Eintak

Eksemplar

Eintak - 24.03.1994, Side 18

Eintak - 24.03.1994, Side 18
Andrés önd er sextugur. Afmælis hans er minnst um allan heim og menn hafa komist að því að hann er eini maðurinn sem eitthvað hefur að segja í dag. Þrátt fyrir að hann sé fæddur lúser og geti ekki að því gert. Og Jóakim frændi er líka sextugur. Hans minnast færri á þessum tímamótum. Og þó. Hjálmar Sveinsson heiðrar hér Andrés með kærleiksríkum orðum og segir jafnframt frá æsilegu glæpamáli í Þýskalandi þar sem aðal-glæponinn er ekki einn af Björnebanden heldur maður sem kynnir sig sem Jóakim frænda. Frá blauti barnsbeini er okkur innrætt að glæpir margborgi sig ekki. Foreldrar okkar þurfa ekki einu sinni að taka það fram og kennararnir ekki heldur. Það er nóg að opna Andrésblað. Björne- banden tapar, Jóakim frændi græð- ir. Þannig er náttúrulögmál kapítal- ismans, í Andabæ jafnt sem öðrum borgum og bæjum. Og Andrés? Hann tapar líka. En ekki vegna þess að hann sé fæddur glæpon, hann er fæddur lúser og getur ekki að því gert. GISP! Það er allt og sumt. Nei það er ekki allt og sumt. Andrés önd leit fyrst dagsins Ijós seint í mars 1934. Hann er sextugur. Til hamingju með daginn Andrés, okkur þykir öllum vænt um þig. F lyrir nokkrum árum var I nokkuð mörgum milljónum stolið í Noregi. Ræningjun- um hafði hugkvæmst að smíða ná- kvæma eftirlíkingu af næturhólfi eins og er við innganginn á sumum bönkum. HAR-HAR- HAR. Þessi hólf eru fyrst og fremst fyrir versl- unareigendur sem koma á föstu- dagskvöldum, eftir að bankinn hef- ur lokað, með alla veltuna og setja hana í hólf. Þeir þora ekki annað því þeir eru hræddir við ræningja. Svo komu þeir einu sinni með alla peningana og þá var búið að Iíma yfir opið á hólfmu og setja þar miða. ÞVÍMIÐUR ER NÆTURHÓLF- IÐ BILAÐ, NOTIÐ HÓLFIÐ VIÐ endaði í bankanum hjá Jóakim. Gullið leitar ætíð þangað sem gull er fyrir. Nokkrum árum síðar gerðist það í raun og veru að A gullskip fannst á hafsbotni í Æ Mexíkóflóa og borðtennis boltaaðferðin notuð til að ná því upp. Að sjálfsögðu kærði Walt Disney Company því hugmynd- in var augljóslega stolin. Ég veit ekki alveg hvernig málið fór en ég gæti best trúað að þetta gull hafi líka lent í bankanum hjá Jóakim. Það er að minnsta kosti alveg áreiðanlegt að þú fékkst ekki krónu, Andrés Önd. HULK! m nd erk ur Við hötam sóað 20 árum í að stela hænum og svinum meðan Aðalörtd var að safna í fjársjóð hartda okkur! Við hefðum átt að hafda okkur við þíg, Jóki minn! HLIÐINA. Þetta var gert og ræningj- arnir komu um nóttina, opnuðu hólfið sitt og hirtu peninginn. Þeir náðust einhverjum mánuðum síð- ar, voru búnir með allan peninginn en sögðust hafa fengið hugmynd- ina úr Andrésblaði. Ef grannt er skoðað eru Andrés- blöðin stútfull af snjöllum hug- myndum. Einu sinni varst þú að kafa við Suðurhafseyjar, Andrés, og fannst skipsflak innan um kóralrif- in, fullt af gulli. Hvernig var nú mögulegt að ná flakinu upp? Rip, Rap og Rup voru auðvitað með í leiðangrinum og datt í hug að