24 stundir - 07.06.2008, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 24stundir
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@24stundir.is
Smæð og skortur á stöðugleika
stendur íslenska hagkerfinu helst
fyrir þrifum þegar horft er til sam-
keppnishæfni, sagði Xavier Sala-i-
Martin í fyrirlestri í Háskóla Ís-
lands í gær.
Xavier er prófessor í hagfræði
við Columbia-háskóla í New York
og situr í ritstjórn Global Competi-
tiveness Report, samkeppnishæfn-
isskýrslu World Economic Forum.
Ísland er í 23. sæti af 131 þjóð
sem myndar samkeppnishæfnis-
lista World Economic Forum, með
einkunnina 5,02 af 7. Staða þjóðar í
samanburði við aðrar er þó ekki
það mikilvægasta við slíka lista,
sagði viðskiptaráðherra sem hélt
inngangserindi, heldur það sem
hægt er að læra með því að skoða á
hvað sviðum hægt er að gera betur.
Ekki á „topp 100“
Enda kemur í ljós að Ísland er í
115. sæti með einkunnina 2,30 af 7
þegar stærð hagkerfisins er metin,
en í 102. sæti með einkunnina 4,35
þegar horft er til stöðugleika.
Eins og Xavier benti á eru ýmsar
náttúrlegar takmarkanir fyrir því
hversu mikið hagkerfið íslenska
getur vaxið með góðu móti. Hins
vegar sé sérstaklega mikilvægt að
lítið hagkerfi eins og hið íslenska sé
opið og móttækilegt fyrir fjármagni
og vörum erlendis frá, en á því sviði
getum við Íslendingar bætt okkur,
sagði Xavier.
„Skortur á þjóðhagfræðilegum
stöðugleika er hins vegar stærsta
vandamál ykkar,“ sagði Xavier,
enda er stöðugleiki meðal þess sem
World Economic Forum metur
sem „grundvallarskilyrði“ fyrir
samkeppnishæfni þjóðar.
Þegar stöðugleikinn er metinn
eru skoðaðar skuldir hins opin-
bera, halli eða afgangur á rekstri
ríkissjóðs, verðbólga, vaxtastig og
sparnaður þjóðar. „Íslendingar
standa illa á öllum þessum svið-
um,“ sagði Xavier.
Upptaka evru lausnin?
Aðspurður hvort upptaka evru
væri lausnin á skorti á stöðugleika,
sagði Xavier að vissulega myndi
hætta á árásum spákaupmanna á
gengið minnka, vextir líklega lækka
og almennur stöðugleiki aukast ef
skipt yrði um gjaldmiðil. Á móti
kæmi að Íslendingar myndu þann-
ig missa valdið yfir stjórn peninga-
mála, sem gæti leitt til aukins at-
vinnuleysis.
Benti hann í þeim efnum á
reynslu Spánverja. Þar í landi hafi
atvinnurekendur þurft að bregðast
við sveiflum í hagkerfinu með upp-
sögnum, sökum þess að ríkisstjórn-
in hefur ekki getað brugðist nægi-
lega við sveiflunum með breyttri
hagstjórn eða stjórn peningamála.
Hins vegar nyti íslenskur vinnu-
markaður góðs af því hversu sveigj-
anlegur hann væri öfugt við hinn
spænska, en í þeim efnum skiptir
viðhorf vinnuafls til breytinga ekki
síður máli en lagaumhverfið, sagði
Xavier.
Skotur á nýsköpun
Þriðju lægstu einkunnina fær Ís-
land fyrir liðinn „nýsköpun“, en
þar fær hagkerfið 4,52 af 7 í ein-
kunn og er í 20. sæti þjóða á sam-
keppnishæfnislista World Econo-
mic Forum.
Xavier benti á að öfugt við það
sem leiðtogar margra Evrópuríkja
virðast halda, sé ekki nóg að setja fé
í rannsóknar- og þróunarsjóði til
að efla nýsköpun. Rannsóknir
benda til að nýsköpun sé í lang-
flestum tilfellum drifin áfram af
einstaklingsfrumkvæði og eftir-
spurn fyrirtækja eftir nýjungum,
sagði Xavier, og því sé mikilvægt að
búa til umhverfi sem eykur líkurn-
ar á að fólkið fái nýstárlegar hug-
myndir. Því skipti sköpum að
skólakerfið hvetji til spurninga og
nýbreytni, frekar en að leggja
áherslu á utanbókarlærdóm.
Óstöðugleiki
mesti vandinn
Hagkerfið íslenska er of lítið, óstöðugt og skortur er á nýsköpun
Vinsæll Spánverjinn Xavier er
virtur hagfræðingur og var m.a.
valinn besti kennarinn við Col-
umbia-háskóla árið 2006.
➤ Xavier Sala-i-Martin er pró-fessor í þjóðhagfræði við Col-
umbia-háskóla og ráðgjafi
World Economic Forum.
➤ Meðal annarra starfa semXavier hefur gegnt er staða
forseta knattspyrnuliðs
Barcelona sumarið 2006.
