Eintak - 24.03.1994, Síða 31
„Við erum alltof graðir í að spila til að bíða eftir því að hlutirnir
gerist af sjálfu sér. Þess vegna ætlum við að láta þá gerast með góðu
eða illu,“ það er Finni, öðru nafiii Rokkfinnur, söngvari Quick
Satid Jesus sem hefur uppi þessi stóru orð. Hvernig þeir félagar ætla
að fara að þessu er einfalt segir hann, það á að spila, spila og aftur
spila eins oft og eins víða og mögulegt er. í sumar ætlar hljómsveit-
in að vera í slagtogi með einhverri af stóru hljómsveitunum og túra
um landið sem upphitunarsveit og láta þannig sem flesta heyra í
sér.
Þeir eiga lagið Suicide á safnplötunni Heyrðu 3 sem
kemur út í kringum páskana og einnig er frágengið að
annað lag með sveitinni verði á safnplötu sem kemur út
í sumar. Drengirnir hyggja á stærri afrek en útgáfu á
einu og einu lagi og eru ákveðnir í að koma út breið-
skífu fyrir jól hvort sem það verður í samvinnu við
einhvern útgefanda eða á eigin vegum.
Auk þess sem Quick Sand spilar frumsamið efhi
hefur sveitin lög á efnisskránni ættuð frá Red Hot
Chili Peppers, Led Zeppelin, Rage Against the Mac-
hine, White Zombie og fleiri traustum rokksveitum
nýjum sem eldri. Þetta gefur ágæta hugmynd um
hverjir eru áhrifavaldar hljómsveitarinnar en Finni
undirstrikar að það sem skiptir mestu máli er að lag-
ið sé gott, ekki hver eða hverjir hafi flutt það. Bendir
hann á að hljómsveitin sé allt eins vís til að taka lag
eftir Whitney Houston á sinn máta ef þeir fíla
það.
Finni lofar miklum látum og hamagangi á Hressó í
kvöld og segir að sveitin leggi mikið uppúr líflegri
* sviðsframkomu. Áður en Ouick Sand Jesus stígur á svið
munu hljómsveitirnar Viridian Green og Bone
China hita upp í gestum.
Finni vill koma ákveðnum skilaboðum á framfæri til vænt-
anlegra gesta: „Ef fólk filar okkur ekki, þá hefúr það ekkert er-
indi við okkur og frábiðjum við okkur hvers kyns baktal og
róg. Okkar kjörorð eru: „If you don’t like us, fuck off.“ G
Quick Sand Jesus
Glaðbeittir hljómsveitameðlimir faðmast ídyrum Hressó þar
sem þeir ætla að spila íkvöld.
Ouick Sand Jesus er sveit
sem ætlar að láta mikið á
sér bera í næstu framtíð.
Ekkert hræddur við sögu hússins
Kiddi bigfoot opnar nýjan skemmtistað í húsnæði þar sem fimm
slíkir hafa farið á höfuðið.
„Ég legg lífið undir, það þýðir ekkert að vera með neitt hálfkák, það er
bara allt eða ekkert," segir Kiddi bigfoot sem í kvöld opnar nýjan
skemmtistað, sem hefur fengið nafnið Déja-vu, á horni Þingholtsstrætis og
Bankastrætis þar sem áður voru skemmtistaðirnir Borgarvirkið, Zansibar,
Cancun, Kolagrillið og Komplex. Það liggur beinast við að spyrja Kidda
hvort hann sé ekkert smeykur við að opna stað í húsi þar sem svona marg-
ir aðrir staðir hafa áður „floppað“?
„Alls ekki. Það er ekkert að þessu húsi, það er bara ekki nóg að skipta um
nafn og mála einn vegg og telja fólki trú um að þá sé kominn nýr staður.
Þannig var það með alla þessa staði sem voru hérna á undan því það var
sáralitlu breytt frá því Borgarvirkið opnaði hér fyrst. Núna er ég aftur á
móti búinn að láta rífa út allar kántrýinnréttingarnar og umturna staðnum
fyrir fullt af peningum."
Kiddi hefur verið viðloðandi skemmtistaðabransann í fjórtán ár og þá
lengst af sem plötusnúður. Hann hefur líka snert á ýmsu öðru í sambandi
við veitingarekstur því hann hefur að eigin sögn verið allt frá klósettvörður
upp í framkvæmdastjóra með viðkomu í dyravörslu og uppvaski. Öll þessi
ár hefur Kiddi verið að vinna fyrir aðra og það er núna fyrst með Déja-vu
sem hann ætlar að taka það stóra skref að vera sjálfur leyfishafi og veitinga-
maður. „Ég er búinn að horfa nógu lengi á aðra græða á minni vinnu, nú er
komið að mér sjálfum," segir Kiddi og hann bætir við, „ég vil líka ráða
hlutunum sjálfur en ekki þurfa að leggja allar hugmyndir sem ég fæ fyrir
einhverja aðra.“ Kiddi stendur þó ekki alveg aleinn að staðnum því félag-
arnir fjórir sem komu Pizza 67 á legg standa með honum í þessu.
