Eintak - 07.07.1994, Side 10
dag verður Jörmundur Ingi settur inn í embætti allsherjagoða ásatrúarmanna á íslandi. Þessi söfnuður
er nú orðinn nánast hversdagslegur þrátt fyrir að hugmyndir flestra Islendinga um ásatrú sé það alls ekki.
Ef til vill er það vegna þess að nútíma-ásatrúarmenn eru einhvern veginn ólíklegir til þess að kasta sér
fram á sverð sín fremur en deyja sóttardauða. Gauti B. Eggertsson kannaði hvað þessum mönnum
gengi til - annað en að þeir ætluðu sér að drekka með goðunum í Valhöll að lokinni þessari vist.
I samneyti
við goðin
J íslenskir ásatrúarmenn
Innsetning allsherjargoða Ása-
trúarfélagsins fer fram í kvöld og
mun Jörmundur Ingi Hansen
verða settur í embættið. Athöfnin
fer þannig fram að allsherjargoðinn
kemur ríðandi niður Almannagjá
með 10-12 manna íylgdarliði. Þaðan
ríður hann að Flosagjá og endar
förin loks úti í hólma í Öxará. Þar
sver Jörmundur eiða í embætti sitt
með fornum eiðstöfúm. í kjölfarið
fara svo fram nokkrar hefðbundnar
athafnir. Þegar þessu er lokið halda
félagsmenn í Valhöll og setjast að
mat og drykk og blóta æsi. Þessi
innsetning markar tímamót í sögu
Ásatrúarfélagsins vegna þess að Jör-
mundur leysir Sveinbjörn Bein-
teinsson af hólmi sem gegndi
embættinu frá stofnun félagsins þar
til hann lést fyrir skömmu.
Klækjabrögð
Ásatrúarfélagið var stofnað
formlega 1973 eftir töluvert þjark
um að fá félagið viðurkennt af yfir-
völdum. Fyrst um sinn sáu emb-
ættismenn dómsmálaráðuneytisins
nefnilega enga ástæðu til að lög-
gilda félagið. Það var ekki fyrr en
heiðingjar grófu upp kennslubók
Ólafs Jóhannessonar, lagapró-
fessors og þáverandi dómsmálaráð-
herra, sem þeim tókst að þoka mál-
inu áfram. í henni er að finna
klausu þess efnis að trúfrelsi ríki á
íslandi og menn geti „til dæmis
auðveldlega stofnað ásatrúarfélag“
ef svo ólíklega vill til að nokkur
maður hafí áhuga á því. Þegar
dómsmálaráðherra var bent á þessa
klausu gat hann ekki annað en fall-
ist á löggildingu ásatrúarfélags. Það
er raunar vegna þessa texta í
kennslubók Ölafs sem félagið heitir
Ásatrúarfélagið en ekki til dæmis
Félag heiðinna manna sem Erling-
ur Andrés Jónsson, lögsögumað-
SlGURÐUR ÞÓRÐARSON
„Iðrunin skipar engan heiðurs-
sess í okkar siðaboðskap. Hún
er aukaatriði. Annars verður
þetta til dæmis eins og hjá Ra-
spútín. Hann varalltafað fara í
bað með unglingum. Þegar
menn heyklsluðust á þessari
hegðun sagði hann að menn
yrðu ekki hólpnir nema þeir iðr-
uðust. Og menn gætu ekki iðr-
ast nema þeir syndguðu. “
Erlingur Andrés Jónsson
„Erlend ásatrúarfélög eru meira
í einhverri víkingadýrkun. Ég sá
til dæmis myndband um daginn
frá dönskum ásatrúarmönnum.
Þeir létu eins og hreinir villi-
menn. Þeir komu fyrst ríðandi á
íslenskum hestum með al-
væpni. Þeir voru jafnvel með al-
vöru skildi og bitu í skjaldrend-
urnar og orguðu eins og geð-
sjúklingar. Síðan byrjuðu þeir
að berja sverðunum íhausinn
hver á öðrum. Þetta var reyndar
sprenghlægilegt að sjá. Að lok-
um settust þeir að mat og
drykk. Ekki var atgangurinn
skárri þá. Veislan leit út eins og
verstu senurnar í myndunum
hans Hrafns Gunnlaugssonar. “
ur og framkvæmdastjóri félagsins,
segir að hefði verið mun eðlilegra.
