Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 07.07.1994, Qupperneq 17

Eintak - 07.07.1994, Qupperneq 17
Er eithvað varið í að ferðast á Islandi ef maður hefur engan sérstakan áhuga á landslagi? Stöðugt er verið að hvetja fólk til að sækja ísland heim og talað um að hér sé fjölbreytt náttúra og skemmtilegt fólk. Er eitthvað til í því? Loftur Atli Eiríksson athugaði það. Ævintýraferðir fyrir ísienska ofurhuga Undanfarið hefur verið mikill áróður í gangi í auglýsingum varðandi ferðalög innan- lands. Margir halda að hið eina, sem hægt er að gera, sé að horfa á landið í gegnum bílglugga af hring- veginum eða fara í göngutúra og berjamó. Þótt það sé ágætt út af fyrir sig er slíkur ferðamáti lítt skemmtilegur til lengdar og nýir og spennandi ferðamöguleikar eru því farnir að skjóta upp kollinum í auknum mæli. Víða um land eru nú boðnar ýmis konar ævintýra- ferðir fyrir þá, sem vilja vera þátt- takendur, en ekki bara áhorfendur í ferðum sínum. EINTAK kannaði nokkra af þessunt nýju ferðamögu- leikum. Sjóstangaveiði er vinsælt sport erlendis, en þrátt fyrir að allt sé vaðandi í fiski í kringunt okk- ur eru einungis örfá ár síðan sport- veiðimenn fóru að renna í hafið. Stemmningin úti í Faxaflóa er engu lík, að sögn þeirra sem það hafa reynt og fáir koma tómhentir heim eftir slíka veiðiferð. Ferðabær býður upp á sjóstanga- veiði í Faxaflóa, en lagt er upp frá Reykjavíkurhöfn fjórum sinnum í viku kl. 16.00. Ferðin tekur um 3 1/2 klst. og kostar kr. 4.800. Það þarf ekki að taka veiðigræjur með sér, því notkun á þeim og kaffiveit- ingar eru innifaldar í verðinu. Lundinn er algengasti fugl á Is- landi, en Lundey er norðan við Viðey. Mikið fuglalíf er í eyj- unni og siglingar um sundin blá á vegum Ferðabæjar njóta sífellt meiri vinsælda. Siglt er í kringum eyjarnar og stoppað stutt í Viðey og kostar tveggja tíma túr kr. 2.900. egar líða tekur á sumarið kem- ur hvalurinn nær ströndinni og frá miðjum júlí er hægt að fara í þriggja stunda hvalaskoðun- arferðir út á Faxaflóa. Þar má sjá hrefnu og hnísu og þegar utar dregur glittir off í stórhveli á borð við steypireyði. Fyrst við megum ekki skjóta er tilvalið að skoða þessar tilkomumiklu skepnur í skemmtisiglingu sem tekur um 3 klst. og kostar það kr. 2.900. Hjólreiðar njóta aukinna vin- sælda og Hjólaferðir eru með skemmtilegar ferðir um Suð- urnes fyrir þá, sem vilja skilja blikkbeljuna eftir heima og njóta nátúrufegurðar Reykjaness á fjalla- hjólum. Ferðin hefst við skiptistöð Almenningsvagna í miðbæ Hafn- arfjarðar og endar í Bláa lóninu. Hún kostar 4.000 kr. fyrir mann- inn en Hjólaferðir leggja til tvær stærðir af fjallahjólum, regnföt og hjálma. Léttur málsverður að Vig- dísarvöllum er innifalinn í verðinu. Fylgdarbíl er með hjólreiðarmönn- unum, sem flytur farangur þáttak- enda og einnig er hægt að hvíla sig í hönum ef menn fara að lýjast. Leiðin er 51 km og reiknað er með að hún taki um 6 klst. Farið er um Djúpavatnsleið og Grindavík þar sem landslag er einstaklega fjöl- breytilegt og hentugt til fjallahjól- reiðar. I Bláa lóninu gefst ferðálún- um hjólreiðagörpum tækifæri til að hvílast í fögru umhverfí Svart- engis, en að þvi loknu er þeim ekið aftur til Hafnarfjarðar. Hestaleigan í Laxnesi í Mos- fellssveit er steinsnar frá Reykjavík, en þaðan eru skipulagðir reiðtúrar kl. 10.15 og 14.15 daglega. Oftast er riðið að Fjallfossi, sem er annálaður fyrir fegurð sína og tekur reiðtúrinn tæpa 3 tíma. Þeir