24 stundir - 07.06.2008, Page 55
um búnir að spila rosalega mikið
saman og þekkjum alveg hver inn
á annan. Við erum orðnir svo
samhæfðir og samæfðir og okkur
hefur gengið rosalega vel. Ég held
að það hafi oft verið af afspurn
sem fólk hefur ráðið okkur og svo
hefur fólk sem betur fer verið
ánægt með okkur. Við höfum
aldrei lent í neinu veseni, það eru
alltaf allir voða glaðir og ánægðir
með okkur. Við spilum alls kyns
tónlist á böllum en hún er
kannski ekki sú allra nýjasta. Við
hlustum allir á svo rosalega ólíka
tónlist og komum úr svo ólíkri
tónlistarátt en það er eitt sem
sameinar okkur alla og það eru
Bítlarnir,“ segir Pétur sem fær
aldrei leið á að spila með strákun-
um. „Auðvitað koma tímar þar
sem ég spila mikið og fæ þá smá
leiða en ég skila alltaf vinnunni.
Ég væri ekki fagmaður ef ég léti
fólk gjalda fyrir það þótt ég væri
ekki alveg sá hressasti. Hins vegar
er nær alltaf gaman að spila með
strákunum.“
Sumarið er ekki tíminn
Auk þess að syngja í Buffi og
Dúndurfréttum má oft sjá Pétur
syngja bakraddir við ýmis tæki-
færi auk þess að syngja og tala inn
á teiknimyndir. Hann segist sem
betur fer geta lifað á tónlistinni í
dag. „Þetta er vitanlega mjög
sveiflukenndur bransi en mér hef-
ur, með góðu móti, tekist að lifa
mestmegnis á tónlistinni undan-
farin fjögur ár. Þann tíma hef ég
komist upp með að hafa minni
áhyggjur af peningum. Það er æð-
islegt að geta sinnt einungis
áhugamálinu sínu en framundan
er rólegri tími. Sumarið er ekkert
endilega tíminn, þar sem við spil-
um mikið á skólaböllum og
vinnustaðaskemmtunum. Ég er
því svolítið eins og kennari og fer
í frí á sumrin.“
Pétur gerir töluvert af því að
semja eigin lög og segist hafa
mjög gaman af því. „Ég á nú flest
lögin af síðustu tveimur plötum
Buffs, ég veit nú ekki hversu vin-
sæl þau hafa orðið en ég hef gam-
an af þessu. Ég sem oft tónlist
heima hjá mér og tek hana
kannski upp á tölvuna en ég spila
ekki mikið af henni enda kannski
ekki beint með vettvang fyrir það.
Ég er alltaf að semja lög en veit
ekkert alltaf hvað ég ætla að gera
við þau.“
Vildi hlaupa burt grátandi
Pétur hefur farið þrisvar sinn-
um sem bakraddasöngvari í Euro-
vision fyrir Íslands hönd og segir
þá lífsreynslu alltaf vera ótrúlega
skemmtilega. „Ég fór út árið 2000
með Einari Ágústi og Telmu, árið
2006 með Silvíu Nótt og í ár með
Regínu og Friðriki Ómari. Ég hef
verið spurður að því hvort ég vilji
ekki fara í Eurovision sem að-
alsöngvari en mér finnst mjög
þægilegt að vera í bakröddunum.
Ég hef engan metnað til að vera
aðalsöngvari í keppninni, þótt
það væri eflaust mjög gaman, því
ég veit hvað getur verið mikið
álag á aðalsöngvarana. Mér finnst
mjög þægilegt að vera með hin-
um bak-röddunum, að vera á
góðum veitingastað, borða góðan
mat og hlæja sig máttlausan enda
er ekki lítið hlegið í þessum ferð-
um,“ segir Pétur sem þarf ekki að
hugsa sig lengi um, inntur eftir
því hver hafi verið eftirminnileg-
asta ferðin. „Ferðin til Grikklands
með Silvíu Nótt var mjög um-
deild enda föttuðu fáir að þetta
væri leikin persóna. Eins og
Ágústa Eva Erlendsdóttir er ynd-
isleg þá er hún eins ólík Silvíu
Nótt og hægt er að hugsa sér.
Hún var í karakter allan tímann
og fær áttatíu þúsund rokkprik
fyrir það. Í þeirri ferð var allt svo
umdeilt að það jaðraði við að
maður segðist vera frá Danmörku
til að fá ekki á kjaftinn. Þeim sem
föttuðu grínið fannst þetta fyndið
og þetta var mjög skemmtilegt. Ég
átti reyndar frekar erfitt með mig
því ég get varla horft á falda
myndavél án þess að vorkenna
viðkomandi. Mig langaði því allt-
af til að hlaupa burt grátandi þeg-
ar Silvía Nótt úthúðaði einhverj-
um. En þetta gekk alveg upp hjá
þeim og þau gerðu það sem þau
ætluðu að gera. Svo er það spurn-
ing hvort fólki fannst það
skemmtilegt eða ekki, það er allt
annað mál. Þetta var því hiklaust
eftirminnilegasta ferðin þótt þær
séu allar eftirminnilegar á sinn
hátt.“
Sólóplata á næstu árum
Pétur segist staðráðinn í því að
halda áfram að spila næstu árin
þó hann viti ekki hve lengi hann
spilar á böllum. „Það gæti nú
orðið mun lengra en maður held-
ur og það er í góðu lagi. Ég
skammast mín ekkert fyrir það.