FYRIRLESARINN
MARKAÐURINN Í GÆR
● Mestu viðskiptin í Kauphöll
Nasdaq OMX í gær voru með bréf
í Kaupþingi fyrir 645 milljónir
króna.
● Mesta hækkunin var á bréfum
í Century Aluminum eða um
3,97%. Bréf í FL Group stóðu í
stað eins og bréf í Eimskipafélagi
Íslands.
● Mesta lækkunin var á bréfum í
SPRON, 3,4%. Bréf í Marel lækk-
uðu um 2,15% og bréf í Össuri um
1,67%.
● Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,71% og stóð í 4.665,18 stigum í
lok dags.
Íslenska krónan veiktist um
0,13% í gær.
● Samnorræna OMX-vísitalan
lækkaði um 0,72%. Breska FTSE-
vísitalan lækkaði um 1,5% og
þýska DAX-vísitalan um 2%.
! "##$
!"
#$
%
&"
'()*+
',-. /0.
"1
2
345
"!
! 61
! ("" (7/
/%
/
/81
!"!
+9
"0
'
1- -
: -
;"1
-0
!
"
:-
- < =
# '
>35?@@@@
>4?ABB45A
>@C@CCAA5
3D45?5CD@
D>@3@4@
??5C@@A
4DDA@?A4@
3>?C?A3?4
C?A@@@@@
3D4DCC?@
CDAA554?
A3AD5@
5BD@?@@@
,
@
@
34?BC>
3A?>@5
44A
,
543D@B
,
,
,
,
,
>BCA45@@@
,
,
4EA5
33ED@
BE4D
>AE@@
?@E@@
>CEA@
A4AE@@
?DE55
B>E@@
DEDA
>@E44
3E@>
BDE@@
>E?3
4EB@
?>DE@@
>5@5E@@
3>@E@@
,
,
>5DE@@
,
,
,
,
,
55C@E@@
,
,
4EA4
33E5@
BE45
>AE@5
??EB5
>BE@@
AA@E@@
?DEA5
B>ED@
DE5>
>@E4C
3E@5
BDE>@
>E?5
4EB?
?>5E@@
>53@E@@
3>4E@@
4E4@
@EB@
>4@E5@
>E@@
??E@@
AE@@
,
CEDB
544@E@@
,
5E5@
/0
- 3
>3
?3
35
5
3
D4
3D
>D
>@
>B
>
C
,
,
,
>
?
>
,
?
,
,
,
,
,
>?
,
,
F"
- "-
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
54?@@C
54?@@C
D4?@@C
44?@@C
44?@@C
44?@@C
?@5?@@C
44?@@C
>@3?@@C
D4?@@C
>45?@@C
4>??@@A
34?@@C
44?@@C
D4?@@C
A3?@@C
Hlutabréf í mörgum evrópskum
flugfélögum lækkuðu umtalsvert í
verði í dag eftir að verð á hráolíu
fór yfir 130 dali tunnan á ný.
Hlutabréf breska lággjaldaflug-
félagsins Easy Jet lækkuðu um 7%,
British Airways og Ryanair lækk-
uðu um 6,5%, Air France um 5,7%
og Aer Lingus lækkaði um 2,5%.
Icelandair lækkaði um 1,32%.
Alþjóðleg samtök flugfélaga,
IATA, birtu fyrr í vikunni svarta
spá um afkomu flugfélaga en yfir
240 flugfélög tilheyra samtökun-
um. Samkvæmt spánni mun flug-
iðnaðurinn tapa 2,3 milljörðum
Bandaríkjadala í ár vegna hækkun-
ar á eldsneytisverði. Er þetta í ann-
að skiptið í ár sem IATA lækkar spá
sína fyrir árið í heild en í mars var
gert ráð fyrir því að samanlagður
hagnaður flugfélaganna myndi
nema 4,5 milljörðum Bandaríkja-
dala í ár. mbl.is
Olíuverð bitnar á evrópskum flugfélögum
Evrópsk flugfélög
taka góða dýfu
Talsmaður neytenda, Gísli
Tryggvason, leggur til opinbera
birtingu nafna verslana sem sinna
ekki skyldu um verðmerkingar.
Birtingin yrði viðbót við viðurlög
við því að sinna ekki reglum um
verðmerkingar.
Talsmaður telur birtingu nafna
þeirra sem ekki sinna verðmerk-
ingarskyldu auka líkurnar á að far-
ið sé að umræddum reglum og
stuðla að auknu aðhaldi.
Í umsögn um drög Neytenda-
stofu að nýjum reglum um verð-
merkingar og aðrar verðupplýsing-
ar, fagnar hann tímabærri
endurskoðun á reglunum. Leggur
talsmaður þó einnig til takmörkun
á tíðni verðbreytinga á afgreiðslu-
tíma verslunar. hlynur@24stundir.is
Reglur um verðmerkingar
Vill nafnbirtingu
FÉ OG FRAMI
vidskipti@24stundir.is a
Því skiptir sköpum að skólakerfið hvetji
til spurninga og sköpunar, frekar en að
leggja áherslu á utanbókarlærdóm.
Gallabuxnadagar
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
20%
afsláttur
fimmtudag til
sunnudags