Eintak

Eksemplar

Eintak - 07.07.1994, Side 28

Eintak - 07.07.1994, Side 28
ÉC/ VEIT PAÐ EKKI HALLGRÍMUR HELGASON '~V Það er gaman að þessu Ég veit það ekki. Jú. Maður er mættur á flothoitið sem flýtur enn í seigfljótandi silfurlitu lognhafi og sólin síbjört yfir vomandi, eins og jójó í fimum höndum, upp og nið- ur en aldrei down. Og sjálftjr er maður dáldið upp og niður og kannski dáldið til baka. Svona fyrstu dagana. Eitthvað Rewind í sálinni eftir að maður hefur spólað sig afturábak í tíma, og úrið á handleggnum: Tímamismunur 2 klst. Maður endurtekur með sjálfum sér tvo tíma sem óáreittir liðu áfram í París og er dáldið með „endurtekið efni“ fyrstu dagana: „Ég? Ég kom á sunnudaginn...“ „Já ætli maður verði ekki eitthvað fram á haustið...“ Saklaus einföld, streit og leiðinleg svör við skemmtilegum spurningum. Það þarf nolckrar bar- ferðir til að komast í gamla íslenska gírinn og geta svarað með stæl og útí hött, með óvæntum sendingum útá vinstri kant... borðsins þar sem einhver rammíslenskur Romario tekur við boltanum og sendir inn í teig, teygandi bjórinn úr glasinu um leið. íslendingar eru skemmtilegir og hafa skemmtigildið ofar öllu, skipulagningu þjóðhátíðar og öðr- um alvarlegum hlutum. Umræðan um „hver bar ábyrgðina?" fellur í skuggann af hlátrinum (skuggi af hlátri) yfir óförum annarra. „Ha, ha, ha...kórinn var búinn að vera að æfa t allan vetur og sat svo bara fastur í blikkskafli á heiðinni, full rúta af þjóðbúningadúkkum með þvalar hendur og ekki einu sinni tekið lagið í þessa fimm tíma...ha, ha, ha.“ ÞAÐ MÁ HAFA GAMAN AÐ ÞESSU. Þetta er íslenskur frasi sem ekki fínnst svo glatt í öðrum málum. Um að gera að hafa gaman að þessu og svo bíðum við öll eftir áramótas- kaupinu til að geta hlegið dátt síð- asta hlátri ársins yfir öllum óförum þess. Og maður reynir að hafa gaman að þessu, þó bjórinn kosti 40 franka og Bjarni Fel sé enn að lýsa leikj- unum á HM, á risatjaldi inná Glaumbar, tuðandi um „sigur Brasilíumanna á Brasilíumönn- um“. En þegar maður er búinn að segja 17 sinnum hæ niður Lauga- veginn og það átjánda virðist í upp- siglingu kemur yfir mann anorak- urinn og maður breytist í „útlend- ing á íslandi“, á fjallaklossunum fyrir utan bókabúð Máls og menn- ingar að skoða þýsku blöðin og kaupa Smekkleysu-kort með ís- lenska fánanum „Hálf öld, heil þjóð“ sem síðan er hægt að raða í hakakross þegar heim er komið. Is- lendingar eru skemmtilegir og geta haft gaman að flestu. Hálf öld, rall- hálfþjóð. Það er ekki fyrr en ég hitti Daní- el Þorkel Magnússon myndlist- armann á förnum Laugavegi og hann nýkominn ofan af Kjarvals- stöðum frá því að lóðsa Hollands- drottningu á milli rýmisverka, að þetta rennur allt saman saman fyrir manni: Hann réttir mér hendina, ekki til að heilsa, heldur til að leyfa mér að lykta og af íslenskri smiðs- hönd hans leggur fágaðan drottn- ingar-ilm. Það er gaman að þessu. © Nafn: Jqhannes B. Quði Fæðingardagur: 14. áé Háð: 150 cm Þyngd:50 kg Háraiitur: Svartur Augnlitur: Grænn