24 stundir - 06.09.2008, Blaðsíða 32
HELGARVIÐTAL„Ríkisstjórnin er ekki þess um-
komin leysa hvers manns vanda.
Hver er sjálfum sér næstur. Hafi
menn klúðrað málum, verða þeir
sjálfir að takast á við slíkt. Ráða-
menn geta hins vegar verið góð
fyrirmynd. Í núverandi umhverfi
er, að mínu mati, mikilvægt að
þeir tali einum rómi og séu sjálf-
um sér samkvæmir. Sendi út já-
kvæð skilaboð. Þannig er hægt að
gera stóra hluti. Sjálfum finnst
mér til dæmis stórkostlegt að sjá
hvernig silfursigur íslenska hand-
boltalandsliðsins á Ólympíuleik-
unum breytti hugarfari þjóðarinn-
ar,“ segir Jóhann Ingi Gunnarsson
sálfræðingur. Um langt skeið hefur
hann verið ein helsta stoðin í bak-
varðarsveit íslenska landsliðsins í
handbolta. Hann var formaður
landsliðsnefndar frá 2002 fram á
líðandi sumar og kom að þjálfun
íslensku ólympíufaranna með sál-
fræðiráðgjöf.
Að eiga hlutdeild í sigrinum
„Mín nálgun til liðsheildar,
hvort sem um er að ræða vinnu-
stað eða íþróttalið, er sú að ein af
grundvallarþörfum mannsins er
að fá að finna til sín. Ef maður er í
hóp en situr alltaf á varamanna-
bekknum þá finnst manni sem
maður eigi enga hlutdeild í sigr-
inum þegar hann næst. Sú tilfinn-
ing er skelfilega vond. Allir, meira
að segja litlir krakkar, taka út fyrir
að þurfa að verma tréverkið allan
tímann. Og þetta veit Guðmundur
Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari
sem ég segi að sé kominn í hóp
bestu þjálfara. Hann er vinnusam-
ur og afrekssinnaður. Fullþroska
þjálfari. Áttar sig á heildarmynd-
inni og því að maður skapar ekki
sterkt handboltalið með því einu
að velja saman menn, hóa þeim
saman á æfingar og reyna leik-
aðferðir. Það skiptir ekki síður
máli að undirbúningur sé mark-
viss og að þjálfarinn velji í liðið
eftir því hvaða og hvernig leik-
menn ná saman. Stundum borgar
sig að halda ákveðnum leikmönn-
um utan við hópinn ef þeir passa
ekki inn í liðið, þótt þeir séu
markaskorarar. Hér verður að hafa
marga þætti í huga og þar nefni ég
til dæmis val Guðmundar á mark-
mönnum landsliðsins, þeim
Björgvini Gústafssyni og Hreiðari
Leví Guðmundssyni sem ná frá-
bærlega vel saman.“
Hugarfarið smitandi
Jóhann Ingi segir mikilvægt að
menn komi til leiks með jákvæðu
Jóhann Ingi Gunnarsson um handboltann, sálfræðina,
fatlaða soninn og hin mörgu hlutverk nútímamannsins
Allir
þurfa
að finna
til sín
Eftir Sigurð Boga
Sævarsson a
Ég hef engan
áhuga á því að
vita hvort fólk
hefur hitt eða þetta af-
brigðið af kvíðaröskun.
Slíkt breytir litlu þegar
við höfum sjúkdómavætt
allt samfélagið.
32 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2008 24stundir
www.tskoli.is
Undirbúningsnámskeið
fyrir skemmtibátapróf
Smáskipanámskeið
Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl
réttindanám (pungapróf). Réttindin miðast því við skip 12 metrar og
styttri að skráningarlengd. Á námskeiðinu verða kennd siglingafræði
og samlíkir, siglingareglur og vélfræði, siglinga- og fiskileitartæki,
sjóhæfni, veðurfræði og öryggismál. Þeir sem ljúka smáskipaprófi
geta tekið verklegt próf og öðlast þar með einnig skemmtibáta-
réttindi á 24 metra skemmtibáta (ICC).
Tími: 22. sept. - 7. nóv. (105 kennslustundir). Verð: 105.000 kr.
Skráning á skrifstofu Tækniskólans í síma 514 9041.
Kjartan Örn, kennari hjá Skipstjórnarskólanum, veitir nánari
upplýsingar um námskeiðið í síma 895 1414.
Laugardaginn 4. október frá kl. 08:30 til kl. 18:00
Sunnudaginn 5. október frá kl. 08:30 til kl. 18:00
Miðvikudaginn 8. október frá kl. 18:00 til kl. 21:00
Fimmtudaginn 9. október frá kl. 18:00 til kl. 21:00
Verð: Námskeið með bóklegu prófi kostar 28.500 kr.
Skráning á skrifstofu Tækniskólans í síma 514 9041.
Kjartan Örn, kennari hjá Skipstjórnarskólanum, veitir nánari
upplýsingar um námskeiðið í síma 895 1414.
Handboltinn er hálft líf Jóhanns Inga Gunnarssonar
en hann er líka heildsali, sálfræðingur, eiginmaður og
faðir fatlaðs drengs. Hann segir mikilvægt að stjórn-
völd sendi þjóðinni jákvæð skilaboð.