sem eru óvanir þurfa ekkert að óttast því framboð- ið á hestum er fjölbreytilegt, allt frá úrvalsgæðingum til hinna mestu róiyndisskepna. Kostnaðurinn á mann er kr. 2.500, en hægt er að fá verulegan afslátt ef fjölskyldur eru saman á ferð. vítá er ein af fallegustu og kraftmestu ám landsins og kjörin til siglinga á gúmbát- um. Skammt frá Gullfossi og Geysi eru Drumboddsstaðir en þar hafa Hvítárferðir aðsetur sitt. Farið er niður 7 kíjörhetra langan kafla í ánni í 9 til 15 manna bátum og tek- ur ferðin um cinn klukkutíma. Áð- ur en lagt er af stað er farið yfir helstu öryggisatriði og þáttakendur fá lánaða fíotgalla til fararinnar. Vanur ræðari, sem þekkir ána vel, er með í ferðum, en þátttakendur geta ráðið hvort þeir taka þátt í róðrinum eða sitja bara og njóta fararinnar um stórbrotin gljúfur árinnar. I ánni skiptast á flúðir og lygnur, en eftir ferðina er boðið upp á kaffi og meðlæti. Verð á manninn er kr. 3.500 en kr. 3.000 ef átta eða fleiri eru um borð í bátnum. Fljótasiglingar hafa lengi verið með vinsælustu ævintýraferðum erlendis, en mikið af íslendihgum sækja í þessar ferðir á Hvítá. Hvítá rennur úr Hvítárvatni undir LangjökJi, en nýlega var farið að skipuleggja siglingar um vatnið. Notaðir eru stórir og hraðskreiðir gúmbátar og 18 til 20 fúllorðnir komast fyrir í hverri ferð. Siglt er frá brúnni yfir Hvítá og á leiðinni yfir vatnið eru helstu ísjakar skoð- aðir. Náttúrufegurð er stórbrotin á þessum slóðum og jökullinn er glæsilegur að sjá af vatninu. Stálið, sem siglt er upp að við Norðurjök- ulinn, er 20 til 30 metra hátt og þáttakendur sjá hvemig molnar úr því og hrynur ofan í Vatnið, Ferðin tekur um éina og hálfa klukku- stund og kostar á bilinu kr. 1.300 til kr. 1.600 eftir fjölda þátttakenda. Glæsileg aðstaða til ferða og gistinga býðst nú á Vatna- jökli. Hægt er að fara í dags- ferð á jökulinn með flugi frá Reykjavík til Hafnar í Hornafirði, en þaðan er ekið að jöklinum, þar sem tekið á móti farþegum við skála Jöklaferða á Hálsaskeri við Skálafellsjökul. Þaðan er farið með vélsleðum eða snjóbíl í eins til tveggja tíma ferðir að Miðfellsegg. og inn að Birnudalstindum, sem eru í 1.345 metra hæð, og að Grjót- botni. Staldrað er við á jöklinum í um það bil 3 klukkustundir þar sem þáttakendur geta byggt snjó- karla, leikið golf og þegið hressingu í skálanum, en þar er boðið upp á alls kyns veitingar. Frá skálanum er ekið að Jökulsárlóni á Breiðamerk- ursandi og farið í siglingu á milli jakanna á lóninu. Jökulsárlón er eitt af merkustu náttúruundrum Suðausturlands og þar eru einstak- ir möguleikar til myndatöku. Flogið er aftur til Reykjavíkur frá Höfn, en allur pakkinn kostar 24.400 kr. Ef flugfarinu er sleppt er hægt að fara í sömu ferð frá Skafta- felli, Kirkjubæjarklaustri og Höfn fyrir 9.700 kr. Jöklaferðir eru einn- ig með lengri ferðir á Vatnajökul, en gistirými fyrir 30 manns er í Jöklaseli. Þáttakendum í ferðum Jöklaferða er séð fýrir öllum út- búnaði ogþað eina sem þeir þurfa að taka með sér eru sólgleraugu. rá Akranesi er hægt að fara í ýmsar spennandi sjóferðir með Andreu 3. Gunnar Leifur, eigandi bátsins, er ekki af baki dottinn þótt hann hafi misst glæsi- legan sjóstangveiðibát í bruna rétt fyrir utan Reykjayík í vetur, en með honum var hægt að fara á sjó- skíði. Gunnar á ennþá skíðin og segir að ef sjóskíðabakterían sé að drepa einhvern hljóti að vera hægt að koma slíku við af Skaganum. Klukkutímalöng sjóskíðaferð