Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 07.07.1994, Qupperneq 2

Eintak - 07.07.1994, Qupperneq 2
LOF LAST PAÐ VÆRI TILQANQSLAUST... STELLINQ VIKUNNAR © Ólafur Jó mátti tengjast hagsmunum en Eggert ekki © Enn nýaldarmót á Snœfellsnesi © Afmœli Hressó endaði ífjöri með Páli Óskari, Ijóðum semfuku út í loftið og loks lœstum dyrum lenska útvarpsfélagsins hefur vakið feikna at- hygli undanfarna daga. [ Ijósi þessa atburða er skemmtilegt að rifja það upp að fyrrum frétta- stjóra stöðvarinnar, Ing- va Hrafni Jónssyni þótti það ekki tiltöku- mál, þótt Ólafur Jó- rottvísun Egg- ERTS SKÚLA- sonar af fréttastofu Stöðvar 2 vegna setunnar í stjórn ís- hannsson, sem nú er í fríi frá frétt- um, væri ritstjóri fréttabréfs LÍÚ. Ingva þótti þetta hið besta mál, en hætt er við að Elín Hirst hefði aðra skoðun á ritstjórastöðu Ólafs. Það er annars af Ingva Hrafni að frétta að hann gegnir nú ritstjórastöðu hjá tímaritinu Veiðimann- * inum, sem gefið er út af Fróða hf... m næstu helgi mun nýaldarfólk þyrpast vestur á Snæfells- Wfm ■ nes til að taka þátt i áttunda Snæ- fellsásmótinu, sem haldið verður að Brekkubæ á Hellnum. Gestir geta byrjað daginn á hugleiðslu og léttri morgunleikfimi og á staðinn mæta innlendir og erlendir fyrirlesarar á borð við heilarann Ken „Bear Hawk“ Cohen, sem er víst virtur heilari í Bandaríkjunum. Þórhallur Guðmundsson miðill af klassísku gerðinni mætir einnig á staðinni og Hallgrímur Magnússon læknir, en hann hefur vakið athygli fyrir óhefð- bundar lækningaaðferðir sínar, sem starfsbræður hans sumir eru lítið hrifnir af... Loksins, loksins! I fyrsta skipti birtist nú stelling vikunnar fyrir tvo, en að undanförnu hafa margir iesenda blaðsins haft sam- band við umsjónarmann dálksins og óskað eftir tveggja manna stellingu. í stellingu þessarar viku felst fullkomið léttlyndi og áhyggjuleysi. Þetta er stelling, sem Neró og frilla dagsins hefðu verið fullsæmd af, meðan Róm brann. Þetta er stelling, sem Ad- olf og Eva hefðu átt að grípa til í apríllok 1945. Og þetta er stell- ing, sem Saddam og frú hefðu haft gott af i sama mund og Bagdad var sprengd í tætlur. En venjulegt fólk getur notað hana Ifka og þó svo smóking og samkvæmiskjóll sé heppilegasti bún- ingurinn, er klæðaburðurinn ekki forsenda stellingarinnar. Þetta er stelling, sem skal nota þegar allt er glatað og ekki annað hægt að gera i stöðunni en að gleyma áhyggjunum og njóta líð- andi stundar meðan hægt er. ...fær Harald- ur Haralds- son i Andra. Honum tókst ekki að fjár- festa í SR- mjöli eins og frægt er orð- ið. Varhonum neitað að kaupa SR-mjöl á þeim for- sendum að hann ætti ekki peninga. Þessu mótmælti hann harðlega en enginn tók mark á honum. Nú ætlar hann hins vegar að kaupa þúsund tonna bræðslu til Stöðvarfjarðar ásamt Stöðv- arfjarðarhreppnum. Þessi bræðsla verður í beinni sam- keppni við SR-mjöl. Þetta kallar maður að gefast ekki upp. Ef honum tekst þetta hefur hann sýnt heiminum og Þorsteini Pálssyni að hann hafði á réttu að standa. Annars fær hann prik fyrir viðleitni. ...færElín Hirst fyrir frammistöðu sína i vikunni. Hún fær ekki lastiðfyrir að reka Eggert Skúlason. Hún er frétta- stjóri og má reka hvern sem er fyrir það eitt að vera með lélegan smekk á slipsum. En hún fær last fyrir að reyna að bera það á borð fyrir fólk að hún hafi alls, alls engum þrýstingi verið beitt til þess að sparka í Eggert eða sparka Eggerti. Fyrst og fremst fær hún þó last fyrir yfirlýsingar sínar um hvert hún sækti umboð sitt til fréttastýringar. Þrátt fyrir að Elin sé augljóslega á launa- skrá hjá islenska útvarpsfé- laginu kvaðst hún ekki vera á mála hjá neinum. Og tók það sérstaklega fram að hún væri heldur ekki á mála hjá neinu stjórnmálaafli, eins og samúð hennar