24 stundir - 07.06.2008, Page 12
12 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Lögreglan í Ósló kveðst hafa
kært hjón fyrir að hafa limlest
fimm dætur sínar á aldrinum
5 til 14 ára með því að skera
hluta kynfæra þeirra í burtu,
að því er norskir fjölmiðlar
greina frá. Hjónin sem eru frá
Gambíu eru nú norskir rík-
isborgarar. Eiginmaðurinn á
tvær aðrar eiginkonur í Gam-
bíu og fjórar dætranna búa nú
hjá þeim. Með eiginkonunni í
Ósló á maðurinn samtals sex
dætur og gengur konan með
sjöunda barnið.
Gambísk hjón í Ósló
Kærð fyrir að
limlesta dætur
STUTT
● Sjálfsmorðsbylgja Í Tasiilaq á
Grænlandi hafa sjö ungmenni
reynt að svipta sig lífi eða hótað
því á fimm dögum, að því er
greint er frá á vefsíðunni jp.dk.
● Hóta Íran árás Árás á Íran
virðist óumflýjanleg sagði
flutningamálaráðherra Ísraels,
Shaul Mofaz, í gær í viðtali við
blaðið Yedioth Ahronoth.
Hann sagði árás síðasta kostinn
bæru refsiaðgerðir ekki árang-
ur. „Og það gera þær ekki,“
bætti hann við.
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@24stundir.is
Evrópuþingið óttast að úrslita-
keppni Evrópumótsins í knatt-
spyrnu, sem fram fer í Austurríki
og Sviss, verði aðdráttarafl fyrir þá
sem stunda mansal og bjóða fót-
boltaáhugamönnum þjónustu
vændiskvenna.
Á hverju ári fjölgar fórnarlömb-
um mansals og nú í vikunni fóru
fram viðræður á vegum Evrópu-
þingsins um aðgerðir Evrópusam-
bandsins gegn mansali. Nefnd á
vegum sambandsins sem hóf her-
ferð gegn mansali í tengslum við
heimsmeistaramótið í knattspyrnu
í Þýskalandi 2006 lagði áherslu á
nauðsyn stuðnings framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins við
herferð gegn mansali á Evrópu-
mótinu.
Útbreitt vandamál
„Viðskipti með konur er útbreitt
vandamál í allri Evrópu og óvenju-
lega grimm mynd nútímaþræla-
halds,“ sagði austurríski þingmað-
urinn Christa Pets sem árið 2006
samdi ályktun um baráttuna gegn
mansali.
Baráttan gegn þvinguðu vændi
fyrir tveimur árum er sögð hafa átt
mikinn þátt í að það varð ekki í
jafnmiklum mæli og búist var við.
Þýskt dagblað greindi þá frá því að
það væru ekki bara hótel, veitinga-
staðir og minjagripasalar sem von-
uðust eftir auknum tekjum, heldur
allir sem þénuðu á viðskiptum með
kynlíf; allt frá hóruhúsaeigendum
til hórmangara og þeirra sem
stunda smygl á fólki.
Þrælamarkaður í hjarta Evrópu
Ségolène Royal, frambjóðandi í
forsetakosningunum í Frakklandi í
fyrra, beindi orðum sínum í
blaðinu Nouvel Observateur beint
til Angelu Merkel Þýskalandskansl-
ara þegar hún sagði að það væri óá-
sættanlegt að heimsmeistaramót í
hjarta Evrópu væri skipulagður
þrælamarkaður.
Þýska knattspyrnusambandið
neitaði fyrst að taka þátt í herferð-
inni gegn mansali, sem fjöldi kven-
félaga stóð einnig að, en skipti síð-
an um skoðun og viðurkenndi þá
að það hefði verið of seint.
Þýska lögreglan sagði erfitt að
berjast gegn þvinguðu vændi.
Fórnarlömbin væru hrædd vegna
hótana auk þess sem þau treystu
hvorki lögreglu né öðrum yfirvöld-
um.
Streyma til Danmerkur
Í danska blaðinu Politiken var
greint frá því nú í vikunni að þrátt
fyrir viðamiklar áætlanir danskra
stjórnvalda um herferð gegn man-
sali, væri raunveruleikinn allt ann-
ar. Það sem af er árinu hefur ein-
ungis einu lögregluembætti tekist
að höfða mál vegna mansals, að því
er haft er eftir fulltrúa ríkislög-
reglustjóraembættisins í B.T., að
því er Politiken greinir frá. Vænd-
iskonur frá Búlgaríu og Rúmeníu
eru sagðar streyma til Danmerkur
sem jafnframt er sögð endastöð
fórnarlamba mansals frá Nígeríu.
