24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 21
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 21
Bryndís Ósk Jónsdóttir
Meistaranemi í lagadeild
Það byrjar á Bifröst.
Nám til BS gráðu í viðskiptalögfræði á Bifröst er hið eina sinnar
tegundar við íslenskan háskóla. Viðskiptalögfræði er hagnýtt nám
sem sameinar greinar á sviði lögfræði, reksturs og fjármála og opnar
fjölbreytta möguleika strax að námi loknu. Framhaldsnám í lög- eða
viðskiptafræði er einnig spennandi kostur. Í lögfræðihluta BS-námsins
eru kenndar grunngreinar lögfræðinnar, auk réttarsviða sem lúta að
rekstri fyrirtækja og rekstrarumhverfi í víðu samhengi. Í viðskipta-
fræðihluta námsins er farið gaumgæfilega í grunnþætti rekstrarhag-
fræði og fjármála. Á lokaönn eiga nemendur kost á skiptinámi erlendis.
Af þeim sem sækja um fyrir 1. maí eiga 5 bestu umsækjendur í hverri
námsleið kost á veglegum námsstyrkjum í formi 50% afsláttar af
skólagjöldum fyrstu annar. Allar nánari upplýsingar á bifrost.is.
BS nám í
viðskiptalögfræði
www.bifröst.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
3
12
0
VIÐSKIPTADEILD
• BS í viðskiptafræði
• BS in Business Administration
• MS í alþjóðlegri banka-
og fjármálastarfsemi
• MS í alþjóðaviðskiptum
• MS í stjórnun heilbrigðisþjónustu
• BA í heimspeki, hagfræði
og stjórnmálafræði (HHS)
• MA í menningarstjórnun
• MA í Evrópufræðum
FÉLAGSVÍSINDADEILD
• BS í viðskiptalögfræði
• ML í lögfræði
• MA í skattarétti
LAGADEILD
• Staðnám
• Fjarnám
FRUMGREINADEILD
háskólinn á bifröst
10. JÚNÍ
rennur
umsóknar-
fresturinn
út!
Eftir álagstíma sem fylgir próf-
um ríkir nú á mörgum heimilum
10. bekkinga ákveðinn léttir þegar
þeim hafa borist niðurstöður sam-
ræmdra prófa og þau fengið skóla-
einkunnir í hendur. Ákveðnum
áfanga í lífi þeirra er lokið og marg-
ir líta á námsmatið sem uppskeru
eftir 10 ára grunnskólagöngu
barnsins.
Það er þó ljóst að nemendur
skunda fullir sjálfstrausts og eftir-
væntingar út í sumarið og framtíð-
ina en aðrir sitja niðurlútir og von-
sviknir yfir niðurstöðunum. Á
slíkum stundum er vert að hafa í
huga að manngildi nemenda verð-
ur ekki mælt með tölulegum mæli-
kvarða. Það hvernig foreldrar og
nærumhverfi bregðast við þeim
tölulegu viðmiðum sem fram
koma á einkunnaspjaldinu getur
haft mikil áhrif. Uppbyggjandi
samræða, hvatning og stuðningur
foreldra getur skipt sköpum á þess-
um tímamótum.
Próflausnin heim
Finnist fólki niðurstaðan alger-
lega óskiljanleg er hægt að kynna
sér matið betur með því að fá að sjá
próflausnina. Hægt er að sækja um
að fá próflausnina senda heim í
pósti en til þess þarf að fylla út
ákveðið eyðublað sem forráðamað-
ur fyllir út. Hægt er að senda í faxi,
pósti eða skanna inn útfyllt eyðu-
blað sem sótt er á www.namsmat.is
og senda á tölvupóstfangið nams-
mat@namsmat.is. Próflausnin
verður þá send heim. Einnig er
hægt að sækja skjölin í Borgartún
7a í Reykjavík. Fólk er hvatt til að
hafa samband við Námsmatsstofn-
un ef það hefur einhverjar spurn-
ingar. Einnig er bent á að þegar
próflausnirnar eru skoðaðar skal
hafa til hliðsjónar matsreglur sem
hægt er að finna á namsmat.is (sjá
samræmdpróf – próf og svör og slá
inn ártalið).
Námsráðgjafi í grunnskólum
Ákveðin inntökuskilyrði eru fyr-
ir námsbrautir í framhaldsskólum
og er nauðsynlegt að foreldrar fari
vel yfir umsóknirnar með börnum
sínum. Ef nemendur eru mjög
óvissir um námsvalið eða vilja fá
nánari upplýsingar um námsfram-
boð eða umsóknarferlið er gott fyr-
ir þá að snúa sér til námsráðgjafans
í grunnskólanum eða hafa sam-
band við námsráðgjafa viðkom-
andi framhaldsskóla. Þá er gott fyr-
ir foreldra að setjast niður með
barninu sínu og ræða áhugasvið og
framtíðaráform þess, skoða náms-
framboð framhaldsskólanna og
inntökuskilyrðin.
Samræmd próf
Við útfyllingu umsóknar um
framhaldsskóla er skólinn valinn
ásamt skólum til vara, sem og
námsbraut og önnur þjónusta sem
er í boði í einstökum skólum.
Nemendur 10. bekkjar geta breytt
eða afturkallað umsóknir allt þar til
lokað verður fyrir skráningu 11.
júní. Geti skóli ekki orðið við um-
sókn verður hún send í skóla sem
nemandi valdi til vara. Þegar allar
umsóknir hafa verið afgreiddar fá
nemendur bréf með upplýsingum
um afgreiðsluna. Nemendur þurfa
svo að staðfesta veitta skólavist
með greiðslu innritunargjalds.
Fyrir foreldra barna sem voru að
ljúka 8. eða 9. bekk og standa
frammi fyrir því að ákveða sig fyrir
næsta skólaár um hvaða samræmd
próf þeir ætla að taka eða um val-
fög er vert að benda foreldrum á að
kynna sér hvað er í boði og hafa
samráð við námsráðgjafa sem
starfa í grunnskólunum. Einnig er
hægt að fá upplýsingar hjá skóla-
stjórnendum og svo eru ýmsar
upplýsingar um samræmd próf á
www.namsmat.is. Gott er að gera
þetta með góðum fyrirvara og gott
að koma umsóknum á framfæri í
tíma. Þannig geta foreldrar lagt sig
fram um að styðja börn sín þegar
þau huga að framtíð sinni.
Höfundur er verkefnastjóri hjá Heimili og
skóla – landssamtökum foreldra
Hvernig gekk í samræmdu
prófunum og hvað svo?
UMRÆÐAN aHelga Margrét Guðmundsdóttir
Finnist fólki
niðurstaðan
algerlega
óskiljanleg er
hægt að
kynna sér
matið betur
með því að fá að sjá próf-
lausnina
Samræmd próf
„Ákveðnum áfanga í lífi
þeirra er lokið og margir líta
á námsmatið sem uppskeru
eftir 10 ára grunn-
skólagöngu barnsins.“