24 stundir - 07.06.2008, Side 10
10 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Björgu Evu Erlendsdóttur
beva@24stundir.is
Sjö félagar úr tryggingageiranum
sem eru saman í veiðifélaginu OFF
prísa sig nú sæla af því að ísbjörn-
inn í Skagafirði varð þeirra ekki var.
„Við hefðum getað verið étnir og
orðið heimsfrægir, en sem betur fer
voru aðstæður heppilegar og við
vissum ekki einu sinni af ísbirnin-
um fyrr en hann lá dauður,“ segir
Örn Þórhallsson, einn félaganna.
OFF á sér leynilegan veiðistað
upp af bænum Ketu í Skagafirði á
þeim slóðum sem ísbjörninn gæti
hafa haldið sig á um helgina.
Engan óraði fyrir því að fólk væri
á ferð á Skagaheiði, í óbyggðunum
fyrir ofan Ketu, þegar ísbjörninn
stefndi upp í þokuna. Félagarnir í
OFF eru fegnir því að lögreglan tók
af skarið og skaut björninn.
Björninn vissi ekki um grillið
Enginn veit hvort ísbjörninn var í
námunda við félagana, sem voru
með veiðistangir eina að vopni. Þeir
sváfu í litlum tjöldum og gömlum
tréskúr sem hvorki heldur vindi né
vatni. Á kvöldin grilluðu þeir úti og
héldu upp á vorið á góða veðrið
grunlausir um að þeir gætu verið í
lífshættu.
„Vindur var sem betur fer ekki að
norðan, eins og oft er, því þá hefði
ísbjörninn trúlega runnið á lyktina
af grillinu,“ segir Örn, og bætir því
við að nýlega sé komið gsm-sam-
band á Skaga. Enginn hafi samt
hringt í þá, enda hefði lítið þýtt að
segja þeim að ísbjörn væri að snigl-
ast kringum tjaldið. „Við hefðum
nú bara hlegið að svoleiðis ábend-
ingu og ekki trúað orði,“ segir Örn.
Eplabóndi óttaðist jarðskjálfta
Einn af þeim sem voru með í för
er sænskur eplabóndi á áttræðis-
aldri, Lennart Wångå ( á innfelldu
myndinni). Hann er tengdafaðir
eins úr hópnum og var á landinu
vegna útskriftar. Lennart var hugs-
andi yfir því að vera á ferðinni á Ís-
landi vegna jarðskjálftanna á Suð-
urlandi. Hættu á að vera étinn
lifandi hafði hann ekki hugleitt.
Örn svaf einn í tjaldi, það gerði
sænski eplabóndinn líka en sumir
sváfu í skúrnum.
„Við vorum með þrjá hunda með
okkur. Eina nóttina heyrðust ein-
kennileg hljóð, við grunuðum
hundana, en það verður líklega
aldrei upplýst hvort ísbjörninn kom
að tjöldunum.“
Hvað átti til bragðs að taka?
„Við höfum rætt heilmikið um
hvað við hefðum gert ef ísbjörn
hefði þruskað fyrir utan tjaldið.
Sjálfsagt hefði maður bara rennt
niður lásnum og rétt út höndina,“
segir Örn. Félagarnir ræddu líka sín
á milli hvernig þeir hefðu getað
hrætt björninn burt vopnlausir.
„Við hefðum getað gefið honum
bjór og bleikju, kastað í hann stein-
um eða grillinu. En þetta kennir
okkur að minnsta kosti að maður
verður að vera við öllu búinn. Við
vorum að veiða í nokkrum vötnum
sem eru á Skaga. Fáir vissu um ferð-
ir okkar og oft voru menn úr hópn-
um einir á ferð,“ segir Örn, sem tel-
ur þá félagana stálheppna og hann
tekur undir með Bjarka Friis, sem
segir að mæti maður ísbirni í þoku
um nótt, þá verði ekki báðir til frá-
sagnar um þann fund.
„Eina nóttina fór félagi okkar
einn í gönguferð og var í burtu til
klukkan þrjú um nóttina. Á daginn
vorum við dreifðir um fjalllendið
að veiða við vötnin. Þótt enginn
hafi orðið var við ísbjörninn verður
að teljast líklegt að hann hafi ein-
mitt verið á þessum slóðum. Af fjöl-
miðlaumræðu að dæma datt hins
vegar engum í hug að það væri fólk
á fjöllum, þar sem stefndi í að ís-
björninn hyrfi inn í þokuna. Við
getum þakkað fyrir að björninn
fékk ekki að fara upp í fjallið óá-
reittur. Og við höfum líka rætt um
að taka með byssu í næstu ferð.“
Fyrir utan Örn og Lennart voru í
ferðinni Gunnar Gunnarsson, Sig-
urður V. Sveinsson, Agnar Þór Áka-
son, Þórður Þórðarson og Jens A.