Óttast mansal á
Evrópumótinu
Yfir 2 milljónir fórnarlömb mansals í heiminum Flest fórnarlömbin konur og börn
Vændi Beðið
eftir við-
skiptavini.
➤ Samkvæmt Alþjóðavinnu-málastofnuninni eru 2,4 millj-
ónir manna fórnarlömb man-
sals, flest konur og börn.
➤ Yfir 40 prósent fórnarlamb-anna eru í kynlífsiðnaðinum
samkvæmt heimasíðu Evr-
ópuþingsins.
MANSAL
Umfangsmikil leit fór fram í
gær að fimm köfurum frá Bret-
landi, Frakklandi og Svíþjóð und-
an ströndum Indónesíu sem
saknað hefur verið frá því í fyrra-
dag. Talið er að ferðamennirnir
hafi borist með sterkum straum-
um á haf út.
Fimmmenningarnir sneru ekki
til baka úr köfunarleiðangri í
grennd við Komodo-þjóðgarðinn
við Nusa Tenggara-eyjarnar fyrir
austan Balí sem er vinsælt svæði
meðal kafara. Svæðið þar sem
ferðamennirnir sáust síðast er
þekkt fyrir sérstök kóralrif og fjöl-
breytt sjávardýr en einnig fyrir
hættulega neðansjávarstrauma. Á
nokkrum klukkustundum geta
þeir borið kafara marga tugi kíló-
metra á brott. Lögregla og sjóher
stýrðu leitinni sem hófst þegar á
fimmtudag. ibs
Umfangsmikil leit austan Balí
Fimm ferðamanna
saknað eftir köfun
Til þess að komast hjá hlerunum
skipta danskir afbrotamenn um
símanúmer næstum jafnoft og
aðrir skipta um nærföt, að því er
greint er frá á vefsíðunni bus-
iness.dk. Þetta vill
danski Þjóð-
arflokkurinn
stöðva. Svokallað
frelsi gerir þessi
tíðu númeraskipti
möguleg. Vegna
þessa leiks afbrota-
mannanna vilja
þingmenn Þjóðarflokksins laga-
breytingu þannig að heimild til
hlerunar beinist að einstaklingn-
um en ekki símanúmeri hans.
Haft er eftir lögreglumanni á
Fjóni að ekki sé um að ræða
venjulega þjófa, heldur fíkniefna-
sala og félaga í glæpaklíkum sem
viti hvað þeir eru að gera. ibs
Danskir glæpamenn
Fá allt að 70
símanúmer á ári
Flugfélagið Air India hefur rétt til
að reka feitar flugfreyjur. Þetta er
úrskurður æðsta dómstólsins í
Delí á Indlandi sem fjallaði um
kæru fimm flugfreyja. Talsmenn
félagsins bera við heilsu- og ör-
yggissjónarmiðum. En þeir eru
einnig sagðir hafa lýst því yfir að
útlit skipti máli í harðnandi sam-
keppni. Áður munu þeir hafa lýst
því yfir að þeir hefðu ekki áhuga
á umsækjendum með húðvanda-
mál og slæmar tennur. ibs
Indverskt flugfélag
Vill ekki feitar
flugfreyjur
Umsóknarfrestur er til 10. júní
Kynntu þér námið á www.hr.is
FRUMGREINAR VIÐ HR
Frumgreinasvið er kjörin leið fyrir fólk með starfsmenntun og aðra úr atvinnulífinu sem
þurfa frekari undirbúning til áframhaldandi náms á háskólastigi einkum í tæknifræði og
verkfræði.
Frumgreinasviðið er vettvangur fyrir stúdenta sem þurfa að bæta við sig stærðfræði og
raungreinum.
Námið tekur eina til fjórar annir. Við mat er litið til starfsreynslu og fyrri skólagöngu.
Námið er hagnýtt og krefjandi og hentar vel metnaðarfullum einstaklingum.
Hægt er að stunda nám í frumgreinum bæði í dagskóla og í fjarnámi.
FYRSTA SKREF AÐ HÁSKÓLAMENNTUN