fylla skrokk skipsins með borðtennis- boltum. Og viti menn, skipið flaut upp. En það þarf varla að taka fram að gullið 8) ndrés minn góð- ur, sextíu ár er afar ár aldur fyrir önd en þú berð aldurinn vel. Þú hefur ekkert breyst frá því ég kynntist þér íyrir fjölda mörgum árum. Það var austur í hreppun og þú talaðir dönsku. Lýður hreppstjóri hafði þann sið að leggja sig alltaf á mjóan bedda inn í borð- stofu eftir hádegismatinn. Ég lagð- ist fyrir ofan hann og yngri bróðir minn fyrir framan hann. Og hófst nú lesturinn. Lýður var ágætur bóndi, mikill stærðfræðingur, sterkur skákmaður og átti auðvelt með að lesa dönsku. Hann Ias í huganum og þýddi jafnóðum yfir á íslensku. Ég held að honum hafi fundist lítið koma til þín, Andrés, en hann hafði lúmskt gam- an af Jóakim frænda. „Hann er svo klókur að græða,“ sagði Lýður og hló með því að anda ótt og títt í gegnum nef- ið. Þess háttar hlátur er algengur í uppsveitum Árnessýslu. Þegar ég varð tíu ára ákvað ég að fara í einkatíma í dönsku til að geta lesið Andrés sjálfur en gafst upp eftir þrjá tíma. En Andabær er og verður danskur bær í mínum aug- um og eyrum. Hvað heitir eiginlega Björnebanden á íslensku? Eg hef ekki hugmynd um það, ég veit bara að þeir eru með númer framan á sér með tölunum 1, 6, og 7 sem eru tvíteknar með bandstriki á milli, Dæmi: 176- 617. Ef mér bregst ekki reiknilistin þá eru að minnsta kosti 30 möguleikar á að setja tölurnar saman án þess að end- urtaka sama númer- ið. Ergó: I Björne- banden gætu verið 30 eða fleiri og eins gott að passa sig. I tilefni sextugsaf- mælisins hafa verið birtar greinar um þig, Andrés, hér og þar í Evrópu og allir fara um þig lofsorði. Enda er ekki hægt annað en dást að þér, Andrés, að fjölhæfni þinni og þraut- seigju. Ég man eftir þér sem skurð gröfubílstjóra, flugstjóra og skip- stjóra og stýrðir þú ekki einhvern tímann geimfari þínu heilu og höldnu í gegnum sólkerfm? Þú hef- ur starfað sem blaðamaður, söngv- ari, dáleiðandi, kompónisti, rann- sóknarmaður, brunaliðsmaður, leikari og þannig mætti lengi telja. Gott ef þú lékst ekki sjálfan Mac- beth einhvern tíma þó ég sjái þig raunar fremur fyrir mér sem Jón Hreggviðsson. Austurríska ljóðaskáldið H.C. Artmann skrifar um þig: „Andrés er eini maðurinn í dag sem eitthvað hefur að segja.“ En sitt er hvað, gæfa og gjörvileiki. Þú hefur aldrei verið klókur að græða og þó veitti þér ekki af aurunum því þú hefur fyrir þremur hálfstálpuðum ung- lingum að sjá. STÖN! Stundum áttu ekki fyrir salti í grautinn og verður þá að leita á náðir Jóakims frænda sem greiðir þér lúsarlaun fyrir að fægja myntina hans. Og eitt hef ég aldrei skilið, Andr- és, en það er samband þitt við Andrésínu. Það má vera að hún sé kynþokkafyllsta konan í Andabæ en hún er neysluóður smáborgari með andlitssnyrtingu á perunni og er þar fyrir utan hysterísk, ofbeldis- sinnuð og afar óréttlát. Og úr því ég er kominn út í þessa sálma þá hefur það alltafverið mér ráðgáta hvernig þið I Andabæ íjölgið ykkur. Ég