En hvernig stemmningu ætlar Kiddi að skapa á staðnum?
„Það er kannski best að líkja henni við það ef Casablanca, Glaumbar,
Café Romance og Ingólfscafé væru settir í kokteilhristara og hristir saman
þá kæmi Déja-vu út. Það verður róleg stemmning fram eftir kvöldi en þeg-
ar líður á nóttina mun hitna hressilega í kolunum."
Déja-vu verður ekki aðeins skemmtistaður því þar mun fljótlega verða
boðið upp á veglegan matseðil og segir Kiddi að stefnan sé að hafa þetta
fína rétti, ekki skyndibita, en jafnframt mun verðinu vera stillt í hóf.
Aldurstakmark verður tuttugu og tvö ár inn á staðinn sem verður opinn
sjö daga vikunnar. Það verður frítt inn öll kvöld nema eftir miðnætti á
föstudags- og laugardagskvöldum, þá mun kosta þrjúhundruð krónur inn.
danarsonar. Þar segir frá undirbúningi herfarar
Grikkja til Tróju og lórn Agamemnons leiðtoga
þeirra á dóttur sinni Íffgeníu. Agamemnon leikur
Sigurður Karlsson. Konu hans Klítemnestru
leikur aftur á móti Margrét Helga Jóhannsdóttir.
Blðð og drulla heitir sýning leiklélags
Menntaskólans við Hamrahlíð sem sýnd er kl.
20:00 f hátíðarsalnum. Þetta félag hafði einu
sinni Pál Óskar innanborðs svo það er þess
virði að fylgjast með hóþnum. Maður veit aldrei
hvað félagið getur alið af sér næst.
Dónalega dúkkan sýnd i sföasta sinn kl.
20:30 í Héðinshúsinu. Jóhanna Jónas fer létt
með öll hlutverk. Hún var einu sinni með ung-
lingaþátt f Ríkissjónvarpinu sem hófst þannig
að hún sagði sjónvarpsáhorfendum að það væri
eitthvað skelfilega dularfullt að gerast [ ein-
hverju geymsluhúsnæði ofan í bæ. Þegar þang-
að var komiö voru það bara Sykurmolarnir að
leika „Cold Sweaf og ekkert dularfullir.
Eva Luna kl. 20:00 á Stóra sviði Borgarleik-
hússins. Mikið grín, mikið gaman, mikill Egill
Ólafsson.
Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson
FIMMTUDAGUR 24. MARS 1994
er sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 14:00.
Nú er búið að gefa út geisladisk og snældu með
tónlistinni úr sýningunni.
Blóðbrullaup eftir Lorca á Smíöaverkstæði
Þjóðleikhússins kl. 20:30. Hnílabardaginn er
bara með þlathnífum sem beyglast ef einhver
áhorfenda á fremsta bekk hnerrar.
Vörulyftan sýnd af Islenska leikhúsinu kl.
20:00 í Hinu húsinu sem eitt sinn var Þórscafé.
Þórarinn Eyfjörð bregður sér úr gervi þabbans
óþolandi f Cheerios-auglýsingunni og skellir
sér í gervi Bens.
D A N S
Islenski dansflokkurinn á Stóra sviði Þjóð-
leikhússins kl. 20:00. Þetta er síðasta sýningin.
Flokkurinn hefur fengið fallega dóma enda tiðk-
ast þar fált annað en vönduð vinnubrögð.
í Þ R Ó T T I R
Körfubolti
Úrslitakepþni úrvalsdeildarinnar heldur álram
og nú er komið aö öðrum leik (A og Grindavik.
Leikurinn fer fram upp á Skaga og hefst klukkan
20.30.
Blak Stúlkurnar í Sindra Ijúka erfiðri helgi með
leik við Þrótt Neskaupstað, hefst leikurinn
klukkan 14.00 og er á heimavelli fyrrnefnda
liðsins.
SJÓNVARP
RIKISSJONVARP 09.00 Morgunsjónvarp
barnanna 10.50 ísland og EES Veisla fyrir
sagnlræðinga. 11.15 Hið óþekkta Rússland
Seinasti þáttur afþremur um mannlít á Kóta-
skaga, endursýning. 12.30 Fólkið í landinu
Tommi íHart Rokk Kalfi, endursýning 13.00
Ljósbrot Þartur þáttur þar sem Dagsljósþættir
vikunnar eru riljaðir upp. 13.45 Síðdegisumr-
æöan 15.00 Jói og sjóræningjarnir Sænskljöl-
skyldumynd 16.30 Appelsínur 17.50 Tákn-
málsfréttir 10.00 Stundin okkar 18.30 SPK
18.55 Fréttaskeyti 19.00 Boltabullur 19.30
Fréttakrónikan 20.00 Fréttir 20.35 Veður
20.40 Kynning á páskadagskránni 20.55
Draumalandið Fjölskylda ákveður að þreyta um
liísstíl og halda á vit ævintýranna 21.45 Frá
kúgun til frelsis Þáttur um ungversku llótta-
mennina sem komu hingað 195622.25
Kontrapunktur Finnlandog Islandkeppa
STÖÐ TVÖ 09.00 Barnaefni 12.00 Á slaginu
Sluttar Iréttir og að þeim loknum bein útsending
Irá umræðuþætti um mále/ni liðinnar viku.