,Æsir eru í rauninni tákn náttúru-
aflanna,“ segir hann.
Trúboð óþarft
1 Ásatrúarfélaginu eru nú 178 fé-
lagar. Ástæðu þess að þeir eru ekki
fleiri má fyrst og fremst rekja til
þess að í siðareglum Ásatrúarfélags-
ins segir að trúboð sé óþarft sem
flestir túlka á þann veg að það sé
bannað. „Við höfum enga sérstaka
trú á því að menn verði hólpnir fyr-
ir það eitt að þeir séu heiðnir,“ seg-
ir Sigurður Þórðarson sem hefur
verið meðlimur í Ásatrúarfélaginu
allt frá upphafi. „Við höldum því
fram að menn verði dæmdir af
verkum sínum. Þá skiptir engu
máli hvort þeir séu kristnir, mús-
limar eða heiðnir. Þetta er ekki eins
og hjá kristnum. Hjá þeim er aðal-
atriðið trúarbrögðin sjálf og er iðr-
unin stærsti hlutinn af þeim. Iðr-
unin skipar engan heiðurssess í
okkar siðaboðskap. Hún er aukaat-
riði. Annars verður þetta til dæmis
eins og hjá Raspútín. Hann var
alltaf að fara í bað með unglingum.
Þegar menn heyklsluðust á þessari
hegðun sagði hann að menn yrðu
ekki hólpnir nema þeir iðruðust.
Og menn gætu ekki iðrast nema
þeir syndguðu. Hugtök eins og
synd og iðrun eru ekki höfuðatriði í
okkar huga. Menn eru dæmdir af
því sem þeir gera. Einhver iðrun
breytir engu um það. Ef þeir gera
eitthvað rangt verða þeir einfald-
lega að bæta fyrir það með verkum
sínum.“
Misjafnar forsendur
Menn eru á misjöfnum forsend-
um í Ásatrúarfélaginu. Sumir til að
viðhalda fornum menningarverð-
mætum, aðrir vegna þess að sam-
komurnar eru svo skemmtilegar og
enn aðrir af trúarlegum ástæðum.
Sigurður Þórðarson telur að lang-
flestir fylli síðasttalda hópinn, þótt
hitt skipti vissulega einhverju máli.
„Ég held að þetta sé yfirleitt spurn-
ing um lífsafstöðu," segir hann.
Lífsafstöðu sína byggja heiðnir
aðallega á Eddukvæðunum og þar
má kalla Hávamál og Völuspá höf-
uðrit. „Við heiðnir höfum ekki
heilög trúarrit eins og margir aðrir.
Það er engin biblía hjá okkur,“ seg-
ir Sigurður. „í raun eru þetta mjög
frjálsleg trúarbrögð og það ríkir
mikið umburðarlyndi hjá heiðnum
mönnum. Þetta sést best á því að
það ríkti algert trúfrelsi hér á fyrstu
árum Islandsbyggðar þegar heiðni
var við lýði. Það var ekki fýrr en ár-
ið 1000 sem kristnir menn beittu
sér fyrir því að önnur trúarbrögð
yrðu bönnuð og trúfrelsi aflagt. Það
orkar því vissulega tvímælis að
halda upp á afmæli kristninnar á
Þingvöllum árið 2000 þar sem
fyrsta lýðræðislega löggjafarþingið
var stofnsett." Sigurður bætir af-
sakandi við að annars sé það and-
stætt heiðnum hefðum að agnúast
út í aðra trúarhópa eða bara aðra
menn yfirleitt. „Hófsemd í orðum
og æði eru kjörorð heiðinna
manna,“ segir hann.
Stundum ekki kynsvall
„Sumir halda að við höldum ein-
hverjar messur. Svo er ekki. Þetta
eru einfaldlega samkomur,“ segir
Erlingur. „Fyrst komum við saman
og borðum. Það er kallað að matast
í samneyti við goðin. í upphafi
máltíðar er blótið sett. Að borð-
haldi loknu er blóthelgi slitið og þá
er þetta eins og hver önnur sam-
koma.
„Á samkomunum fara menn oft
í forna leiki á borð við hráskinna-
leik og bændaglímu. Þá er vinsælt
að kveðast á og fara með rímur.
Er þetta félag þá bara léleg afsök-
un til aðfara á fyllerí?
„Nei, þetta eru ekki bara fyllerí.