með Sjálfstæðis- flokknum hafi farið fram hjá einhverjum. En svo klykkti hún út með að segjast aðeins rækja skyldur sínar við þjóð- ina og hún væri aðeins ábyrg gagnvart henni, svona eins og vinnuveitendum hennar kæmi hún ekkert við. Það er ægilegt þegar fólk ofmetnast og fer að tala svona. Áður en maður veit af erþað komið í forsetaframboð. Og slíkt ber að lasta. • y- Fólk hafði verið fengið utan úr bæ til að sjá um skipulagningu á dagskrá að tilefni sextugsafmælis Hressó sem standa átti yfir einmitt núna þegar staðnum hefur verið lokað. Aftur á móti kom upp ósætti milli Sigurðar Ólasonar og skipu- leggjendanna. Einn þeirra var þegar hættur og farinn og annar var farinn að velta því alvarlega fyrir sér þegar fréttir bárust af lokuninni. Aðsókn hafði verið af- skaplega mis- jöfn af þeim skemmtiatrið- um sem boðið var upp á. Páll Oskar og milljóna- mæringarnir höfðu vakið lukku á föstu- dagskvöldið en til dæmis var Ijóða- upplesturinn á laugardaginn fremur misheppnaður þar eð þeir einu sem virtust gefa honum gaum voru er- lendirferðamenn... „Nei, ég er ekki að því. Fjörkálfar á ferð um landið eru ekkert tengdir Sumargleðinni. Við erum ekki að herja á ballmarkaðinn. Þeir Hemmi og Ómar hafa lengi átt sér þann draum að fara um landið með barna- og fjölskylduskemmtun. Ég er eingöngu framkvæmdastjóri og bílstjórí. Ég tek reyndar líka aðeins í bassann sem ég hef varla gert í 24 ár.“ Hvað ætlið þið að bjóða upp á á skemmtuninni? Bíla- atta: Vltl „Söngvarakeppni æskunnar er stór hluti af henni en hún er i boði fyrir þá sem eru fæddir 1980 og sfðar. Ég hef hugsað mér að gefa út geisladisk með þeim sem vinna á hverjum stað. Allir sigurvegarar fá ferð til Reykjavíkur í verðlaun en þar verður úrslitakeppnin haldin. Vinn- ingshafinn fær si/o ferð til Kaup- mannahafnar fyrir alla fjölskylduna og gildir þá einu hvort hún er tíu manna eða ekki. Svo verður einnig haldin Hmbó-keppni á hverjum stað og Islandsmeistarinn I limból valinn að lokum. “ Afhverju veljið þið limbó? „Það er svo skemmtilegt og það er svo mikill húmoríþví. Allir i hópn- um hafa líka húmorinn í lagi. “ Til hvaða staða á að halda? „Við hefjum rúntinn hinn 10. júlí á Dalvík og höldum svo til Akureyrar, Hafnar, Egilsstaða, Patreksfjarðar, Hnífsdals, Selfoss, Borgarness, Sauðárkróks, Húsavíkur, Vest- mannaeyja, Njarðvíkur og Stykkis- hólms. Hinn 28. ágúst verður svo haldin skemmtun í Reykjavík og hinn 4. september fer svo loka- skemmtunin fram íborginni. Þá verður Islandsmeistarinn ílimbói og besti söngvarinn valinn. “ Á að finna nýja barnastjörnu? „Já, helst nokkuð margarþví við veljum fimm hæfustu söngvarana í hverju byggðaRlagi til að koma fram á skemmtuninni og keppa. “ Hafið þið orðið varir við mikinn áhuga? „Já, fólki þykir þetta spennandi enda hafa þeir Ómar og Hemmi lagt sig alla fram við að gera skemmtun- ina sem best úr garði. “ Pétur Kristjánsson tónlistarmaður, Ómar Ragnarsson fréttamaður, Her- mann Gunnarsson sjónvarpsmaður, Haukur Heiðar píanóleikari og Vilhjálm- ur Guðjónsson gítarleikari hafa samein- ast undir nafninu Fjörkálfar á ferð um landið. í tilefni af ári fjölskyldunnar ætla þeir að ferðast um með mikla fjöl- skylduskemmtun. Lyfjapróf sjaidgæf í islenskri knattspyrnu Enginn ísienskur fótboltamaður hefur orðið uppvís að ólöglegri lyfjaneyslu að srrúa upp á sig Tæki vikunnar að þessu sinni er i senn einfalt, ódýrt og afar nytsamlegt. i raun gegnir mestu furðu að maður skuli ekki hafa séð svona apparat á markaðnum áður. Við fyrstu sýn virðist tækið aðeins vera tiltölulega einfaldur bíláttaviti, sem er að því leyti frábrugðinn öðrum áttavitum, að i stað kompásrósar er fljótandi krist- all í skífunni, sem sýnir hvar höfuðáttirnar eru. Ef það væri eina náttúra þessa tækis