Hver? Jóhannes B. Guðmundsson, oftast kallaður Jóhannes grínari er einn af þeim mönnum sem setja skemmtilegan svip á bæjarlífið. „Ég fékk grínaranafnbótina, því ég er svo góður í að herma eftir stjórn- málamönnum,“ segir Jóhannes. Hvað? Jóhannes er öryrki og hefur verið frá vinnu lengi. Hann greip því tækifærið fegins hendi þegar hon- um var boðið að leika Ola einbúa í Bíódögum Friðriks Þórs Frið- rikssonar. Hann gerir samt ekki mikið úr leikhæfileikum sínum. „Ég kem fram á tveimur stöðum í myndinni,“ segir Jóhannes. „I ann- að skiptið stend ég við girðingu og krakkarnir eru að stríða mér en í hitt skiptið eru þau að horfa á bíó og ég kem og dreg tjaldið frá og þá hlaupa þau öll út.“ Hvernig? Jóhannes segir að Friðrik Þór og Ari Kristinsson hjá Islensku kvik- myndasamsteypunni hafi komið að máli við sig og boðið sér hlut- verkið í Bíódögum. „Ég leik líka í næstu mynd þeirra félaga en hún heitir Cold Fever. Hún verður ekki frumsýnd fyrr en í janúar eða febrúar og er núna í lokavinnslu. Þar leik ég Old man en Bríet Héð- insdóttir fer með hlutverk eigin- konu minnar. Senan með okkur var tekin fyrir ofan Selfoss og Bríet var alltaf að gefa mér að borða. En við töluðum ekkert frekar en ég gerði í Bíódögum.“ Hvaðan? Jóhannes er fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð en fluttist til Reykjavíkur árið 1970. Hann starf- aði um tíma í skipasmiðjunni Stál- vík í Garðabæ og hjá Hampiðj- unni. Hann er ómenntaður leikari en leikhæfileikar hans virðast með- fæddir því hann stendur sig vel í Bíódögum. B í Ó I N BIOBORGIN Reality Bites *** Góð skemmlun fyrir unglinga. Fjandsamlegir gfslar Hostile Hostages ** Nokkuð nálægt þvl að vera „ dúndur grínmynd", eins og segir I auglýsingnnunni. Angie *** Mannlegmynd, indælogþó nokkuð lyndin. Af lífi og sál Heart and Souls * Sjaldan lynd- in en alltaf væmin mynd um fólk sem dinglar milli líls og dauða vegna óuppgerðra hluta úr jarðvistinni. Sem sagt eitt þreyttasta elni kvik- myndasögunnar. Hús andanna The House of the Spirits **** Frábær leikur. Myndin verðuraldrei leiðinleg þrátt fyrir þriggja tíma setu. BÍÓHÖLLIN Bíódagar *** Falieg en dálitið gölluð mynd. Byrjar vet en leiðist út íhálfgerða ára- mótasketsa og endar I langri jaröaríör. Tómur tékki Blank Check ★★ Sagaatdreng sem kemst að því að það besta I veröldinni er ókeypis með því að eyða milljón dollurum á sex vikum og hvíla sig I faðmi fjölskyldunnar á þeim sjöunda. **** segir Davíð Alexander, 9 ára. Hvað pirrar Gilbert Grape What's Eating Gilbert Grape ★** Ein alþessum myndum sem maður gteymir sér ytir. Þrumu-Jack * Ástralir etska Paul Hogan og þreytast ellaust ekki á að sjá hann i þessari mynd. Öðru máli gegnir um íslendinga. Ace Ventura **** Ógeðslega, ógeðslega lyndin I tyrsta sinn en tóllsinnum leiðinlegri I næstaskipti, —segir Davíð Alexander, níuára gagnrýnandi barnaeínis IEINTAKI. Leynigarðurinn The Secret Garden ** Hug- Ijút Ijölskyldumynd, sem ertalleg Irekaren skemmtiteg. HÁSKÓLABÍÓ Græðgi Greedy * Óttaleg