Ég hugsa alltaf á þann veg að á
meðan ég get þetta, hef röddina
og heilsuna, þá geri ég það. Ég
held ég geti líka óhræddur sagt að
á næstu fimm til tíu árum muni
ég gefa út sólóplötu, ég held að
það yrði skemmtilegt verkefni. Ég
myndi semja öll lög og texta sjálf-
ur en ég veit hins vegar ekki hvort
ég myndi spila á öll hljóðfærin.
Ég er ekki mjög góður trommu-
leikari og saxófónninn hefur aldr-
ei verið mér hugleikinn. Aftur á
móti er sólóplata eitthvað sem ég
myndi vilja gera fyrir sjálfan mig
og gefa út. Ef fólk hefði gaman af
því þá væri það bara bónus fyrir
mig, ef fólk myndi kaupa diskinn
þá yrði það ennþá meiri bónus og
ennþá skemmtilegra.“
Hef föðurhlutverkið í mér
Pétur er kannski ekki þessi týp-
íski rokkari enda segist hann oft-
ast vera rólegur og glaður. „Mér
finnst voða gott að vera heima og
lesa, ég er alltaf með bók á nátt-
borðinu. Ég lyfti mér vitanlega
upp af og til og fæ mér bjór með
strákunum sem er mjög gaman
en ég er náttúrlega kominn á ald-
ur,“ segir Pétur og glottir góðlát-
lega en hann verður 37 ára í ár.
Pétur er í sambúð og á eina dótt-
ur úr fyrra sambandi. Hann segist
vera ástfanginn upp fyrir haus af
kærustu sinni. „Við eigum mikið
og margt sameiginlegt en við höf-
um verið saman í fjögur ár. Ég hef
alltaf viljað taka öllu mjög rólega
enda rólyndismaður. Mér finnst
nóg þegar fólk elskar hvað annað
og sambandið er gott og þá þarf
ekkert endilega staðfestingu á því.
Ég er heppinn maður og dóttir
mín er ekki síður yndisleg. Það
var mjög skrýtið að verða faðir,
þetta var ekki fyrirfram skipulagt
og segja má að ég hafi farið á smá
bömmer því ég vissi eiginlega
ekki hvað ég átti að gera. Þegar
litla krílið kom svo í heiminn þá
var ekkert hægt að gera nema
bráðna. Ég get ekki sagt að föð-
urhlutverkið hafi breytt mér á
nokkurn hátt. Systur mínar eiga
börn og ég hef alltaf verið fyndni
frændinn. Mér hefur alltaf fundist
gaman að fíflast í frænkum mín-
um og mér þykir ótrúlega vænt
um þær. Þegar svo bættist eitt
barn í hópinn sem vildi svo til að
var dóttir mín þá fann ég að ég
hafði þetta alveg í mér. Ég hafði
greinilega fengið næga æfingu.“
Pétur Örn Guðmundsson:
„Ég held að við getum gert
skemmtilegt popprokk, ekkert
merkilegra en það en samt
eitthvað skemmtilegt.“
Sólóplata Ég held ég
geti líka óhræddur sagt
að á næstu fimm til tíu ár-
um muni ég gefa út sóló-
plötu, ég held að það yrði
skemmtilegt verkefni.
a
Það var mjög skrýt-
ið að verða faðir,
þetta var ekki fyrirfram
skipulagt og segja má að
ég hafi farið á smá
bömmer því ég vissi eig-
inlega ekki hvað ég átti
að gera.
24stundir LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2008 55
24stundir/Frikki
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Laugardagur 7. júní 2008
Bubbi í toppformi á nýju
plötunni sinni
» Meira í Morgunblaðinu
Frábær naglasúpa
Öll mannlífsflóran í bíó-
myndum um fótboltann
» Meira í Morgunblaðinu
List og fótbolti
Guðmundur Þóroddsson
gerir upp REI-málið
» Meira í Morgunblaðinu
Okkur gekk of vel
Mismunandi kostnaður
við nám í ýmsum háskólum
»Meira í Morgunblaðinu
Hvað kostar það?
Unnum Svía en hvernig
fer gegn Makedóníu?
» Meira í Morgunblaðinu
Hlutverkaskipti