24 stundir - 06.09.2008, Qupperneq 6
Ökumaður fólksbíls keyrði yfir
upphlaðið hringtorg á mótum
Bæjarháls og Tunguháls í Árbæj-
arhverfi um þrjúleytið í fyrrinótt.
Ökumaðurinn var einn í bílnum
en hann hljóp í burtu af vettvangi
áður lögreglan kom á staðinn.
Um tólf metra bremsför eru á
vettvangi og þykir það benda til
þess að bílnum hafi verið ekið
hratt. Málið er til skoðunar hjá
lögreglu. mh
Keyrði yfir
hringtorg í Árbæ
6 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
Ljósanótt var sett í níunda sinn í
Reykjanesbæ á fimmtudagsmorg-
un og fer þar fram heilmikil dag-
skrá yfir helgina. Verkefnisstjóri
hátíðarinnar, Ásmundur Friðriks-
son, hefur verið önnum kafinn við
undirbúning síðastliðna daga og
vart unnt sér hvíldar.
04:30 Vaknaði og var kom-inn niður á hátíðar-
svæðið klukkan korter í fimm og
byrjaður að flagga. Yfirleitt er ég
kominn í vinnuna 6.30 þannig að
þetta var ekkert svo snemmt á
minn mælikvarða. Við erum með
yfir 100 fána sem þarf að flagga
þannig að það var nóg að gera.
07:00 Fór í útvarpsviðtal áRás 1 niðri í Duus-
húsum hér í Reykjanesbæ. Var eftir
það á miklum þeytingi um hátíð-
arsvæðið að huga að ýmsum mál-
um.
11:00 Mætti á setninguLjósahátíðar við
Myllubakkaskóla þar sem 3000
skólabörn úr skólum Reykjanes-
bæjar voru samankomin og
slepptu blöðrum til himins í tilefni
hátíðarinnar. Þetta var mjög
skemmtileg stund.
13:00 Ég man ekki eftir aðhafa borðað hádeg-
ismat en drakk því meira af kaffi
yfir daginn. Upp úr hádeginu fékk
ég nokkra félaga mína til að að-
stoða mig við að hengja upp 12
myndir í samsýningu á portrett-
myndum sem ég tek þátt í í galleríi
í Svarta Pakkhúsinu í Reykjanesbæ.
15:00 Undirbúningur ískessuhellinum sem
fólst í því að aðstoða Stöð 2 við að
koma sér í samband og undirbúa
sjónvarpsútsendinguna sem hér
var. Við vorum að mála fótspor
skessunnar hér á höfnina þar sem
hún hafði komið í heimsókn til að
kíkja á híbýli sín.
19:30 Eftir að hafa borðaðkvöldmat heima
mætti ég á opnun sýningarinnar
minnar og fór síðan klukkan 20 og
tók þátt í sagna- og söngvakvöldi á
Nesvöllum ásamt Guðna Ágústs-
yni, Árna Johnsen, Sigurjóni Vil-
hjálmssyni og Jóni Borgarssyni,
öflugum körlum úr bænum. Þar
var ég að segja sögur og kjaftaði á
mér hver tuska. Ég geri það stund-
um að segja sögur og fékk þarna
ágætis undirtektir held ég.
22:00 Fór og náði í restinaá unglingatónleik-
unum Unga fólkið rokkar og sá
Mínus spila áður en ég hélt heim á
leið.
23:45 Varla lagstur á kodd-ann þegar ég var
sofnaður eftir afar erilsaman dag.
Kjaftaði á mér
hver tuska
➤ Er nú haldin í níunda sinn ogsækja sífellt fleiri hátíðina ár
hvert til að njóta viðburða
víða um bæinn.
➤ Á dagskránni eru myndlist-arsýningar, barnadagskrá,
tónleikar og íþróttaviðburðir
svo fátt eitt sé nefnt.
LJÓSANÓTT
Ásmundur Frið-
riksson Verkefn-
isstjóri ljósanætur og
aðstoðamaður hans
Árni Ragnarsson.
24stundir með Ásmundi Friðrikssyni, verkefnisstjóra
Ljósanætur sem nú stendur yfir í Reykjanesbæ.