þvæta. Veröid Waynes 2 Wayne's World 2 *** Sannkölluð gleðimynd. Brúðkaupsveislan The Wedding Banquet *★ Gaman mynd um homma I felum. Blue Chips * Mynd um þjállara sem spiitist al sigurtöngun og brýtur lögmál áhugamennsk- unnar. Eins konar áskorun lil Kfí- inga að halda þolinmæðinni. Þrátt tyrir góða meiningu drukknar boðskapurinn I eigin væmni. Þeir sem ekki hala gaman alköríubolta þjást. Beint á ská 331/3 Naked Gun 331/3 The Final Insult * Frekar dapurleg tilraun til að halda lili Iþessari seriu. Með góðum hug má þó hlæja hér og hvar. Nakinn Naked ★** Hin ágætasta skoðunar- lerð um lægstu lendur Englands, neðan mittis og hungurmarka. Listi Schindler's Schindler's List **** Verðskulduð Óskarsverðlaunamynd Spielbergs. Allirskila sínu besta og úr verður hetjarinnar mynd. LAUGARÁSBÍÓ Serial Mom ** John Waters-myndsem eintægir aðdáendur hans geta sjállsagt hatt gamanaf. Lögmál leiksins Above The Rim * Myndum körfubolta og gæja. Ögrun Sirens ★* Innihaldslaus og snubbótt saga sem helði mátt klára lyrir hlé. Þótt sumar konurnar séu lull jussulegar geta karlar skemmt sér við að horía á prestslrúna. Og konurnar á Hugh Granl. Þessi tvö eiga stjörnurnar. REGNBOGINN Gestirnir Les Visiteurs *** Frönsk della sem má hafa mikið gáman at Sugar Hill * Sýrópið og sykurinn drýpural tjaldinu í einn og hállan tlma áður en myndin byrjar lyrir alvöru. Stuttu síðar er hún búin. Nytsamir sakleysingjar Needful Things ** Djölullinn slígur upp til jarðar og breytir Irið- sömu þorpi I háltgert helvíti. Venjubundinn Stephen King. Píanó *** Óskarsverðlaunaður leikur Iað- al- og aukahlutverkum. Þykk og góð saga. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol- ate *** Ástir undir mexikóskum mána. STJÖRNUBÍÓ Bíódagar / raun eratriðið þarsem bóndinn ler I sagnakeppni við Kanann nægt tilelni tíl að sjá myndina. Stúlkan mín 2 My Girl 2 ★★* Myndsem er um og lyrir gelgjur—og ágæt sem slík. Þeir sem eru komniryfir hana eða hala aldrei orðið lyrir henni geta meira að segja haft nokkuð gaman al. Tess í pössun Guarding Tess **★ Hæg, Ijúl og líklega indæl gamanmynd með smá spennu I lokin. Söguþráðurinn skiptir I sjállu sér ekki miklu eins og I mörgum svipuðum myndum heldur andinn sem svílur ylir vötnun- um. Fíladelfía Philadelphia **** Frábærtega leikin. Það hata allir gottalað sjá þessa mynd og ekki kæmi á óvart þótt hún yrði notuð sem kennsluelni I alnæmisvörnum þar til annað betra býðst. Dreggjar dagsins Remains of the Day ★*★* Magnað verk. SÖGUBÍÓ Lögregluskólinn — Leyniför til Moskvu Police Academy— Mission to Moscow. * Yf- irþyrmandi vitleysa sem er alltal sjaldan skemmtileg. Bændur í Beverly Hills The Beverly Hillbilli- es ★ Eltil vill erþað vegna þess að Islendingar voru aldrei aldir upp við sjónvarpsþættina, sem myndin er byggð á, en einhvern veginn ler hún lyrir olan garð og neðan. Rokna Túli *** Talsett teiknimyndsem börnum linnst bara nokkuð gaman al. 28 FIMMTUDAGUR 7. JÚLÍ1994

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.