Jónsson.
Ævintýri í Fljótavík
Fleira fólk hefur orðið hugsi
vegna heimsóknar ísbjarnarins.
Herborg Vernharðsdóttir, ættuð úr
Fljótavík, rifjar upp komu ísbjarnar
þangað 18. maí 1975. „Tveir menn,
Ingólfur Eggertsson og Helgi Geir-
mundsson, voru í fjörunni að gera
við gamlan jeppa, þegar ísbjörninn
kom aftan að þeim ofan úr landi.
Langt var til manna og ekkert síma-
samband, þeir náðu að komast inn í
skýli, en Helgi sem reyndar var með
byssu í skúrnum fleygði frá sér jakk-
anum, með skotum í vasanum.
Hann komst svo út úr skúrnum
náði að hlaða byssuna og skjóta
hvítabjörninn,“ segir Herborg.
Öll byggð er fyrir löngu aflögð í
Fljótavík eins og alls staðar í Sléttu-
hreppi. En á sumrin fyllist Fljótavík
af lífi og vopnlausu fólki. Herborg
segir reynsluna sýna að líklega sé
best að hafa þar byssu sem fólk geti
beitt ef ísbjörn gengur á land.
Fara aldrei oftar byssu-
lausir á ísbjarnaslóðir
Sjömenningar prísa sig sæla Ísbjörninn át þá ekki Vindáttin var hagstæð þar sem þeir gistu í tjaldi
Félagar grilla Örn
og Agnar Jón slaka á➤ Enginn bjóst við mannaferð-um á Skagaheiði upp af
staðnum þar sem ísbjörninn
var skotinn.
➤ Áhyggjurnar snerust frekarum að ísbjörninn myndi leita
til byggða og gera usla þar.
MEÐ ÍSBIRNI Á FJÖLLUM
Ódáðahraun og Herðubreiðar-
lindir teljast þjóðlendur samkvæmt
úrskurði óbyggðanefndar. Þeista-
reykir teljast hins vegar til eignar-
lands.
Óbyggðanefnd kvað í gær upp
úrskurð sinn í ágreiningsmálum
um eignarrétt lands á austanverðu
Norðurlandi. Fjármálaráðherra
gerði fyrir hönd ríkisins kröfu um
þjóðlendur á svæðinu 7. nóvember
2006. Í úrskurði óbyggðanefndar
kemur fram að deilt var um 119
landsvæði á svæðinu. Þrettán
svæðanna voru úrskurðuð þjóð-
lendur að öllu leyti og þrjú að
hluta.
Friðbjörn Garðarsson lögmaður
sem rak mál eigenda Þeistareykja
gegn ríkinu kveðst ánægður með
úrskurðinn. „Hefði það svæði verið
úrskurðað þjóðlenda hefði það get-
að sett virkjunarframkvæmdir í
uppnám á svæðinu. Vissulega er
hluti virkjunarréttarins á hendi
ríkisins í gegnum Landsvirkjun en
engu að síður hefði þjóðlenduúr-
skurður haft víðtæk áhrif. “ fr
Herðubreiðarlindir dæmdar þjóðlenda
Þeistareykir verða
ekki þjóðlenda
Strætó hefur hafið sölu á sér-
stökum sumarkortum Strætó bs.
sem gilda frá 5. júní til 31. ágúst.
Sumarkortið er sérstaklega sniðið
að þörfum námsmanna og á að
brúa bilið fram að nýjum gild-
istíma námsmannakorta.
Allir viðskiptavinir Strætó geta
nýtt sér þessi kort og kosta þau
9.000 kr.
Þá hefur Strætó hafið sölu á sér-
stökum ferðamannakortum sem
ætluð eru erlendum ferðamönn-
um.
Ferðamannakortin gilda í einn
eða þrjá daga og kosta 600 krónur
fyrir einn dag en 1.500 krónur
fyrir þrjá daga. fifa@24stundir.is
Strætó bs.
Ný kort