13.00 NBA körfuboltinn 13.55 ítalski boltinn
15.50 Nissan-deildin 16.10 Keila 16.20 Golf-
skóli Samvinnuferða-Landsýnar Gollkennarinn
Arnar Már Ólafsson leiðbeinir byrjendum og
tengra komnum. 16.35 Imbakassinn endurtek-
inn. Finnsl einhverjum hann lyndinn? 17.00
Húsið á sléttunni YndislegirþættirlBM I
sviðljósinu 18.45 Mörk dagsins f ítölsku knatt-
spyrnunni Karlaþáttur sem bara er hafður á
þessum tíma svo þeir geti þóst ekki geta undir-
búið kvöldmatinn 19.1919.19 20.00 Hercule
Poirot Nýr myndaflokkur um spæjarann víð-
fræga. 21.00 Sporðaköst 21.35 Morð (húmi
nætur Áströlsk spennumynd I tveimur hlutum.
23.10 60 mínútur 00.00 Ástfðufullur leikur
Mynd um ástarsamband ungs manns og etdri
konu 01.30 Dagskrárlok
SÝN 17.00Hafnfirsk sjónvarpssyrpa 11.17.30
Dægurlagatónlist f Hafnarfirði. 18.00 Ferða-
handbókin
M Y N D L I S T
Árleg sýning Félags íslenskra teiknara
stendur nú yfir f Ráðhúsinu en félagið er 40
ára. Á milli 30 og 40 veggspjöld eru á sýning-
unni og stendur hún til fimmtudags.
Þórunn Eiríksdóttir sýnir emeleraöar myndir,
vatnslitamyndir og pliumyndir í Listhúsi i
Laugadal. Hugmyndirnar koma héöan og þaðan
og ekki er náttúran langt undan.
Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson sýnir
litljósritaða minnismiða á Mokka en miðana
rakst hann á f biblíu Stefaníu Georgsdóttur.
Ása Hauksdóttir opnar sýningu í Galterí 11 á
Skólavörðustíg á laugardaginn. Ása sækir inn-
blásturinn í íslenska byggingarlist.
Karin Sander er með sýningu í sýningarsaln-
um Önnur hæð að Laugavegi 37. Karin sýnir
meðal annars verk sem unnin eru á þann hátt að
veggir sýningarsalarins eru spegillægðir.
Reykjavíkurmyndir úr eigu Listasatns
Reyk javíku rborgar eru til sýnis f Geysishúsinu
við Vesturgötu. Þar eru 30 verk þar sem Reykja-
víkurborg er yrkisefnið.
Sigríður Kristinsdóttir hefur opnað sína
fyrstu einkasýningu og sýnir nú textíl-verk f
Gallerí Úmbru viö Amtmannsstfg. Myndirnar
eru unnar meö blandaðri tækni á tau.
Guðni Harðarson hefur opnað sýninguna
„Þegar öllu er á botninn hvolft" f Gallerí Borg.
Umhvertismálin viröast vera honum alar hug-
leikin.
Anna Gunnlaugsdóttir sýnir verk sín f Lista-
safni ASÍ. Braga Asgeirs fannst sýningin bera
vott um meiri átök hjá Önnu en fyrr. Myndirnar
eru víst Ifka betur málaðar en áður. Sýningin
stendur til sunnudags. Verkin eru unnin á mas-
hónít með akrýl og sandi.
Hugmynd-Höggmynd heitir sýning i Lista-
satni Sigurjóns Olafssonar. Þar er úrval verka
frá ólíkum tfmabilum í list Sigurjóns. Boðið eru
upp á leiðsögn kl. 15:00 á sunnudögum.
Sigríður Ólafsdóttir opnar sýningu á laugar-
daginn (Gallerf Greip. Þar sýnir hún útsaum,
málverk og lágmyndir. Sigrfður hefur áður sýnt f
Djúpinu og á ýmsum kaffihúsum. Þetta er sið-
asta sýning f röð sýninga sem Listkafararnir
hafa staðið fyrir í gallerfinu.
Listsýning verður opnuð að Strandgötu 39 í
Hafnarfirði sem sagt er eina sérhæfða Ijós-
myndagalleríið á (slandi. Þar verða til sýnis
Ijósmyndir eltir Lárus Karl Ingason, Leif
31