24 stundir - 18.07.2008, Side 30

24 stundir - 18.07.2008, Side 30
30 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 24stundir Nú er rétti tíminn til þess að undirbúa næsta veiðitímabil. Veiðikortið veitir aðgang að rúmlega 30 vatnasvæðum vítt og breitt um landið fyrir aðeins 5000 kr. Frí heimsending þegar verslað er beint á www.veidikortid.is Tryggðu þér Veiðikortið í tíma! Áaðveiða í sumar? Landsins mesta úrval af laxa- og silungaflugum www.frances.is Frítt flugubox fylgir Eftir Kjartan Þorbjörnsson veidi@24stundir.is Sex manna hópur var við veiðar í Stóru-laxá í Hreppum um helgina. Þeir voru með fjórar stangir á fjórða og efsta svæði. Einn úr hópnum, Kjartan Þór Þorbjörns- son, sagði þá hafa stundað veiðar í ánni í sex til átta ár, yfirleitt á þess- um tíma árs. „Þetta hefur gengið upp og ofan í gegnum tíðina. Mest náðum við sjö, átta löxum í júlí 2006. Þá var áin mikil og skoluð. Öll hin árin hefur þetta verið frekar dauft. Kannski náð einum eða tveimur. Núna var áin í fallegu vatni og við sáum mjög mikið af laxi. Við náðum tólf, en settum í miklu fleiri, örugglega tuttugu. Það lágu fiskar á flestum stöðum sem hægt var að skoða. Mest var á Pall- inum en við sáum laxa á fleiri stöð- um á Hólmabreiðusvæðinu og upp á Hrunakrókssvæði sáum við fiska á minnst fjórum stöðum.“ Kjartan Þór sagði þá félaga ekki hafa séð neina risafiska á svæðinu. „Við tókum tvo 10 pundara en restin var smálax. Helmingurinn kom á flugu og hitt á maðkinn.“ Hrútafjörður heillandi Hrútafjarðará er síðsumarsá sem getur orðið illveiðandi í þurrkum. Rigning helgarinnar teygði sig norður yfir Holtavörðuheiðina og hjálpaði örlítið til. Fyrir helgi var búið að landa ellefu löxum í Hrút- unni frá opnun og vatnsstaða fór hríðversnandi. Þó var ástandið ör- lítið betra en var í fyrra. Fiskur sást á nokkrum stöðum upp um alla á og einnig í einum eða tveimur veiðistöðum í þveránni Síká. En hann var ljónstyggur og erfiður viðureignar. Þrenn hjón sem voru þar við veiðar um helgina upplifðu hvað smárennslisaukning getur gert fyrir veiðina. Fyrsta einn og hálfan veiðidaginn gekk ekkert. Þó að varlega væri farið náðist ekki að setja í einn einasta lax. Á laugar- deginum fór að rigna og aukið líf færðist í ána. Á seinni hlutanum, einum og hálfum degi, náði hóp- urinn sjö löxum, öllum á smáar flugur og litla túbur. Þrír komu úr ómerktum veiðistað á ósasvæði ár- innar, tveir úr Ármótum og tveir úr Bálki við Brúarskála. Allir voru í góðum holdum, þykkir fimm til átta punda laxar. Stuð í Straumum Nokkrir félagar sem kláruðu tveggja daga holl í Staumunum, á miðvikudaginn, lentu í veislu. Straumarnir er á vatnamótum Hvítár í Borgarfirði og Norðurár. Þegar lítið vatn er í Norðurá á lax- inn það til að liggja í þessum vatna- mótum og bíða færis með að ganga upp í bergvatnsárnar. Þrátt fyrir að hækkað hafi verulega í Norðurá var enn mikið af laxi í Straumum. „Það hefur verið rífandi gangur. Það liggja 45 laxar á tvær stangir. Þetta eru allt svakalega fallegir og grálús- ugir smálaxar,“ sagði Örn Þórisson sem var á heimleið þegar blaða- maður hringdi í hann. „Við tókum þá langflesta á flugu. Rauð Frances hefur svínvirkað hjá okkur, ekki bara í túbuformi heldur bara venjulegar smáflugur.“ Örn sagði að þrátt fyrir bongóblíðu og sól hefði verið jöfn veiði allan tímann. „Við höfum ekki staðið stíft við, haft það frekar rólegt,“ sagði Örn og tók fram að einn úr hópnum hefði stundað Staumana í mörg ár; „Hann hefur aldrei séð annað eins. Við hefðum getað náð mun fleiri löxum hefðum við notað maðk, en vit vorum langmest með fluguna.