24 stundir - 07.06.2008, Blaðsíða 17
fylgja því leysa einföld vandamál eru líka allt eðlileg
viðbrögð fyrsta mánuðinn eftir áföll. Fari ástandið ekki
að lagast þá er hægt tala um áfallastreituröskun.“ Stað-
an á Suðurlandi er þó flókin, því ekki er hægt að halda
því fram með réttu að áfallinu sé lokið. Til þess eru eft-
irskjálftarnir of margir. Berglind segir að allar tilfinn-
ingar tengdar fyrri áföllum sem einstaklingar hafa ekki
unnið úr til fulls geti blossað upp við nýtt áfall. „Þá er
fólk með óleystan vanda, þótt gömlu áföllin geta verið
óskyld, nauðgun, ástvinamissir og í raun hvað sem er.
En þá er líka tækifæri til að vinna úr vandamálunum
saman. Gamla áfallið getur því verið blessun eða bölv-
un eftir því hvernig til tekst.“
Langflestir ná sér að fullu eftir náttúruhamfarir
Erlendar rannsóknir sýna að 9-14 prósent ein-
staklinga þróa með sér vandamál til langs tíma eftir
áföll. Hamfarir virðast ekki verstar, en 3% þolenda
þeirra þróa með sér framtíðarvandamál. En nú þarf
nýjar innlendar rannsóknir. Þótt Sunnlendingar séu
orðnir eins og marghristur kokteill og dálítið flamber-
aðir af eldgosum líka eftir síðustu áratugi, hafa sér-
fræðingar fulla trú á sunnlensku samfélagi. Áföll eins
og náttúruhamfarir dragi líka fram styrk og getu. Til er
vonsvikið fólk sem telur sig ekki fá þá aðstoð sem því
ber. Tryggingamál séu erfið, upplýsingar bregðist eða
komi seint. Eitt af því sem er saknað er svæðisútvarp
RÚV, kröftug útvarpsþjónusta í heimabyggð sem nær
um allt land.Vaxandi byggð í stórum landshluta tíðra
umbrota krefst bestu þjónustu. Valinn maður í hverju
rúmi, staðkunnugt fólk með þekkingu, reynslu og
skilning hlýtur að skipta máli um hvort sunnlenskt
samfélag fær áfallastreituröskun eða hvort styrkur og
geta vex með hamförunum, samfara skilningi á um-
hverfi og náttúru.
aBjörg Eva Erlendsdóttir
Þótt Sunnlendingar séu
orðnir eins og marghristur
kokteill og dálítið flamber-
aðir af eldgosum eftir síð-
ustu áratugi, hafa sérfræð-
ingar fulla trú á
sunnlensku samfélagi.
Áföll eins og náttúruhamfarir kalla líka
fram meiri styrk og getu.
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 17
„Það er grundvallaratriði í lýð-
ræðissamfélagi, að heiðarlegt fólk
þurfi ekki að sæta símhlerunum
vegna stjórnmálaskoðana sinna.“
Með þessum orðum hóf ég utan-
dagskrárumræðu við Björn Bjarna-
son dómsmálaráðherra á Alþingi í
síðustu viku. Tilefnið var, að þá
hafði verið birtur ýtarlegur listi yfir
þau 32 heimili sem staðfest er að
hleruð hafi verið af stjórnmála-
ástæðum á árunum fram til 1968.
Eftirtektarvert var að fylgjast með
umræðunni á þinginu og í fjöl-
miðlum undanfarna daga.
Sex sinnum er staðfest að hlerað
hafi verið hjá hópi fólks í hvert
sinn. Aðeins einu sinni er vísað til
beiðni lögreglu og ekki nema tvisv-
ar til lagaákvæða. Enginn rök-
studdur grunur er færður fram um
saknæmt athæfi og engar ákærur
hafa nokkru sinni verið gefnar út
vegna einhvers sem fram kom við
hleranirnar. Engin skjöl eru til um
hleranirnar sjálfar, en þau hafa að
líkindum verið brennd í bensín-
tunnu 1976, eða látin hverfa við
stofnun embættis ríkislögreglu-
stjóra.
Stjórnarskráin, æðsta löggjöf
okkar, kveður á um helg mannrétt-
indi, m.a. friðhelgi einkalífsins.