Menn þurfa ekki að lesa mikið í
Hávamálum til að sjá að þar er
mjög varað við víndrykkju. Megin-
inntak heiðinnar trúar er nefnilega
að menn séu ábyrgir gerða sinna.
Það eru þeir ekki ef þeir eru fullir.
En vissulega kemur það fyrir innan
Ásatrúarfélagsins að menn drekki
yfir sig eins og annars staðar.
Stundum hefur maður heyrt ein-
hverjar goðsagnir um kynsvöll?
„Kynsvall er ekki til í Ásatrúarfé-
laginu. Hins vegar er ekkert til í
heiðni sem heitir synd. Maður sem
er ábyrgur gerða sinna syndgar
ekki. Það er í rauninni ekkert bann-
að í heiðnum sið svo lengi sem
menn bera ábyrgð gerða sinna.“
Ásatrúarmenn halda fastar sam-
komur þrisvar sinnum á ári. Vor-
blót er að jafnaði á sumardaginn
fyrsta eða jafndægrum 16. mars. Þá
er sólstöðuhátíð haldin á Jóns-
messu og jólablót 23. desember.
Einnig eru haldin önnur blót ef
tækifæri gefst til.
Ásatrúarfélagið er sífellt að færa
út kvíarnar. Nú er það farið að
standa fyrir hjónavígslum, ung-
lingavígslum, nafngift og jafnvel
greftrun. „Við höfum ekki ennþá
fengið eigin grafreit og erum því
enn að jarðsetja menn í kristnum
kirkjugörðum,“ segir Erlingur.
„Við erum nú þegar búnir að sækja
um grafreit og það stefnir allt í að
úr því verði. I umræðunni er
ákveðið land í Kópavogi.“
Ásatrúarmenn
fjölmennir erlendis
Ásatrúarfélög eru ekki aðeins
starfandi á íslandi. Bæði í Evrópu
og Bandaríkjunum má finna ara-
grúa safnaða. I Bandaríkjunum
einum er talið að allt að 600.000
manns séu í einhverjum félögum
sem tengjast ásatrú í dag. Einnig
varð talsvert vart við heiðin áhrif
hjá nasistum Þýskalands og má
nefna að hakakrossinn er tákn
Þórshamars í heiðnum sið. Erling-
ur segir að nasisfni eigi nákvæm-
lega ekkert skylt við heiðni þó nas-
istar hafi reynt að hampa henni
öðru hverju. Heiðnir menn séu
umburðarlyndir og það sé til dæm-
is skrifað í Hávamálum að fatlaðir,
sem nasistar fyrirlíta mjög, eigi að
vera fullgildir í samfélaginu. Hann
segir að félögin erlendis misskilji
oft boðskap heiðninnar. „Þetta eru
oft félög sem eru meira í einhverri
víkingadýrkun. Ég sá til dæmis
myndband um daginn frá dönsk-
um ásatrúarmönnum. Þeir létu
eins og hreinir villimenn. Þeir
komu fyrst ríðandi á íslenskum
hestum með alvæpni. Þeir voru
jafnvel með alvöru skildi og bitu í
skjaldrendurnar og orguðu eins og
geðsjúklingar. Síðan byrjuðu þeir
að berja sverðunum í hausinn hver
á öðrum. Þetta var reyndar spreng-
hlægilegt að sjá. Að lokum settust
þeir að mat og drykk. Ekki var at-
gangurinn skárri þá. Veislan leit út
eins og verstu senurnar í myndun-
um hans Hrafns Gunnlaugsson-
ar.“
Erlingur segir að þeir hafi lítil
samskipti við ásatrúarmenn er-
lendis. Stundum sé hins vegar haft
samband við þá og þeim send
fréttabréf. Ásatrúarfélagið íslenska
er eina félagið í heiminum sem er
viðurkennt af yfirvöldum. 1 Bret-
landi og Noregi munu að vísu ein-
hver félög fá viðurkenningu innan
skamms. „Það er mikill misskiln-
ingur ef menn halda að heiðnin
gangi út á einhverja víkingadýrkun.
Siðfræði heiðinnar gengur út á að
menn eigi að haga sér með ábyrg-
um hætti, lifa í sátt við náttúruna
og allra síst að drepa mann og ann-
an. Þá má benda á að víkingar voru
í miklum minnihluta á Islandi og í
Noregi,“ segir Erlingur.
