Eintak - 24.03.1994, Síða 6
Vorið 1992 sendi Landlæknis-
embættið í samvinnu við Lands-
nefnd um alnæmisvarnir 1500 Is-
lendingum könnun á kynhegðun
og þekkingu á alnæmi. Tilgangur
könnunarinnar er meðal annars að
kortleggja kynhegðun íslendinga
svo auðveldara sé að meta í hvaða
farveg eigi að beina fræðslu um
sjúkdóminn og draga þannig úr lík-
um á HlV-smiti.
Af þeim 1500 sem fengu könnun-
ina svöruðu 975 manns og skiptust
svörin nokkuð jafnt á milli kynja,
er þetta viðamesta könnun sinnar
tegundar sem gerð hefúr verið hér á
landi.
50
8 ára |
9 ára
10 ára |
11 ára |
12 ára |
13 ára
14 ára
15 ára
16 ára
17 ára
18 ára
19 ára
20 ára
21 ára
22 ára
23 ára |
24 ára ■
25 ára |
26 ára |
27 ára |
Ekki enn i|
Hvenær fyrst
Meðal spurninga sem var lögð
fyrir þátttakendur var: Hvað varstu
gamall/gömul þegar þú hafðir fyrst
kynmök?
Ekki er greint á milli kynja í nið-
urstöðum könnunarinnar svo það
sem fer hér á eftir á við um konur
jafnt sem karla.
Könnunin sýnir að lang flestir ís-
lendinga hafa fyrst kynmök á aldr-
inum fimmtán til sautján ára, eða
rúm 58 prósent aðspurðra. Ein-
hverjir geta þó ekki beðið svo lengi
því tvö prósent þátttakenda í könn-
uninni höfðu fyrst kynmök þrettán
ára eða yngri. Einn þáttakandi sló
það fyrst?
150 200
öðrum hressilega við og prófaði
hitt fyrst átta ára gamall.
Þótt flestir hafi sofið fyrst hjá í
kringum sextán ára aldurinn eru
alltaf einhverjir sem eru lengur að
koma sér að verki. Níutíu og níu
prósent af þeim sem á annað borð
hafa sofið hjá, höfðu samt lokið því
af fyrir tuttugu og fimm ára aldur-
inn.
Fjögur prósent þátttakenda í
könnun landlæknis hafa hins vegar
ekki í eitt einasta skipti lagt stund á
kynlíf, að minnsta kosti ekki með
öðrum.
Fjöldi bólfélaga
Þar sem fjöldi rekkjunauta er tal-
inn einn af áhættuþáttum í út-
breiðslu HlV-smits, því fleiri sem
þeir eru því meiri Iíkur eru á að
lenda á einhverjum sem er smitað-
ur, er mikið lagt upp úr því í könn-
uninni að rannsaka hvað fólk sam-
rekki mörgum yfir ævina.
Sami spurningavagn var lagður
fyrir alla þátttakendur, bæði konur
og karla svo hægt sé að sjá hve
margir hafa einhverja reynslu af
báðum kynjum. En þar sem aðeins
3,6 prósent hafa einhvern tímann
sofið hjá sama kyni gefum við okk-
ur þegar spurt er: Fjöldi kvenna
sem þú hefur haft kynmök við á
ævinni? að þeir sem svari spurning-
unni séu allir karlmenn og reiknum
skorið út frá því. Þeir sem höfðu
verið við kvenmann kenndir um
ævinna voru 385, og skal bent á að
þetta eru karlmenn á öllum aldri
þannig að sumir eru rétt að byrja
sinn feril meðan aðrir eru hættir að
sofa hjá.
Það kemur óneitanlega nokkuð á
óvart að fjórtán prósent karla hafa
aðeins verið við eina konu kenndir
alla sína tíð. Það er spurning hvort
þetta séu karlar sem hafa fundið þá
einu réttu snemma á lífsleiðinni
eða hvort þetta séu karlar sem hafa
prófað þetta einu sinni og ekki
fundist það þess virði að reyna það
aftur. Fjörtíu prósent karla hafa
verið öllu iðnari við kolann um æv-
ina og sofið hjá tíu konum eða
fleiri. Þeir afkastamestu hafa hins
vegar haft mök við níutíu og sex
konur eða fleiri og teljast þessir
Casanóvar eitt prósent af hópnum.