hef til dæmis tekið eftir því að „foreldr- ar“ og „börn“ eru varla til, heldur er þetta frænda-og-frænku-samfé- lag. Og svo er annað sem ekki fer fram hjá nokkrum manni, Andrés: þú gengur alltaf um nakinn að neð- an og hylur aðeins neðannekt þína þegar þú ferð í sund. Þetta háttalag hefur leitt af sér alls kyns getgátur, til dæmis þá að þið Andrésína hafið bara samfarir í vatni og að þú farir aðeins í sundskýluna til að dylja reistan liminn á meðan þú kjagar spöl- inn frá o b ú n - ingsklefanum út í vatnið. Ég veit það ekki, Andrés, satt best að segja hallast ég að því að þér Iáti riddaraleg ást best en hún er þannig í framkvæmd að riddarinn yrkir mansöngva og syngur fyrir þá heittelskuðu. Þetta heitir líka að vera ástfanginn af ástinni og er ástand sem leiðir sjaldan til sam- fara, hvað þá barna. En það er eitt- hvað annað sem ég ætlaði að tala um. Ég byrjaði á þessari grein til að tala um glæpi og ætla nú að taka þráðinn upp affur. Ég ætla að ganga skipulega til verks og telja allt upp sem skiptir máli, í réttri tímaröð auðvitað: 13. júní 1992 Klukkan 1 eftir miðnætti spring- ur sprengja í Karstadt-kauphúsi í Hamborg, nánar tiltekið í postu- línsdeildinni. Skaðinn metinn á milljónir. Daginn eftir fá eigendur kauphússins bréf frá sprengju- manninum og hann lofar að sprengja ekki aftur ef hann fær eina milljón marka (42 milljónir ísl. kr.). Féð á að afhenda daginn sem eftir- farandi texti birtist í smáauglýs- ingadálki ákveðins dagblaðs í Ham- borg: JÓAKIM FRÆNDI BIÐUR AÐ HEILSA FRÆNDUM SÍNUM. 15. júní 1992 Eftir að hafa fengið nákvæmar leiðbeiningar finna sendiboðar frá Karstadt kassa festan við kílómetra- skilti á Bundesstrasse 105 og í hon- um er ljósrauður poki. Á pokanum er mynd af Jóakim frænda (hinum ekta) og undir henni stendur „Duck Tales“. En í kassanum er líka græja með rafeindaútbúnaði og segulstáli. Og bréf þar sem stendur að peningasendillinn eigi að taka sér far með lestinni Berlin-Rostock kl. 12:15. Hann á að festa pokann með peningunum á aftasta lestar- vaginn með segulstálinu og bíða átekta. Kl.22:30 sendir „Jóakim frændi“ rafbylgjur sem eiga h. að gera segulstálið óvirkt þann- SÉk. ig að pokinn detti. En pokinn dettur ekki, segir lögreglan. 1; 14. ágúst 1992 Sömu aðferð beitt og nú dettur pokinn. Lögreglumennirnir í lestinni taka í neyð- arbremsuna en ■ „Jóakim frændi“ & sleppur með pok- | ann, sem reynist síðar vera fullur af pappírssnepl- um. 9. sept. 1992 --nr,, „ J ó a k i m ■ frændi" hefnir sín, sprenging í lHf Karstadt í Bremen 0 og nokkrum dög- » um síðar í Hanno- ver. 29. okt. 1992 Tilraun til að afhenda féð í Berlín. Sama aðferð. Pokinn dettur, „Jóakim frændi“ reynir að ná honum en tekst ekki. Tveir lögreglu- menn sjá hann og hlaupa á eftir honum. „Jóakim frændi“ stígur á reiðhjól. Annar lögreglumaðurinn nær í öxlina á honum en rennur í hundaskít. „Jóakim frændi“ kemst undan. 