24 stundir - 18.07.2008, Qupperneq 38
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjornbragi@24stundir.is
„Þetta er ótrúlegt land og hér er
æðislegt að vera. Það er ekkert
sem mér mislíkar við Ísland,“ seg-
ir Andrew Parkinson, yfirkokkur á
veitingastaðnum Fifteen í London.
Fifteen er veitingahúsakeðja sem
var stofnuð af sjónvarpskokknum
heimsþekkta, Jamie Oliver, og eru
útibú hennar í hópi fínustu veit-
ingastaða heims. Staðurinn er
frægur fyrir að starfa náið með
ungmennum sem hafa orðið ut-
anvelta í samfélaginu og koma
þeim á legg sem kokkar.
„Við fáum til okkar ungt fólk
sem hefur erfiðan bakgrunn; hefur
kannski verið í eiturlyfjaneyslu, í
fangelsi eða kemur af munaðar-
leysingjahæli. Við tökum þeim ná-
kvæmlega eins og þau eru, án
nokkurra fordóma, og gefum
þeim tækifæri til þess að snúa við
blaðinu og hljóta menntun til að
starfa sem kokkar. Við höfum gert
þetta í nokkur ár og margir sem
hafa tekið þátt starfa nú á ein-
hverjum fínustu veitingahúsum
heims,“ segir Parkinson.
Þekking Olivers einstök
Parkinson er góður vinur Jamie
Olivers og starfa þeir náið saman
við Fifteen. Hann segir sjónvarps-
kokkinn hafa mikinn metnað fyrir
verkefninu með unga fólkinu og
ber honum söguna ákaflega vel.
„Jamie er einhver einlægasti
maður sem ég hef kynnst. Fólk
áttar sig kannski ekki á því hvað
hann er hæfileikaríkur, þar sem
hann talar mikið í sjónvarpsþátt-
unum, en er ekki allan tímann
fyrir framan eldavélina. En hann
er ótrúlegur kokkur og þekking
hans á matseld er ákaflega yf-
irgripsmikil.“
Líkar ótrúlega vel við Ísland
Parkinson kom til Íslands á
þriðjudag ásamt David Kapay, fé-
laga hans frá Fifteen, og fara þeir
heim í dag. Þeir hafa verið í góðu
yfirlæti hjá Leifi Kolbeinssyni,
kokki á La Primavera, og dásamar
Parkinson Ísland í hvívetna.
„Ég kom fyrst til Íslands fyrir
tveimur árum þegar ég var fulltrúi
La Primavera á Food and Fun-
hátíðinni. Nú hef ég haft meiri
tíma til þess að skoða land og þjóð
og líkar ótrúlega vel. Við erum til
dæmis búnir að skoða Gullfoss og
Geysi, fórum upp í Laxá í Kjós og
höfum borðað mikið af góðum
mat,“ sagði Parkinson áður en
hann kvaddi blaðamann og hélt í
siglingu að skoða hvali og lunda.
Andrew Parkinson af veitingastaðnum Fifteen er staddur hér á landi
Götukrakkar verða
færustu kokkar
Fifteen er glæsilegur veit-
ingastaður, sem var
stofnaður af sjónvarps-
kokkinum Jamie Oliver.
Staðurinn hjálpar ungu
fólki í vanda og gerir það
að færustu kokkum.
Jamie Oliver Kokkurinn kominn í klæði.
24stundir/Frikki
Heitt í kolunum Andrew
og David sýna listir sínar í
eldhúsinu á La Primavera.
38 FÖSTUDAGUR 18. JÚLÍ 2008 24stundir
Til hamingju Benedikt, það er
glæsilegt afrek það sem þú hefur
nú lokið með sæmd og sóma …
Að synda yfir 60 kílómetra á 16
tímum það er hreint ótrúlegt,
bein lína yfir er nú rúmir 30 kíló-
metrar svo einhverjir hafa
straumarnir verið sem kappinn
hefur þurft að berjast við.
Geir Jón Þorsteinsson
geissi.blog.is
Horfðum í gær á síðasta Lost-
þáttinn í fjórðu þáttaröðinni …
Nær allir sem við þekkjum hafa
gefist upp – en úr þessu kemur
ekki til greina annað en að horfa
fram á vor 2010 … Það er nægur
tími til að drepa allflestar aðal-
persónurnar og lífga þær aftur
við 2-3 sinnum …
Stefán Pálsson
kaninka.net/stefan
Þessi maður er svo fáranlegur að
það hálfa væri miklu meira en
nóg. Æi, var veslings Gillzeneg-
ger búaður af sviðinu? Jú, vitið
þið hvers vegna? Því þau mæm-
uðu. Þau voru ekkert að syngja
eða neitt heldur voru þau bara
að hreyfa varirnar og dansa í
takt.
