24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 51

24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 51
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 51 Lyf skipta sköpum! „Koma í veg fyrir veikindi og bjarga milljónum mannslífa!“ „Heimur án lyfja væri mikið ólíkur þeim veruleika sem við búum við í dag. Lyf á borð við sýklalyf og bóluefni koma t.d. í veg fyrir veikindi og bjarga milljónum mannslífa á ári hverju. Lyf eru vandmeðfarin vara og má skilgreina þau sem virkt efni sem komið hefur verið fyrir í sérhæfðu lyfjaformi t.d.töflu. Frá því að virkt lyfjaefni er uppgötvað og þar til lyf kemst á markað fara fram þrotlausar rannsóknir, þróunarvinna og prófanir til að tryggja öryggi neytandans. Lyfjafræðingar gegna lykilhlutverki í þessu ferli því þeir búa yfir víðtækri þekkingu á sviði lyfjavísinda.“ Margrét Bessadóttir, lyfjafræðingur og doktorsnemi í lyfjafræði við Háskóla Íslands. E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n Elísabet Alba Valdimars- dóttir vínþjónn mælir ekki með víni með eftirréttinum þar sem hún telur að vín henti ekki sem drykkur með ís og Nóa-kroppi. Hráefni: 1 ferskur ananas 3 ferskjur 4 plómur nokkur jarðarber vanillusykur (eða venjulegur sykur) ís Nóa-kropp Aðferð: Ananas, ferskjur, plómur og jarðarber eru skorin í bita og sett í eldfast mót. Vanillusykri (eða venjulegum sykri) er sáldr- að yfir og ávextirnir eru bakaðir við 180 gráður í 15 mínútur þar til þeir fara að fá karamelluhúð. Þá er þeim dreift í skálar, ísnum dreift yfir og svo muldu Nóa- kroppi. Notið með góðu kaffi og smá- vegis af Wolf Blass, Chardonnay Pinot Noir-freyðivíni sem hefðer fyrir að fá sér fyrir forréttinn en við svindluðum og fengum okk- ur með eftirréttinum. Vorum ekki svikin af því. Talsverð kampavínsstemning en samt langt frá því að vera á kampa- vínsverði. EFTIRRÉTTUR Bakaðir ávextir með ís og muldu Nóa-kroppi Hráefni: 2,5 kg af þverskorinni lúðusteik salt pipar Aðferð: Lúðusteikin er pensluð með góðri jómfrúarolíu og söltuð og pipruð. Fyrst er hún grilluð í stutta stund á heitu grilli en svo bökuð í ofni í um 20 mínútur við 180°C gráðu hita. Blómkálspúre (hráefni): 2 blómkálshausar 2 msk. rjómaostur 2 msk. smjör 100 ml rjómi salt pipar Aðferð: Hausarnir eru soðnir eins og lög gera ráð fyrir. Vatninu er hellt frá og blómkálið sett í matvinnsluvél. Þá er rjómaostur, smjör, rjómi, salt og pipar sett saman við og blandað saman þar til það er orðið að flauelsmjúkri blöndu. Salsa (hráefni): 5 þroskaðir tómatar 1 stór rauðlaukur 4 smátt skorin hvítlauksrif 1 kjarnhreinsaður chili-pipar ½ smátt skorin paprika ½ búnt af steinselju ½ búnt af kóríander 5 msk. af jómfrúarolíu salt pipar safi úr einni sítrónu. Aðferð: Blandið hráefnunum vel saman og látið standa í ísskáp í um klukkustund. Steikt fennel (hráefni): 4 fennelhausar smjör olía ágætt hvítvín (t.d. Montalto frá Sikiley) Aðferð: Hausarnir eru hreinsaðir og skornir í sneiðar. Þeir eru svo steiktir upp úr smjöri og olíu í um 10 mínútur og svo er 2 glösum af ágætu hvítvíni hellt yfir og soðið niður í um 20 mínútur. Maturinn var borinn fram með léttu salati og Masi Masianco- hvítvíni frá Ítalíu árgerð 2007. AÐALRÉTTUR Ofnbökuð lúðusteik með blómkálsp- úre, salsa og hvítvínssteiktum fennel Elísabet Alba Valdimars- dóttir vínþjónn mælir með JM Brocard Chablis Do- maine Sainte Claire 2005. Opinn ilmur af bökuðum eplum, brauðdeigi og sítr- usbergamíu. Ferskur og rúnnaður í munni með per- um, þroskuðum eplum, hun- angi ásamt sítrus og stein- efnatónum. Milliþungt með hressandi og snarpa sýru í lokin. Þrúga: Chardonnay. Land: Frakkland. Hérað: Bo- urgogne. Hráefni: 1,5 l af kjúklinga- eða fiskisoði 300 g af ósoðnum rækjum 300 g af smárri hörpuskel 500 g af kræklingi í skelinni 250 g af Vermicelli-núðlum 1 rauður chili-pipar 1 grænn chili-pipar 5 cm af engifer 3 hvítlauksrif 1/3 búnt af basil 1/3 búnt af steinselju 1/3 búnt af kóríander Aðferð: Sjávarfangið er steikt í smjöri með smávegis hvítlauk ásamt skvettu af hvítvíni þar til eldað. Lagt til hliðar. Núðlurnar eru eld- aðar samkvæmt leiðbeiningum og skammtaðar í skál. Þá er steiktu sjávarfanginu dreift yfir, svo er kryddinu; engifer, chili og hvít- lauk, sáldrað yfir svo og krydd- jurtunum. Í lokin er kjúklinga- eða fiskisoðinu hellt yfir. Saltað og piprað. Borið fram með góðu hvítvíni og sítrónum og límónum til að kreista yfir súpuna til að kalla fram bragðið. Með þessu var drukkið Castillo di Molina Chardonnay frá 2006. Þetta er prýðisgott létt hvítvín með talsverðum ávexti. Ekki svo mikið eftirbragð en dvaldi í dálitla stund á tungu. Þetta vín ber vel bragðsterkan mat án þess að fölna í samanburði eða hverfa í bak- grunninum. Wine Spectator hefur gefið víni í þessum flokki um 86% í einkunn. FORRÉTTUR Taílenskt sjávarréttaseyði með núðlum og chili 24stundir/Kristinn Elísabet Alba Valdimarsdóttir vínþjónn mælir með Colomé To- rontes 2006. Opinn og ferskur blómailmur af appelsínublómum, rósum, jasmín og lynghunangi. Suðrænir ávextir fylgja í munni ásamt apríkósum, mangó, sítrus og guava. Létt, þurrt og rúnað vín sem opnast meir og meir því lengur sem það er í glasinu. Þrúga: Torrontés. Land: Argentína. Hérað: Calchaqui Valley. 1.290 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.