24 stundir - 06.09.2008, Side 18
18 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
FÉ OG FRAMI
frettir24stundir.is a
Fólk kaupir frekar dýrari
flatskjái nú en áður og leggur
meiri áherslu á gæði.
SALA
JPY 0,8348 4,93%
EUR 126,27 2,03%
GVT 165,89 2,45%
SALA
USD 88,72 3,18%
GBP 156,12 2,47%
DKK 16,939 2,06%
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@24stundir.is
Niðursveifla og samdráttur í efna-
hagslífinu virðist ekki hafa meiri
áhrif á almenning en svo að
flatskjáir seljast nú sem aldrei fyrr
í raftækjaverslunum landsins.
Þeir verslunarstjórar sem 24
stundir ræddu við segja að fólk
kaupi nú í auknum mæli dýrari
flatskjái en áður og að fólk sé jafnt
að endurnýja eldri flatskjái og
skipta út gömlum svokölluðum
túpu-sjónvörpum.
„Fólk kaupir ekki endilega
stærri skjái en áður,“ segir Sævar
Haukdal hjá Sense. „Hægt er að
kaupa mjög stóra flatskjái, sextíu
tommur eða stærri, en flestir virð-
ast enn halda sig við fjörutíu
tommu skjáina.“ Reyndar segir
Sævar að sala á 46 tommu skjám
hafi aukist, en verðmunur á þeim
og 40 tommu skjánum sé ekki eins
mikill og hann hafi verið.
„Á haustin koma frá framleið-
endum nýjar vörur og nýjar línur
og því eykst sala venjulega um
þetta leyti. Við höfðum hins vegar
búist við einhverjum sölusam-
drætti vegna aðstæðna í efnahags-
málum, en raunin hefur orðið
önnur.“
Segir Sævar að áberandi sé að
fólk kaupi frekar dýrari og betri
sjónvörp nú en raunin var kannski
áður fyrr. „Fólk leggur meira upp
úr myndgæðum og skerpu sjón-
varpanna en áður, en gæði vör-
unnar hafa líka verið að aukast til
muna undanfarið. Myndgæði eldri
flatskjánna voru ekki miklu meiri
en í gömlu túpusjónvörpunum og
í ákveðnum tilfellum voru þau
minni. Nú skipta gæðin fólk meira
máli, þótt sjónvörpin sem keypt
eru séu dýrari en ella.“
Vörugæði og vöruverð
Svipaða sögu er að segja af sölu
flatskjáa í BT. Rúnar Örn Rafns-
son, rekstrarstjóri hjá BT, segir
söluna nú ívið minni en á sama
tímabili í fyrra. „Þetta hefur samt
sem áður verið í samræmi við
væntingar hjá okkur,“ segir Rúnar.
„Fólk kaupir betri tæki núna en í
fyrra, en ekki endilega dýrari. Við
leggjum okkur fram um að halda
vöruverði lágu.“ Segir Rúnar mik-
inn gæðamun á þeim tækjum sem
eru á markaðnum nú og þeim sem
hægt var að kaupa fyrir ári. „Hás-
kerputæknin er orðin mun betri
en hún var og er svo komið að
háskerpuskjáir eru með mun betri
upplausn en útsendingar sjón-
varpsstöðvanna bjóða upp á.“
Þrátt fyrir þetta segir Rúnar að
ekki hafi mikið breyst í smekk Ís-
lendinga á stærð flatskjáa. Enn sé
mest selt af skjám á bilinu 32-42
tommur.
Hvað varðar áhrif efnahagsþró-
unar á sölu á flatskjám segist Rún-
ar ekki velta slíku mikið fyrir sér.
„Við leggjum áherslu á vörugæði,
vöruverð og góða þjónustu. Það er
stefna sem skilað hefur okkur ár-
angri og mun gera það áfram.“
Enginn sjón-
varpssamdráttur
Sala á flatskjám hefur lítið sem ekkert dregist saman undanfarið
þrátt fyrir umræðu um versnandi efnahagsástand
Erfitt val Kaupendur
flatskjáa nú virðast horfa
meira í myndgæði en
verðmiðann á tækinu.
➤ Þau tæki sem mest seldust ífyrra og hittifyrra voru svo-
kölluð HD Ready-tæki, þ.e.
tæki sem gátu sýnt háskerpu-
mynd.
➤ Tækin sem nú eru komin ámarkað kallast hins vegar Full
HD og þykja myndgæði
þeirra mun meiri en hinna
eldri tækja.
HÁSKERPUTÆKNIN
MARKAÐURINN Í GÆR
!!"
!
" #
$
%
&'()*
& + ,- ./-
0
12
'
'3.
.4
2
*5
/
62
7 ,
8 2 8
,/
!
"
7,
6
, 9
" & ;;<=>;?<@
A=A@<<>?
@BC@=@A=
@??B;C;<@
@=;<@BAA?
;><A=>BB
C@D?
@A>>B?=A@@
=<?<;<==>
?ABAA@D@
;B==D?<B
@AAB=BC<@
>CA?=DD
B
@CC@A?B
;@?;AA?
DBBBBCD
+
+
+
;;><<>BBB
+
+
AE>?
CE=>
@>E@B
AE=@
;CE?A
;@E@>
@BE?B
A<AEBB
@@E<B
D?E>B
?E@;
DEAB
<CE@B
+
;>A>EBB
@;@EBB
;>DE>B
+
+
+
?C?>EBB
+
+
AE><
CEDB
@>ECB
AE=>
;CEC>
;@EC?