Á það skal bent að frægum kvenna-
giljurum á borð við Bill Wyman
bassaleikara Rolling Stones fmnst
sjálfsagt ekki mikið til um þá sem
hafa rofið hundrað konu múrinn,
sjálfur segist Wyman hafa flekað yf-
ir tvöþúsund konur og er hann enn
þá að. Til samanburðar kemst ís-
lenskur meðal karlmaður yfir rúm-
lega sex konur um ævina.
Þegar kemur að spurningunni:
Fjöldi karla sem þú hefur haft mök
við á ævinni? förum við eins að og
hér að ofan og gefum okkur við út-
reikningana að svörin séu komin
frá konum. Þær sem höfðu verið
við karl kenndan voru 498 og um
þær gildir það sama og karlana,
sumar eru nýbyrjaðar að sofa hjá
meðan aðrar eru hættar.
Það staðfestist í könnun land-
læknis að íslenskar konur eru
dyggðugri en karlar, og munar þar
nokkru á.
Tuttugu og eitt prósent kvenna
höfðu sængað hjá einum karli um
ævina, hvorki fleiri né færri. Þær
sem hafa sofið hjá tíu eða fleirum
um sína tíð eru átján prósent af
hópnum. Eru þær rétt hálfdrætt-
ingar á þann karlafjölda sem söng-
konan Janis Joplin á að hafa sofið
hjá á einu kvöldi, en til er fræg saga
af söngkonunni sem segir að hún
hafi einhvern tímann afgreitt tutt-
længd súlnanna segir til um fjölda þeirra
svarenda, sem kváðust hafa glatað
skírleika sínum á viðkomandi aldri.
Hvenær gerðirðu
Fordómar / garð
lesbía og HlV-jákvæðra
Þegar þessi könnun er borin
saman við könnun sem landlæknir
stóð fyrir árið 1987 sést að fólk er al-
mennt orðið meðvitaðra um sjúk-
dóminn og þekkir betur smitleiðir
hans. Vanþekking er þó enn þá
nokkur og ekki laust við að örli á
fordómum í sumum svaranna.
Ein af þeim spurningum sem var
lögð fyrir þátttakendur var: Telur
þú miklar eða nokkrar líkur á að
eftirtaldir aðilar eigi á hættu að
smitast af HlV-veirunni?
Það sem vakti sérstaka athygli við
svörin við þessum lið er að sextán
prósent af þeim sem svöruðu, telja
miklar líkur á því að konur sem
hafi kynmök við konur smitist af
HlV-veirunni og 55 prósent telja
nokkrar líkur á smiti á þennan hátt.
Þessar niðurstöður sýna fram á
mikla fordóma gegn samkyn-
hneigðum konum því kynlíf lesbía
er sérstaklega hættulítið að þessu
leyti þar sem litlir möguleikar eru á
því að líkamsvessar nái að blandast
við ástaratlot þeirra. Þessir fordóm-
ar eiga ekki að koma mjög á óvart
því hræðsla við lesbíur er ekki ný af
nálinni, þær máttu til dæmis ekki
gefa blóð þar til fyrir skömmu.
Blóðbanki íslands fær reyndar
heldur slæma útreið í könnuninni
því fimmtán prósent þátttakenda
telja miklar líkur á að þeir sem fái
blóðgjöf smitist, og 64 prósent telja
nokkrar líkur á því. Þetta eru dálít-
ið skrýtnar niðurstöður í ljósi þess
að mjög fáir einstaklingar hafa
smitast við blóðgjöf á íslandi hing-
að til. Það má gera ráð fyrir að það
sem liti svör fólks hér séu fréttir af
blóðbankahneykslum erlendis.