Jónas Davíð Jónasson
blogg.visir.is/landi
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Einn dýrasti handboltamaður á Íslandi, Sigfús Páll
Sigfússon, leikstjórnandi Vals í N1-deildinni, sem
fór með nokkrum hávaða frá Fram-liðinu á síðustu
leiktíð, er genginn til liðs við Sólstrandargæjana fyr-
ir komandi átök í Strandhandboltamótinu í Naut-
hólsvík. Telst þetta nokkur fengur fyrir Sólstrand-
argæjana, sem hafa aðeins unnið til
búningaverðlauna á undangengnum mótum. tsk
Það hefur sjaldan þótt töff að vera „square.“
Strákarnir í Skver-kvartettnum eru þó mjög töff,
en þeir munu halda tónleika í Ráðhúsinu á laug-
ardaginn klukkan 14.00. Á efnisskránni verður
frumsamin tónlist meðlima kvartettsins, sem allir
eru nemendur í FÍH, en leikið er á saxófón, kontra-
bassa, gítar og slagverk og ættu Skver-menn því að
geta spilað tónstigann án vandkvæða. tsk
Ofurbloggarinn Andrés Jónsson er afar glaður yfir
að hafa heyrt í útvarpsmanninum Frey Eyjólfssyni
í fréttatíma útvarps um daginn. Andrés segir það
reynast vel að fá unga húmorista og sprellara í hóp
fréttamanna og vísar til Sigmars Guðmundssonar
máli sínu til stuðnings. Að gefnu tilefni má geta
þess, að Freyr Eyjólfsson hefur verið starfandi á
fréttastofu útvarps síðastliðin þrjú ár...tsk
„Ég býst nú ekkert endilega við
rauða dreglinum, lúðrasveit og
Ólafi Ragnari þegar við lendum á
Keflavíkurvelli, en tilfinningin er
góð samt sem áður,“ sagði Yngvi
Björnsson, sigurreifur í gær, en
Yngvi er dósent við tölvunar-
fræðideild Háskóland í Reykjavík.
Hann leiddi íslenska liðið til sigurs,
annað árið í röð, á stærstu gervi-
greindarráðstefnu heims, sem fram
fór í rokborginni Chicago í vik-
unni.
Ísland framarlega á merinni
Með Yngva í för eru þeir Hilmar
Finnsson og Gylfi Þór Guðmunds-
son. Þeir unnu undankeppnina, en
þá tók við útsláttarkeppni, þar sem
Ísland lék til úrslita við Kaliforn-
íuháskóla, annað árið í röð. „Þeir
ætluðu sér stóra hluti frá byrjun og
voru með mjög öflugt forrit, sem
gat valið á milli tveggja gervi-
greindarkerfa, það sem best átti við
hverja þraut. Okkar kerfi er í raun
önnur nálgun á lausn vandamál-
anna en flestir nota og vorum við
þeir einu sem notuðum það kerfi í
fyrra. Nú voru hins vegar margir
háskólar búnir að tileinka sér þá
tækni, en við náðum að sigra, á
síðustu þrautinni þó,“ segir Yngvi,
sem vill meina að Ísland hljóti að
vera í fremstu röð á þessu sviði.
Hann vill þó ekki viðurkenna að
um einhvers konar nörda-
samkomu sé að ræða. „Ég myndi
nú ekki nota þau orð nei, en vissu-
lega er þetta hið akademíska há-
skólasamfélag sem þarna kemur
saman og við erum ekkert að missa
okkur í fagnaðarlátunum.“
traustis@24stundir.is
Íslendingar eignast heimsmeistara á ný
Ísland varði heims-
meistaratitilinn
Heimsmeistarar Þeir Yngvi, Hilmar og
Gylfi geta verið stoltir.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
9 6 2 4 7 1 5 8 3
7 8 3 9 2 5 1 4 6
4 5 1 3 8 6 7 9 2
5 7 4 2 9 8 6 3 1
6 1 9 5 3 7 8 2 4
2 3 8 1 6 4 9 5 7
1 9 5 6 4 3 2 7 8
3 2 7 8 1 9 4 6 5
8 4 6 7 5 2 3 1 9
Barnfóstran sofnaði og einhverjir þjófar
komu og átu súkkulaðikökuna.
Haukur, gleymdur en hvergi geymdur?
Knattspyrnukappinn úr Fylki, Haukur Ingi Guðnason, er í
níunda sæti lista spænska vefritsins Setanta Sports yfir
gleymda leikmenn Liverpool-liðsins, en Haukur lék með
liðinu um tíma.
FÓLK
24@24stundir.is a
Þeir mundu að minnsta kosti
eftir mér til að setja mig á
listann …
fréttir