Sigurður Þórarinsson bendir á að
vígaferli og vopnaburður hafi ekki
hafist að neinu marki fyrr en
kristnin tók við.
Þingvallanefnd í fýlu
Það hefur verið mikið á seyði hjá
ásatrúarmönnum að undanförnu.
Mönnum er enn í fersku minni
átökin um allsherjargoðann. Þá
JÖRMUNDUR INGI HANSEN
var kjörinn allsherjargoði Ása-
trúarfélagsins ekki alls fyrir
löngu. í kvöld sver hann forna
eiðstafi að embætti sínu á Þing-
völlum. Svo verða æsir blótaðir
í Valhöll.
buðu sig fram Haukur Halldórs-
son og Jörmundur Ingi Hansen.
Nokkur óvisssa var um hvernig
kjörið átti að fara fram þar sem
Sveinbjörn Beinteinsson hafði alltaf
verið sjálfkjörinn allsherjargoði og
engum datt í hug að efast um for-
ystu hans. Það vor því engar reglur
til um hvernig ætti að velja í emb-
ættið. Að lokum tókst mönnum þó
að koma sér saman um fyrirkomu-
lag.
Nokkur málefnaágreiningur var
á milli frambjóðenda. Haukur er
heldur nýr í félaginu og vildi
stækka félagið og nema úr gildi
bannið við trúboði auk ýmissa ann-
arra róttækra hugmynda. Jör-
mundur stóð hins vegar fyrir hin
gömlu gildi í félaginu. Hann var
einn stofnenda þess og jafnan hægri
hönd Sveinbjörns og staðgengill
hans ef hann forfallaðist. Það er
kannski stærsta ástæðan fyrir því að
hann náði kjöri. Menn vissu hvað
þeir höfðu en ekki hvað þeir myndu
fá.
Þegar allherjargoðinn var kjörinn
kom fram í fjölmiðlum að innsetn-
ingin ætti að fara fram í Almanna-
gjá. Við þetta fyrtist Þingvallanefnd
vegna þess að ekki hafði verið sótt
um neitt leyfi fyrir slíku. I kjölfarið
ætluðu þeir að meina ásatrúar-
mönnum aðgang að helgustu stöð-
um Þingvalla. Þangað ættu þeir
ekkert erindi. „Það sem þeir gerðu
sér ekki grein fyrir,“ segir Erlingur,
„er að það voru heiðnir menn sem
helguðu Þingvelli sem þingstað,
ásatrúarmenn völdu staðinn og
sköpuðu helgina.
Við bentum þeim á þetta og sem
betur fer leystist málið í sátt og sam-
lyndi. Við höfum fengið óformlegt
vilyrði til þess í framtíðinni að fá
fullan aðgang að Almannagjá. Að
þessu sinni verðum við þó að fara út
í hólmann þar sem Þingvallanefnd
vill hlífa staðnum eftir 17. júní.“
Ætla að reisa hof
Það er tvennt sem er helst á döf-
inni hjá félaginu á næstunni. Ann-
ars vegar er í bígerð að reisa Svein-
birni Beinteinssyni minnisvarða úr
stuðlabergi. Hins vegar ætla ásatrú-
armenn að reisa hof. „Við stefnum
að því að láta nútíma byggingalist
mæta fornri," segir Erlingur. „Ann-
ars hefur líka verið talað um að reisa
byggingu í líkingu við norsku staf-
kirkjurnar. Þær eru að öllum líkind-
um eftiröpun gamalla heiðinna
hofa enda einstæðar í veröldinni."
Gefum Sigurði að lokum orðið:
„Það er mikill misskilningur út-
breiddur um lífsýn heiðinna
manna, sem til að mynda lýsir sér í
hugtakaruglingi. Börnum er kennt
að þau megi ekki blóta en það þýðir
í raun að sýna djúpa virðingu og
trúarlega lotningu. I huga fólks eru
heiðingjar trúleysingjar, múham-
eðsmenn, ribbaldar eða eitthvað
þaðan af verra. Heiðni er samstofna
orðinu heiðarlegur og heiður í
merkingunni skýr eða tær. Heiðnin
byggir á umburðarlyndi, heiðar-
leika, drengskap, virðingu fyrir
landinu og náttúrunni og ábyrgð
einstaklingsins. Og þetta eru hin sí-
gildu gildi íslendinga." ©
10
FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994