senn og jafnvel á öðrum stað í bænum hina vikuna,“ segir Þóroddur. thorakristin@24stundir.is Ný rannsókn um félagstengsl grunnskólabarna kynnt á málþingi um rannsóknir í jafnréttismálum á Akureyri Betri tengsl ef börnin búa jafnt á báðum stöðum ➤ Lögð var fyrir spurn-ingakönnunin Heilsa og lífs- kjör skólanema í öllum 6., 8., og 10. bekkjum landsins vor- ið 2006. Um 11800 nemendur svöruðu, eða um 86% hóps- ins. RANNSÓKNIN Eftirlit Þóroddur Bjarna- son segir börn sem búa jafnt hjá báðum for- eldrum hafa meiri sam- skipti við foreldrana. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@24stundir.is „Lögin eru ótvíræð, menn sem hafa hlotið dóma fyrir refsiverða háttsemi mega ekki sitja í stjórn- um,“ segir Skúli Jónsson, forstöðu- maður Hlutafélagaskrár, um dóm Hæstaréttar í Baugsmálinu sem féll á fimmtudag. Í 66. grein hlutafélagalaga segir að stjórnarmenn eða fram- kvæmdastjórar megi ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verkn- að í tengslum við atvinnurekstur. Jón Ásgeir Jóhannesson, sem hlaut þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fyrir bókhaldsbrot, er meðal annars starfandi stjórnarformaður Baugs, stjórnarformaður FL Group og stjórnarformaður fjölmiðlafyr- irtækisins 365. Skúli segir að það virðist því ljóst að sakborningarnir í málinu séu ekki lengur hæfir til að sitja í stjórnum. Skylda á stjórnarmönnum Hann telur það hins vegar vera á ábyrgð stjórnanna sjálfra að sjá til þess að félögin séu rekin löglega. „Í 64. grein hlutafélagalaga segir að ef starfi stjórnarmanns lýkur áður en kjörtímabili hans er lokið, eða hann uppfyllir ekki lengur skilyrði til að geta verið í stjórn, sem er meðal annars að hafa ekki hlotið dóm fyrir refsivert athæfi, þá hvílir sú skylda á hinum stjórnarmönn- unum að efna til kjörs nýs stjórn- armanns.“ Aðspurður hvað myndi gerast ef hinir dæmdu eða stjórnir fyrir- tækjanna gripu ekki til aðgerða segir Skúli of snemmt að segja til um hvað Hlutafélagaskrá gæti gert. „Ef dæmdur maður væri tilkynnt- ur inn í stjórn þá bæri okkur lög- um samkvæmt að hafna slíkri til- kynningu.“ Fordæmi séu fyrir því að mönnum hafi verið neitað um slíka skráningu en að hann muni ekki til þess að þeim sem þegar sitja í stjórnum hafi verið gert að segja af sér. Í refsingarkafla hlutafélagalaga kemur þó skýrt fram að ef stofn- endur, stjórnendur, framkvæmda- stjóri eða aðrir tengdir aðilar van- rækja skyldur sínar samkvæmt lögunum getur „Hlutafélagaskrá boðið þeim, að viðlagðri ákveðinni dagsekt eða vikusekt, að inna skylduverk að hendi“. Gæti komið inn á borð FME Niðurstaða Hæstaréttar gæti einnig komið inn á borð Fjármála- eftirlitsins (FME) þar sem FL Gro- up er stærsti eigandi fjármálafyr- irtækis, Glitnis banka, með tæplega fjórðungs eignarhlut. Íris Björk Hreinsdóttir, upplýs- ingafulltrúi FME, segir of snemmt að segja til um hvort svo verði þar sem stutt sé síðan niðurstaðan lá fyrir. „Í ljósi þess verður skoðað hvort og hvaða áhrif hún hefur í tengslum við þau lög sem Fjár- málaeftirlitið hefur eftirlit með.