“ Blautir draumar laxveiðimanna rættust Laxveiðisumarið er komið á fullt skrið Í fyrra áttu veiðimenn í mestu vandræðum vegna mikilla þurrka. Laxveiðiár á S- og Vesturlandi hurfu nánast alveg og laxinn neitaði að ganga þar til rigningar hófust í ágúst. Í byrjun þessa mánaðar fóru menn að ókyrrast og héldu að sagan myndi endurtaka sig en svo hellirigndi um helgina og allt fór á fullt. Mokveiði Jón Ólafur Sig- urjónsson sleppir 80 sentimetra hrygnu sem hann tók á Speglinum. Hver langferð byrjar á einu skrefi og hér er það: Þú ert á leið til dokt- orsgráðu í silungapúpum og ætlar að kjafta þig í gegnum inntökupróf- ið. Þetta er það sem þú þarft að vita ef þú ert á leið í litla sæta silungsá eða ætlar í veiðivatn með urriða og bleikju í þokkalegu úrvali. Fyrst þarftu að koma við í veiðibúð – því þú ert ekki byrjuð að hnýta og mað- urinn þinn ekki heldur. Það kemur næsta vetur. En nú þurfið þið sil- ungsveiðahjónin að versla því ann- ars fæst ekkert á grillið. Þið kaupið púpur, því þær eru almennt séð veiðnari en almennar sígildar vot- flugur, sem þó er alltaf gaman að eiga. Peacock. Hún er mest notaða sil- ungapúpa á Íslandi og til að vera viss kaupir þú hana bæði með og án kúluhauss. Stærðir 10-12 eru ágæt- ar. Teal and Black púpan. Sígild og er hér komin vegna þess að hún líkir svo vel eftir lirfum mýflugna. Stórir silungar taka hana og litlir líka. Hún er fulltrúi svörtu púpunnar í safn- inu. Ég myndi vilja sjá boxið ykkar með stærðum 10-16. Peter Ross púpan. Snillingar gera hana sjálfir í ýmsum afbrigðum. Sagt er að ekki sé til sá silungur sem einhvern tíma dagsins taki ekki Pet- er Ross. Kúnstin er bara að hitta á þá stund. Ráðið er að standa bara stöð- ugt við. Peter Ross er frábær fluga og púpa og gaman að eiga hana. Killer. Nafnið segir allt sem segja þarf. Á Þingvöllum er hún í heið- urssæti. Með kúlu og rauðum kraga, eða án kúlu og bara svört með vafn- ingum. Tailor. Nafnið segir ekki neitt. En reynsla ólyginna er sú að hún gefi alls staðar fisk þar sem fiskar éta lirf- ur flugna. Þú skalt eiga hana brúna og svarta, að minnsta kosti. Hvað stærðir þarftu? Þegar komið er fram í júlí og ágúst smækka silungaflugurnar, sem þýðir að menn nota flugur með hærri númerum. Þetta er ein af lífs- gátum fluguveiðinnar og þér nægir að vita þetta í bili. Þess vegna þarftu að eiga Teal and Black, Peter Ross og Tailor í stærðum 12, 14 og jafnvel 16. Það eru smáar flugur sem kalla á granna tauma. Fimm punda taum- ur nægir. Reyndar eru fimm punda taumar afskaplega misjafnlega sver- ir, og ég hef á tilfinningunni að nú sé komið að því að fara inn á flugur.is og skoða myndir af þessum púpum og mörgum fleiri, og lesa greinar um línur og tauma. Því að eiga flug- urnar er bara byrjunin. Á flugur.is er grein sem lýsir vali á flugum fyrir 200 ár og vötn á Íslandi ef þú vilt fá fleiri hugmyndir! Það sem margir flaska á er að reyna ekki nógu smáar flugur. Stærð 16 er frekar smá en stundum of stór. Þegar komið er fram á mitt sumar er svo margt að gerast í lífríkinu að úr- valið í boxinu þarf að vera sæmilegt. Skoði maður í maga silungs kemur oft í ljós hve agnarsmá skordýrin eru. Ekki hika við að smækka og grenna tauminn. Og hafðu tauminn þá langan. Rúmlega stangarlengd en ekki styttri. Og já. Ég geymdi bestu fluguna þar til síðast. Pheasant tail. Með kúluhaus og án, í öllum stærð- um og gerðum. Og ef þú vilt vera al- veg örugg og slá manninum þínum við skaltu laumast til að ná þér í ,,flugu 20. aldarinnar“ Héraeyra. Veiddu betur í samstarfi við flugur.is Skyndihjálparnámskeið: Silungapúpur Stefán Jón Hafstein skrifar um veiði VEIDDU BETUR Óvenjumikið hefur veiðst af löx- um í sumar sem eru um og yfir tíu kíló. Á síðunni www.streng- ir.is eru frásagnir af baráttu og löndun margra stórlaxa. Á www.votnogveidi.is segir að Halla Stefánsdóttir hafi sett í og landað 110 sentímetra laxi í Hofsá. Lax að þeirri lengd er eflaust langt yf- ir 25 pund nýgenginn. Veiðimað- ur missti risalax í Hnausastreng í Vatnsdalsá á miðvikudaginn eftir mikla baráttu. Sá stóri endaði með að strauja alla línu og und- irlínu út af einhenduhjóli veiði- mannsins, slíta tauminn eins og tvinna. Stórlaxasumar LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Það hefur verið rífandi gangur. Það liggja 45 laxar á tvær stangir. Þetta eru allt svakalega fallegir og grálúsugir smálaxar. veiði

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.