Fordómar í garð HlV-smitaðra
koma ekki mjög áberandi fram í
niðurstöðum könnunarinnar. Ein-
hverjir skelfast þó HlV-veiruna svo
að þeir vilja helst hvergi koma ná-
lægt smituðum einstaklingi. Til
dæmis telja sextán prósent miklar
eða nokkrar Iíkur á því að þeir
smitist sem sækja veitingahús þar
sem HlV-jákvæður einstaklingur
vinnur, sama prósenta fæst þegar er
spurt um áhættuna á að vinna með
FlIV-jákvæðum, þrettán prósent
telja Iíkur á því að hætta vofi yfir
þeim sem nota almenningssalerni,
til dæmis á vinnustöðum, og þrjú
prósent telja nokkrar eða miklar
líkur á því að smitast af veirunni
við að heilsa HlV-smituðum ein-
staklingi með handabandi.
Sjötíu og eitt pró-
sent þeirra sem
svara könnun
landlæknis telur
miklar eða nokkrar
líkur á því að kona
sem hefur mök við
konu eigi á hættu
að smitast af HIV-
veirunni.
Hefurðu átt
munnmök?
ugu manna amer-
ískt fótboltalið í
einum rykk.
Þær konur sem
hafa sofið hjá 96
eða fleiri voru í
hverfandi minni-
hluta, eða 0,2
prósent af þeim
sem svöruðu.
Skorið hjá ís-
lenskri meðal-
konu er svo tæp-
lega fjórir karlar
um ævina.
Fólk er mis
nýjunga-
gjamt
Aðferðir við
kynmök eru af
ýmsu tagi og eru
taldar skipta tölu-
verðu máli í sam-
bandi við smit-
hættu. Það þykir
til dæmis ekki
gæfulegt að fá
sæði í munn eða í ■ 1 1
endaþarminn. Af þessum ástæðum
var spurt sérstaklega um munnmök
og mök í endaþarm í könnuninni.
Munnmök þykja greinilega ekki
sérstakt tiltökumál og svöruðu sex-
tíu og fimm prósent aðspurðra því
Hefurðu átt mök við
einhvern sem stundar
vændi? .
Nei
Hefurðu átt enda-
þarmsmök?
játandi að hafa
reynt þau. Var þá
spurt: Hefur þú
fengið sæði í
munn? Það höfðu
þrjátíu og tvö
prósent prófað.
Öllu færri þátt-
takenda hafa hins
vegar einhvern
tímann haft
endaþarmsmök
eða sextán pró-
sent, enda er um-
rætt líffæri ekki
gert til slíks
brúks.
Þá var reynsla
fólks af vændi
könnuð og spurt:
Hefur þú ein-
hvern tímann
haft kynmök við
einstakling sem
stundar vændi?
Niðurstöður
þessa liðs eru á þá
leið að sjö pró-
...... sent aðspurðra
hafa keypt sér blíðu. Langflestir
hafa orðið sér úti um þessa þjón-
ustu á ferðum sínum í útlöndum,
en sjö prósent hafa borgað fyrir
greiðann innanlands. ©
60
Svarendur voru spurðir hversu marga
einstaklinga af hvoru kyni þeir höfðu
átt mök við um ævina. Til vinstri sést
hversu margir svarendur höfðu átt
mök við karlmenn, efsta súlan sýnir
hversu margir höfðu aðeins átt mök
við einn, næsta súla hversu margir
höfðu átt mök við tvo karla og svo
ffamvegis. Hægra megin við ásinn sést
svo hversu margar konur svarendur
höfðu átt mök við um ævina. Að því
gefnu að þorri svarenda sé gagnkyn-
hneigður má þannig sjá að mun færri
karlar eða 53 hafa bundið trúss sitt við
eina konu heldur en þær konur, sem
haldið hafa tryggð við einn karl, en
þær reyndust vera 104.
6
FIMMTUDAGUR 24. MARS 1994