“ Bannað að veita lánin Í dómi Hæstaréttar kemur fram að refsiheimildir í hlutafélagalög- um séu nógu skýrar til að hægt hafi verið að dæma Jón Ásgeir fyrir að hafa látið Baug lána Gaumi, félagi í eigu Jóns Ásgeirs og fjölskyldu hans, yfir 200 milljónir króna á meðan hann var forstjóri fyrirtæk- isins. Þorri lánanna var til að fjár- magna kaup á hlutabréfum í Baugi og hluti þeirra var ógreiddur þegar húsleit var gerð hjá Baugi í ágúst 2002. Um er að ræða þrjá ákæruliði af þeim átján sem Hæstiréttur dæmdi í. Jóni Ásgeiri var hins veg- ar ekki gerð sérstök refsing þar sem brotin voru talin fyrnd. Boltinn hjá öðrum stjórnarmönnum  Ótvírætt í hlutafélagalögum að dæmdir menn mega ekki sitja í stjórnum Á ábyrgð stjórnanna að sjá til þess að félög séu rekin löglega  Refsiheimild fyrir hendi í lögum Víðtæk áhrif Niðurstaða Hæstaréttar hefur þau áhrif að sakborningar verða að segja sig úr stjórnum. ➤ 64. grein setur þær skyldur áherðar annarra stjórn- armanna að kjósa nýjan stjórnarmann fyrir þann sem hefur hlotið dóm fyrir refsi- vert athæfi. ➤ 66. grein segir að hver semhefur hlotið slíkan dóm megi ekki sitja í stjórnum. LÖG UM HLUTAFÉLÖG Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Listaháskóla Íslands til að greiða fyrrverandi nemanda sínum 450.000 krónur í bætur vegna heilsutjóns sem hún varð fyrir eftir að hafa andað að sér eit- urgufum á námskeiði í skólanum. Konan varð fyrir tjóninu í janúar árið 2001. Konan fór fram á að fá rúmar fimmtán milljónir í bætur. Dómurinn taldi að af hálfu skól- ans hefði óvarlega verið staðið að verki við meðhöndlun efna þeirra sem framkölluðu eiturgufurnar. Dómurinn taldi ekki sannað að at- vikið hefði valdið stefnanda varan- legri örorku. Taldi dómurinn eðli- legt að greiða henni miskabætur sem áður segir. ejg Listaháskólinn skaðabótaskyldur Bætur vegna tjóns Sýknudómur Hæstaréttar í gær yfir mönnunum tveimur sem í héraði voru fundnir sek- ir um umboðssvik í svonefndu netbankamáli nær ekki til þeirra tveggja sem ekki áfrýjuðu. Fjórir voru upp- haflega ákærðir og fengu allir skilorðsbundinn fangels- isdóm. Í ljósi dóms Hæstaréttar mun endurupptaka málsins fyrir héraðsdómi vera heimil og munu tvímenningarnir óska eftir áfrýjunarleyfi til að taka málið upp aftur. mbl.is Netbankamálið Áfrýjunarleyfis verður óskað Stangveiðitímabilið hófst í Norðurá og Blöndu sl. fimmtudag en árnar hafa ver- ið opnaðar sama dag und- anfarin ár. Því hefur myndast hefð fyrir góðlátlegum met- ingi á milli Stangveiðifélags Reykjavíkur og Lax-ár um í hvorri ánni sé meira veitt í fyrsta holli. Því lýkur á hádegi í dag. Á hádegi í gær var Lax-á með yfirburði því 12 laxar höfðu veiðst í Blöndu en sex í Norðurá. þkþ Fyrsta laxveiðihollið Lax-á með mikla yfirburði Lýstar kröfur í þrotabú verktaka- fyrirtækisins Arnarfells á Ak- ureyri nema rúmum 3,7 millj- örðum króna. Þar af nema veðkröfur tæpum 360 milljónum og forgangs- kröfur um 59 milljónum, sam- kvæmt Vikudegi. Stærstu kröfu- hafar eru Lýsing, með kröfur upp á 1,6 milljarða og Norðurverk sem krefst 555 millj- óna. Þá hefur Landsvirkjun lýst kröfum upp á 397 milljónir og Landsbankinn upp á 355. Haft er eftir Árna Pálssyni skiptastjóra að ekki sé að fullu ljóst hve mikl- ar eignir tilheyri búinu en það ætti skýrast eftir skiptafundinn, 13. júní næstkomandi. þkþ Kröfur í þrotabú Arnarfells Nær 4 milljarðar Neytendasamtökin eru frjáls félagasamtök: stofnuð árið 1953. Þau verja hag félagsmanna og berjast fyrir hagsmunum neytenda. Sjá www.ns.is - netfang:ns@ns.is Þegar keyptur er gjaldeyrir í seðlum hjá bönkum er ekki stuðst við svokallað almennt gengi sem birtist í töflu á heimasíðu bankanna eða á sölustað, heldur er skráð sérstakt seðlagengi sem er 1,5-2% hærra en al- menna gengið. Forex er ódýrast í þessu tilfelli en Landsbankinn Leifsstöð dýrastur, þó að munurinn sé aðeins 1%. Gjaldeyrir misdýr Þuríður Hjartardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.