Mynd/Sigríður Jóhannesdóttir
Hass, amfetamín, marijúana, e-
töflur og kannabisplöntur fundust
við húsleit í nokkrum íbúðum í
miðborg Reykjavíkur í fyrrakvöld.
Einnig var lagt hald á peninga sem
grunur leikur á að tengist fíkni-
efnasölu.
Höfð voru afskipti af nálægt
tuttugu manns í tengslum við hús-
leit lögreglunnar. Fíkniefnin fund-
ust í híbýlum sjö þeirra eða á þeim
sjálfum.
„Það er enginn í varðhaldi. Öll-
um var sleppt,“ segir Karl Steinar
Valsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn
fíkniefnadeildar höfuðborgarsvæð-
isins.
Að sögn Karls Steinars var ekki
um mikið magn fíkniefna að ræða.
„Þetta voru bara neysluskammtar.“
ib
Húsleit lögreglu í íbúðum í miðbænum
Hald lagt á fíkni-
efni og peninga
Eldur kom upp í byggingum Ís-
taks á Grænlandi í gærmorgun og
brunnu verkstæði, lager og raf-
stöðvar fyrirtækisins til ösku.
Svæðið sem byggingarnar voru á
er á vesturströnd Grænlands þar
sem Ístak vinnur að byggingu
vatnsaflsvirkjunar sem sjá á bæn-
um Sisimiut fyrir orku. Ljóst má
vera að þær framkvæmdir munu
stöðvast um einhvern tíma.
Starfsmenn Ístaks á staðnum
reyndu að slökkva eldinn en
höfðu ekki erindi sem erfiði.
Virkjunin er fjarri byggð og því
var ekki hægt að kalla til slökkvi-
lið í tæka tíð enda aðeins hægt að
komast sjóleiðina að svæðinu.
Forsvarsmenn Ístaks segja að
tjónið sé töluvert en ekki sé hægt
að leggja mat á það að sinni. fr
Byggingar
Ístaks brunnu
Íbúar í Lindahverfi í Kópavogi hafa stofnað samtök sem ætlað er að
verða sameiginlegur vettvangur þeirra í skipulagsmálum til framtíðar
en eiga ekki að hverfast um eitt tiltekið mál, að sögn Sigurðar Þórs Sig-
urðssonar, stjórnarmanns íbúasamtakanna sem einnig ætla að láta sig
skipulagsmál í aðliggjandi hverfum varða.
Miklar breytingar verða gerðar á deiliskipulagi Glaðheimasvæðis við
Reykjanesbraut og búast margir við umfangsmiklum gatnafram-
kvæmdum því samfara.
mbl.is
Íbúarnir taka höndum saman
www.tskoli.is
Íslenska sem
annað tungumál
Icelandic for
foreign students
Námskeið fyrir útlendinga sem vilja læra íslensku: ÍSA102 er
ætlað algerum byrjendum, ÍSA202 er fyrir þá sem hafa svolitla
þekkingu á íslensku og ÍSA302 fyrir lengra komna.
Námskeiðin heast 23. september og kennt verður á þriðjudögum
og fimmtudögum. Heildarlengd hvers námskeiðs er 60 kennslu-
stundir. Námskeiðið gefur 2 einingar á framhaldsskólastigi.
Verð kr. 11.500 (kennslubók er innifalin í verði).
Nánari upplýsingar veitir Fjölnir Ásbjörnsson í síma 821 5647.
Icelandic language courses for foreign students:
ÍSA102 for absolute beginners, ÍSA202 for those with
a little knowledge in Icelandic and ÍSA302 for more
advanced students.
e courses start September 23. Lessons will take place
Tuesdays and ursdays at 6 to 8 PM. Total number of
lessons given in each course is 60. e course carries 2
credits on the modular credit system.
Price IKR 11.500 (Price includes a textbook).
For further information please call Fjölnir
Ásbjörnsson at 821 5647.
VERSLUNARINNRÉTTINGAR
Til sölu mjög fallegar innréttingar fyrir
fatnað (stillanlegar) úr burstuðu stáli
og hvítu plexi.
Nánari uppl. í síma 897-7917