Ljóst er að freklega var brotið á
þeim hleruðu, en nú er of langt um
liðið til að leita megi uppi einstaka
sökudólga. Það þurfti líka marga til
og hið alvarlega og varanlega er að
íslenska ríkið braut á mannréttind-
um þegna sinna. Eðlilega hefur ver-
ið kallað eftir afsökunarbeiðni, eins
og dæmi eru um, t.d. í Noregi eftir
Lund-skýrsluna.
Nú þykir langflestum auðvitað
miður að ríkisvaldinu skuli hafa
verið misbeitt og skilja að hinum
hleruðu sé misboðið. Þó eru stöku
uppvakningar frá dögum kalda
stríðsins sem gripnir eru gamal-
kunnu ofstæki við að verja það sem
óverjandi er. Þetta var þjóðhættu-
legt fólk og sagan hefur fellt sinn
dóm, segja þeir. Þetta speglar
hættulega hugsun, þá að heimilt sé
að brjóta mannréttindi á fólki hafi
það rangar skoðanir að mati yfir-
valda. Réttarríkið var beinlínis
grundvallað til að verja fólk gegn
slíkum yfirvöldum.
Fyrir nú utan það, að það fólk
sem barðist fyrir þjóðfrelsi og fé-
lagslegum réttindum hafði ekki
rangt fyrir sér, en hinir rétt. Það er
einmitt svo dæmigerð afstaða fyrir
ofstæki og hroka kalda stríðsins
sem á svo illa við öllu málefnalegri
umræðu samtímans. Svo er þetta
lítill bær og við vitum að þessi listi
er yfir heiðarlegt fólk, margir frið-
ar- og þjóðfrelsissinnar, sumir
ákveðnir andkommúnistar og
margir trúlega hleraðir fyrir að
leggja lið sitt baráttunni gegn her-
foringjastjórninni í Grikklandi. Það
er þess vegna hjákátlegt að reyna að
snúa þessu upp í baráttu lýðræðis
og einræðis, enda snýst málið um
friðhelgi einkalífsins og ósköp
venjubundna misbeitingu valds.
Framtíðin
Þótt sumir kjósi sér hlutskipti
eftirlegurottunnar á ruslahaug sög-
unnar skulum við taka þessi mál
með okkur inn í framtíðina. Við
þurfum að ljúka þessari söguskoð-
un, kanna hvað gert var eftir 1991,
hvort létta eigi þagnarskyldu af
þeim sem störfuðu að þessu o.s.frv.
Ekki til að vekja upp kalda stríðið,
heldur til að læra af reynslunni.
Þannig ákváðu Norðmenn í kjölfar
sinnar skoðunar að stofna sérstaka
þingnefnd til eftirlits með svona
starfsemi. Sum nágrannalönd okk-
ar hafa skipað réttargæslumenn
fyrir þá sem hlera á hjá, lögum
samkvæmt. Álíka aðgerða mætti
e.t.v. grípa til hér til að tryggja sjálf-
sögðustu mannréttindi.
Því miður eru nýleg dæmi um að
dómsmálayfirvöld fari offari í heit-
um pólitískum málum. Falun
Gong var eitt skýrasta dæmið um
það en samkvæmt áliti umboðs-
manns Alþingis var þar farið út fyr-
ir valdmörk við að verja kínverskan
ráðamann fyrir lýðræðislegum
mótmælum. Hleranir fyrri ára eiga
þannig m.a. að verða okkur tilefni
til að skýra og skerpa framkvæmd
löggæslu og eftirlit með henni og
senda skýr skilaboð til stjórnvalda
morgundagsins um að aldrei megi
stunda pólitískar njósnir.
Höfundur er alþingismaður
Að njósna um
heiðarlegt fólk
VIÐHORF aHelgi Hjörvar
Réttarríkið var
beinlínis
grundvallað
til að verja
fólk gegn
slíkum yfir-
völdum.
GARÐÚÐUN - GEITUNGAR - ROÐAMAUR - MÝS - KÖNGULÆR
Vestmann ehf.
Fjöltæknilausnir
Komum á staðinn og gerum föst verðtilboð
Engin verk eru of stór eða lítil
• Almenn rafl ögn • Löggildir rafverktakar • Málarar
Vestmann ehf • torfi .vestmann@simnet.is
Torfi gsm: 865 0060
Hilmar gsm: 856 0065
Áskell gsm: 856 0066
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
BOLIRNIR
KOMNIR AFTUR