@BE>B
A<=EBB
@?EBB
DCE>B
?E>>
DE=B
<CECB
+
;A>>EBB
@?CEBB
;ABEBB
@;EDB
+
DE>B
?CD>EBB
;BE>B
>EBB
./
,
;D
@;
<
>A
@=
;@
;
;C=
>D
=
?
>?
?
+
>
C
;C
+
+
+
;@
+
+
F
, ,
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
@<@BBD
><@BBD
><@BBD
><@BBD
;A=@BBD
@>D@BBD
?A@BBD
><@BBD
;CD@BBD
=?@BBD
● Úrvalsvísitala Kauphallar OMX
á Íslandi lækkaði um 1,52% í gær
og var lokagildi vísitölunnar
4.057,94 stig.
● Aðeins hækkaði eitt félag á Að-
allista í gær, en gengi bréfa Eikar
Banka hækkaði um 3,77%. Þá var
engin hreyfing á gengi Atlantic
Petroleum eða Føroya Banka.
● Mest var lækkunin hins vegar á
bréfum Icelandair, sem lækkaði
um 7,19% og Exista, sem lækkaði
um 6,01%. Þá lækkaði gengi bréfa
SPRON um 4,41%.
● Velta í Kauphöll var meiri en
undanfarna daga og nam 26,9
milljörðum króna. Þar af var
hlutabréfavelta 4,5 milljarðar.
● Mest munaði þar um 2,7 millj-
arða króna veltu með bréf Kaup-
þings og 790 milljóna króna veltu
með bréf Landsbankans.
Fjárfestingasjóður í eigu stjórn-
valda í Líbýu og Kaupþing voru
helstu kaupendur í hlutafjár-
útboði alþjóðlega olíufyrirtæk-
isins Circle Oil nýverið. Sam-
kvæmt frétt
Reuters-fréttastofunnar safnaði
félagið um 33 milljónum punda í
hlutafjárútboði en alls seldust 174
milljónir hluta á 19 pens á hlut.
Kaupþing á 15,6% hlut í Circle Oil eftir útboðið en bankinn keypti fyr-
ir 10 milljónir punda í útboðinu. Aðalkaupandinn í hlutafjárútboðinu
er hins vegar Libya Oil Holdings, sem er í eigu fjárfestingasjóðs í eigu
stjórnvalda í Líbýu, en félagið keypti fyrir 19 milljónir punda og á eftir
útboðið 29,7% hlut.
Í tilkynningu frá Circle Oil kemur fram að féð sem fékkst í útboðinu
verði notað til þess að fjármagna olíu- og gasleit í Marokkó, Túnis og
Egyptalandi. gh
Kaupþing í olíuleit
Gengikrónunnar veiktist um
2,0% í viðskiptum gærdagsins og
var lokagildi gengisvísitölunnar
164,8 stig.
Velta með gjaldeyri á milli-
bankamarkaði í ágúst nam 606
milljörðum króna. Er það tölu-
vert minna en var í mánuðinum á
undan og 19% minni velta en á
sama tíma í fyrra. Raungengi
hækkaði um 1,2% milli júlí og
ágúst í ár.
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans segir að velta með
gjaldeyri hafi hins vegar verið
mjög mikil það sem af sé ári.
Nemi hún 6.170 milljörðum
króna, sem sé tæplega tvöföld sú
velta sem var á sama tímabili í
fyrra.
Gengi dollarans er nú 88,2 krón-
ur, evru 125,6 krónur og breska
pundsins 155,2 krónur. bó
Mikil veiking
krónunnar
Í gær gaf hollenski bankinn
Rabobank út skuldabréf í íslensk-
um krónum að nafnvirði 13
milljarða króna. Rabobank er,
samkvæmt Vegvísi Landsbank-
ans, stærsti útgefandi jöklabréfa
frá upphafi.
Bréfið er til eins árs og ber
10,25% fasta vexti. bó
Gefa enn út
jöklabréf
Atvinnuleysi mælist nú 6,1% í Bandaríkjunum og er þetta mesta at-
vinnuleysi þar í landi í fimm ár. Störfum fækkaði um 84 þúsund í
ágúst og þykir þetta merki um að efnahagslíf landsins sé í miklum
vanda.
Eru miklar lækkanir á hlutabréfavísitölum í Evrópu og Bandaríkj-
unum í gær m.a. raktar til þessara frétta. Dow Jones vísitalan banda-
ríska lækkaði um tæp 3% í gær og Nasdaq um 3,2%.
Eins og áður sagði mældist atvinnuleysi 6,1% í ágúst í Bandaríkjunum
samanborið við 5,7% í júlí. Þá er þetta áttundi mánuðurinn í röð þar
sem störfum fækkar þar í landi. Í júní fækkaði störfum um 100 þúsund
og í júlí um 60 þúsund. bó
Mesta atvinnuleysi í fimm ár
Erlendar hlutabréfavísitölur
héldu áfram að lækka í gær, en
miklar lækkanir urðu um allan
heim á fimmtudag. Í gær lækkaði
breska FTSE vísitalan um 2,26%,
þýska DAX um 2,42% og franska
CAC um 2,49%, en allar lækkuðu
þær um álíka mikið daginn áður.
Norræna OMX vísitalan lækkaði
um 4,15% í gær. bó
Miklar lækkanir