19. apríl 1993 I þetta sinn á að leggja féð á ákveðnum tíma í ákveðna trékistu. Svona trékistu með sandi til að strá á ísilagðar gangstéttar. Kistan er á ákveðnu bílastæði í Berlín. Þetta er gert og um fimmtíu lögreglumenn bíða í felum. En það gerist ekkert. Eftir tveggja stunda bið er kistan opnuð og þá kemur í ljós að pokinn er horfinn og allur sandurinn. HAR-HAR- HAR! Kistan var með fölskum botni og henni var komið fyrir ofan á hoIræsishlemmi.“Jóa- kim frændi“ var ofan í holræsinu, opnaði hlemminn og hirti pokann. En hann var fullur af pappírssnepl- um. 19. maí 1993 Sprengjutilræði í raftækjadeild- inni í Karstadt í Bielefeld. 24. jan. 1994 \f , Enn ein 'í — \ snúrur sem hafa verið strengdar yf- ir teinana. Vagninn hverfur en er á of mikilli ferð, hann þeytist út af sporinu aðeins 30 metrum frá staðnum sem „Jóakim frændi“ bíð- ur. „Jóakim frændi" tekur enga áhættu, hann lætur vagninn liggja og flýr. Mver er.hann eiginlega þessi „Jóakim frændi"? Spurning- in brennur á allra vörum um þessar mundir í Þýskalandi. Sumir halda að hann sé lögreglu- maður, aðrir segja að hann sé fyrr- verandi Stasi-maður og enn aðrir að hann sé óhamingjusamur menntamaður. Eitt eru þó allir sammála um, „Jóakim frændi" er afar snjall og afar varkár, hann nýt- ur þess að leika á lögregluna og hann þekkir Andrésblöðin út í gegn. Én hann er ekki búinn að hafa neitt upp úr krafsinu ennþá, aðeins útgjöld. Reyndar telur lögreglan að „Jóa- kim frændi" sé sami maðurinn og þvingaði hálfa milljón marka út úr Karstadt fyrir 6 árum og að hann vanti nú meiri pening. Og það er talið fullvíst að hann sé Berlínarbúi. I borginni er starfandi 15 manna sérsveit rannsóknarlögreglumanna, „Jóakimsveitin", og sagt er að hún kembi Andrésblöðin, hvert einasta eintak frá 1934 til dagsins í dag, til að reyna að sjá næsta leik „Jóakims frænda" fýrir. Það er búið að setja 100.000 mörk til höfuðs honum. Derrick var kallaður til í síðustu viku „Sie sind Verhaftet! Wo ist Harry?“ meira hafði hann ekki um málið að segja. Ég held hann hafi ekki gert sér grein fyrir að þetta var ekkert sjónvarpsleikrit. Þetta er afar flókið mál og alvarlegt. Ástandið í borginni er að verða hýsterískt. Sjálfum fannst mér um daginn í eitt augnablik að ég og enginn annar væri „Jóakim frændi“. Ég var á gangi eitt kvöldið í hverfinu mínu og var kannski dálítið rauður í framan þó ekki væri kalt úti. Og þá mætti ég tveimur konum sem horfðu svo fast á mig og rannsak- andi og fóru eitthvað að hvískra saman. O Á tilteknum stað við til- tekna járn- brautarteina í Berlín finnst trékassi. í kassan- um er fjarstýranleg ur vagn smíðaður úr járni. Það eru hjól undir honum og hann passar akkúrat á annan járbrauta- teininn. I vagninum rúmast nákvæmlega 1,5 millj- ónir marka og þau eru sett í hann. Kröfurnar hafa hækkað vegna aukakostnaðar. Síðan er ýtt á rauðan takka, allt fer eftir fyrirmælum „Jóakims frænda". Það er kolniðamyrkur, vagninn þýtur af stað á 50 kílómetra hraða og 150 lögreglumenn á eftir. Þeir detta um 18 FIMMTUDAGUR 24. MARS 1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.