væri það hins vegar til litils gagns. Aðalfídusinn er sá, að það er hægt að losa áttavitann úr bílnum þegar honum er lagt. Þegar að þvi kemur að finna bílinn upp á nýtt er áttavitinn notaður til þess að miða út hvar bíllinn er og þannig er engin hætta á að menn fari á mis við hann. Notin eru marg- vísleg. Maður þarf aldrei að eyða tíma á bílastæði Kringl- unnar í að muna hvar maður lagði. Á lýðveldisafmælum getur maður óhikað lagt við Þingvallaveginn án þess að leggja sérstaklega á minnið hvar. Maður getur farið á bíln- um á barinn og skilið hann eft- ir án þess að þurfa að leita um miðbæinn þveran og endi- langan daginn eftir. Áttavitinn kostar rúmar 7.000 krónur og fæst hjá póstversluninni Sharper Image i síma 901 415 445 6100. O Lyfjamisferli Maradona í heims- meistarakeppninni í knattspyrnu hefur beint augum manna um allan heim að þessum málum. Mjög auð- velt er að nálgast þau lyf sem urðu snillingnum að falli, en þau getur hver sem hefur áhuga á, keypt í apó- teki án tilvísunar læknis. Það leiðir óhjákvæmilega hugann að því hvort menn hafi ekki freistast hér á landi til að brúka þessi efni. Hér á landi gengust milli fjörutíu og fimmtíu manns undir lyfjapróf á síðasta ári. Þar af voru aðeins örfáir knattspyrnumenn. Guðmundur Gíslason á sæti í lyfjanefnd ISl sem sér um öll lyfjapróf sem fara fram hér á landi. Hann segir að ekki séu regluleg lyfjapróf tekin í knattspyrn- unni hér á landi og að síðast hafi ís- lenskir fótboltamenn verið prófaðir fyrir landsleikinn við Bólivíu. Þá voru fjórir valdir af handahófi úr landsliðshópnum sem allir reyndust neikvæðir, það er að segja engin merki um ólögleg lyf fundust. Lyfjapróf ÍSÍ fara þannig fram að fulltrúar lyfjanefndarinnar mæta þar sem íþróttaviðburðir fara fram án þess að gera boð á undan sér og velja menn til prófunar af handahófi. „Þetta fer þannig fram að nöfn allra leikmanna eru sett í pott og því næst eru dregin tvö nöfn úr hvoru liði af handahófi. Þetta eru þær vinnureglur sem við í lyfjanefndinni förum eftir: við komum án fyrirvara og veljum ntenn í prófið af handa- hófi,“ segir Guðmundur. Þessar reglur þýða að lyfjanefndin getur ekki boðað íþróttamann í lyfjapróf þó að rökstuddar grun- semdir hafi komið fram um að hann „Það eru alltaf sögur ígangi um að einhverjir noti ólögleg lyf,“ segir knattspyrnumaður úr liði í fyrstu deildinni, sem ekki vill láta nafns síns getið. stundi ólöglega lyfjaneyslu. „Reglurnar leyfa ekld að við köll- um menn beint í lyfjapróf. Menn eru einungis skikkaðir til að mæta ef þeir hafa verið valdir af handahófi,“ segir Guðmundur. Ekkert lyfjapróf hefur verið tekið í fyrstu deildinni í sumar en Guð- mundur segir að það hafi aldrei gerst að íslenskur knattspyrnumaður hafi orðið uppvís að því að nota ólögleg lyf. Guðmundur segir að prófin séu mjög dýr og því sé ekki algengt að þau séu framkvæmd nema þegar regiur krefjist þess. Þetta á til dæmis við um frjálsar íþróttir en í hvert sinn sem frjálsíþróttamenn setja Is- landsmet ber þeim að mæta í próf. „Það eru alltaf sögur í gangi um að einhverjir noti ólögleg lyf,“ segir knattspyrnumaður úr liði í fýrstu deildinni, sem ekki vill láta nafns síns getið, „Það hefur til dæmis loð- að í nokkurn tíma við tvo nokkuð þekkta leikmenn að þeir hafi notað stera til að byggja sig upp á undir- búningstímabilinu en það er mjög erfitt að meta sannleiksgildi þessara sagna. Ég held að þetta sé mjög sjaldgæft og þessi örvandi lyf sem hefur verið rætt um eftir að Marad- ona var tekinn eru ekkert í umferð. Maður hefur að vísu heyrt að menn hafi prófað örvandi efni en ég held að það hafi aðallega verið eitthvað fikt.“ 0 að ganga TÆKI VIKUNNAR Ertuað takavið Bjama. Fétuv? 2 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.