kost- ar um 3.000 kr, en þriggja tíma tíma sjóstangaferð er á 4.000 kr. Allur útbúnaður og veitingar eru innifaldar í ferðinni. Ef veiðimennirnir eru kátir og léttir skellir Gunnar stundum litl- um slöngubát fyrir tvo ofurhuga aftan í vélbátinn, en það er meiri- háttar ævintýri að skoppa á honum yfir hafflötinn. Þeir sem vilja kynna sér hvað er að finna undir yfir- borðinu geta farið í ævintýralegar köfunarferðir frá Akranesi og gefur upplýsingamiðstöð ferðamanna í bænum allar upplýsingar um þær. átt er skemmtilegra en að bruna á vélsleða yfir jökul- breiður landsins. Fjöldi fyrir- tækja eru starfræktur í námunda við alla helstu jökla þar sem hægt er að leigja vélsleða eða fara í ferðir með snjóbílum á þá. Sumstaðar er ágætis aðstaða til skíðaiðkunnár, en mörguni skíðamönnum finnst ekkert jafnast á við að fara á stutt- buxum niður jöklanna. Algeng leiga fyrir vélsleða er rúmlega 3.000 kr. á ldst. jöldi smárra leiguflúgfélaga er rekinn um land allt. Sum þeirra bjóða skipulagðar út- sýnisferðir fyrir hópa, en einnig er hægt að leigja vél með flugmanni fyrir ótrúlega lítinn pening. Vest- urflug á Isafirði er t.d. með flug yfir perlu íslenskrar náttúru á Horn- ströndum fyrir 5.000 krónur en ferðin tekur um einn klukkutíma. jallaferðir og útivist njóta sífellt meiri vinsælda meðal íslend- inga. Þeir sem eru orðnir al- varlega sjúkir af fjallgöngubakter- íunni geta nú fengið leiðsögn til klifúrs á hæstu tinda landsins hjá vönum fjallamönnum. Islenskir fjallaleiðsögumenn eru með tveggja til 17 tíma gönguferðir fyrir þriggja manna hópa og stærri frá Skaftafelli. Verðið er frá 1.000 kr. upp í 7.500 kr eftir því hvert farið er. Lengsta ferðin er á Hvannadals- hnúk og er göngugörpum séð fyrir jöklalínum, mannbroddum og ís- öxum. Margir útlendingar sem koma tii Islands segja áð toppur- inn á ferðlaginu sé að fara í Drangey. Jón Eiríksson, sem stundum er kallaður Eyjarjarlinn, sér um að koma ferðalöngum í eyj- una, en hann hefur sigið þar í bjarg í fjörtíu ár. Mikið er af fugli í eyj- unni, en ferðin þangað tekur um 5 til 6 klukkustundir með uppgöngu. Jón hefur gert miklar endurbætur á lendingunni og gönguleiðinni upp í eyna, en hún er þverhnípt og ekki fyrir lofthrædda að freista þar upp- göngu. Lagt er upp í ferðirnar frá Sauðárkróki og Reykjum, en þar er nú búið að hlaða upp grjóti í kringum Grettislaug og vinsælt er að feta í fótspor fornkappans og baða sig í lauginni þegar komið er til baka. Ferðin kostar 3.000 kr., en Jón er til viðtals um helmings af- slátt ef menn kjósa að synda til lands. Hér hefur verið stiklað á stóru í sambandi við ýmiskonar æv- intýraferðir víða um Iand. Framboðið er orðið slíkt að sama virðist hvar drepið er niður fæti á landinu, alls staðar er hægt að fara í óvenjulegar og spennandi ferðir, sem þurfa ekki að kosta mikla pen- inga. Island er á góðri leið með að verða sú parádís 'ferðamannsins, sem við viljum vera láta, en það er engin ástæða til að láta alla þessa nýju ferðamöguleika útlendingum eftir. Ferðamálafulltrúar eru starf- andi í.öllum landsfjórðungum og ástæða er að hvetja fólk að leita til þeirra eftir frekari upplýsingum. í Reykjvík er rekin myndarleg upp- lýsingamiðstöð fyrir ferðamenn í Bankastræti 2 og starfsfólkið þar er boðið og búið til að veita þeim þjónustu sína jafnvel þótt þeir séu Islendingar.O FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994 17

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.