24 stundir - 18.07.2008, Side 35
24stundir FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 35
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Skítt með kerfið!
Lifðu núna
Með Vodafone Frelsi velur þú 5 vini og
skráir þá á vodafone.is. Hvaða vini sem er,
alveg sama hjá hvaða símafyrirtæki þeir eru.
Misstu ekki af þessu frábæra sumartilboði.
Skiptu strax og gefðu skít í kerfið.
Hringdu fríkeypis í 5 vini óháð kerfi
Roger Daltrey, söngvari The
Who, reyndi fyrir sér í tölvu-
leiknum Rock Band á dög-
unum og þótti hann afskaplega
leiðinlegur. Þetta kom fram í
viðtali við CNN á dögunum en
hann gagnrýndi einnig hvernig
tæknin hefur breytt því hvern-
ig fólk tengist tónlist í dag.
„Hér áður fyrr höfðum við
ekkert annað en kvikmynda-
hús, tónlist og kynlíf. Lífið var
miklu betra,“ sagði Daltrey. Í
Rock Band syngja spilarar hina
ýmsu rokkslagara og er þar
meðal annars að finna Who-
slagarann Won’t Get Fooled
Again. Daltrey hefur vænt-
anlega skemmt sér betur við að
syngja það fyrir framan tug-
þúsundir áhorfenda, fremur en
sjónvarpsskjáinn. bba
Það hryggir eflaust marga
aðdáendur sjónvarpsþáttanna
Scrubs að heyra að aðalleikari
þáttanna, Zach Braff, hyggist
hætta í þáttunum. Skapari
þáttanna, Bill Lawrence, hefur
staðfest að komandi þáttaröð
verði sú síðasta sem Braff tek-
ur þátt í. Hann gefur einnig í
skyn að með brotthvarfi leik-
arans muni þættirnir líða
undir lok. „Lokaþátturinn
mun snúast um það að J.D. yf-
irgefur spítalann,“ segir Law-
rence en það er persónan sem
Braff leikur. Afar líklegt þykir
að hann muni snúa sér alfarið
að kvikmyndaleik. hh
Zach Braff
hættir í Scrubs
Það hefur nú verið staðfest að
Hómer Simpson og hans
fræga fjölskylda muni birtast
aftur á hvíta tjaldinu eftir að
fyrsta kvikmyndin sem sýnd
var á síðasta ári sló rækilega í
gegn. Þó svo að hægt sé að
deila um gæði fyrstu mynd-
arinnar sveik hún ekki pen-
ingakassann og halaði inn 500
milljónir dollara. „Það verður
önnur mynd gerð á ein-
hverjum tímapunkti, en ég hef
enga hugmynd um hvenær ná-
kvæmlega. Fyrsta myndin tók
okkur fjögur ár, aðallega út af
því að okkur líkar ekki að
leggja harðar að okkur en
venjulega,“ segir Matt Groen-
ing, skapari fjölskyldunnar. hh
Simpson aftur
á hvíta tjaldið
Roger Daltrey
Rock Band
leiðinlegur
Tívolí verður opnað á Ásvöllum í
Hafnarfirði um helgina. „Þetta er 16. ár-
ið mitt, en hin nýja staðsetning er til-
komin vegna 100 ára afmælis Hafnar-
fjarðar. Þarna eru næg bílastæði og ég
minni fólk á að koma með reiðufé,“ segir
Jörundur Guðmundsson tívolístjóri.
Tívolíið fer til Akureyrar um verslunar-
mannahelgina og verður þar í viku, áður
en haldið verður aftur suður. Endað
verður á Ljósanótt í Keflavík í byrjun
september.
Tívolí opnað um helgina